Óróatíđ

Ef trúa má reiknimiđstöđvum fer nú í hönd nokkur óróatíđ. Fyrst fara tvćr mjög djúpar lćgđir hratt til norđausturs ekki langt fyrir suđaustan land - en síđan er bođiđ til skyndihláku - jafnvel tvisvar áđur en áriđ er úti. - En hlákurnar eru auđvitađ bara líklegar - ekki vísar.

Ţó ađalvindstrengir förulćgđanna tveggja fari hratt hjá - og komi e.t.v. ekki mikiđ viđ sögu um landiđ vestanvert er veđriđ á ţeim slóđum líka harla óvisst nćstu ţrjá dagana og ćtti fólk á faraldsfćti ađ fylgjast vel međ veđri og veđurspám - nýta birtustundir vel. 

w-blogg231216a

Nú í kvöld (fimmtudag 22. desember) náđist mjög góđ innrauđ mynd af fyrri förulćgđinni (af vef Veđurstofunnar - ađeins klippt). Blikubakki lćgđarinnar nálgađist ţá landiđ og leggst vćntanlega yfir ţađ allt í nótt. Viđ sjáum ađ lćgđin er búin ađ hringa sig - en er samt enn ađ dýpka.

w-blogg231216b

Spá evrópureiknimiđstöđvarinnar sem gildir um hádegi á morgun (ţorláksmessu) sýnir lćgđina um 250 km, fyrir sunnan land - ţá um 952 hPa í miđju. Ţrýstilínur eru ţéttar - sérstaklega sunnan og vestan lćgđarinnar - viđ sleppum viđ ţau ósköp. 

Litirnir sýna 3 klst ţrýstibreytingu - rauđir fallandi ţrýsting, en bláir stígandi. Á hvítu blettunum norđaustan- og suđvestanviđ lćgđarmiđjuna hefur breytingin sprengt litakvarđann. Ţrýstibreytingamynstriđ sýnir hreyfistefnu lćgđarinnar glögglega. 

Önnur lćgđ - miklu grynnri - er vestur undir Grćnlandsströnd. Ţetta er lćgđin sem sendi élin inn á landiđ vestanvert í dag - vestanáttin og élin hörfa um stund međan lćgđin hrađfara fer hjá međ austanátt sína. Á mótum áhrifasvćđa lćgđanna byggist hins vegar upp skýjabakki međ allmikilli úrkomu, eins og lćgđirnar tvćr tengist sameiginlegu bandi eđa böndum. [Nú langar ritstjórann til ađ fara ađ fjalla um hugtökin „samstreymi“ og „ístreymi“ og hinn fíngerđa mun ţeirra - en ćtlar ađ standast freistinguna - lesendur geta andađ léttar.] 

Örlög ţessa úrkomulinda á milli lćgđanna eru mjög óljós í spánum - bćđi hvar hann fer yfir og hversu öflugur hann verđur á hverjum tíma. - En ţar sem mikiđ snjóar - ef ţađ ţá snjóar á annađ borđ - verđur sá snjór ávísun á leiđindi fái hann á sig hvassviđri eđa hláku. 

Ritstjórinn vildi gjarnan tala um „spillisnjó“ í svona tilvikum - ţađ ţekkir hins vegar enginn - og málvenja snýr hlutunum viđ og vill frekar tala um skammvinna hláku ofan í svona snjó sem „spilliblota“. Eitthvađ segir ţetta um viđhorfin á árum áđur - pólitísk táknmynd? 

w-blogg231216c

En lítum ađ lokum upp í mitt veđrahvolf - í 500 hPa-flötinn. Kortiđ gildir á sama tíma og kortiđ ađ ofan og sýnir hćđ 500 hPa-flatarins (heildregnar línur), hita í fletinum (ekki ţykkt) og síđan vind međ hefđbundnum vindörvum. - Hér kemur hiđ fremur óvćnta í ljós. - Lćgđin mikla er bara lítiđ innlegg í miklu stćrra kerfi sem hefur miđju á sama stađ og grunna lćgđin á hinu kortinu - viđ Grćnland. Grunna lćgđin er bara grunn viđ sjávarmál vegna ţess ađ hún er full af köldu lofti - Öflug sunnanátt nćr alveg upp undir Vesturland - og kembir ţar ofan af úrkomubakkanum - dćlir burt ţví lofti sem ađ honum berst úr tveimur áttum neđar - auđveldar uppstreymi (samstreymi - ístreymi - úrstreymi, minnir á gamalt slagorđ stjórnmálaflokks(a) - hverjir átta sig á ţví?). 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5
  • Slide4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 51
  • Sl. sólarhring: 112
  • Sl. viku: 1675
  • Frá upphafi: 2349635

Annađ

  • Innlit í dag: 46
  • Innlit sl. viku: 1517
  • Gestir í dag: 46
  • IP-tölur í dag: 43

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband