Enn um úrkomumet í október

Slatti af sólarhringsúrkomumetum féll á veðurstöðvunum í október og eru þau listuð í viðhenginu. Listinn hefst á sjálfvirku stöðvunum - mánaðarsólarhringsmet féllu þar á 19 stöðvum - þar af eru fimm ársmet (sólarhringsúrkoma hefur aldrei mælst meiri á stöðinni).

Rétt er að geta þess að einu sinni hefur sólarhringsúrkoma mælst meiri á Hvanneyri - en ekki á sjálfvirku stöðinni sem hér er miðað við. Gamla sólarhringsúrkomumetið þar (101,1 mm) er sannarlega orðið gamalt, sett 30. nóvember 1941. 

Þar fyrir neðan koma mönnuðu stöðvarnar, ný sólarhringsmet októbermánaðar urðu 9. Ársmetið féll aðeins á Setbergi á Snæfellsnesi. 

Neðst eru svo ný klukkustundarákefðarmet októbermánaðar - ekkert ársmet féll að þessu sinni. 

Það má taka eftir því að sólarhringsmetin voru flest sett þann 12., en ákefðarmetin 18. og 19. 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • w-blogg160625b
  • w-blogg160625a
  • Slide11
  • Slide10
  • Slide9

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 86
  • Sl. sólarhring: 121
  • Sl. viku: 1032
  • Frá upphafi: 2477311

Annað

  • Innlit í dag: 77
  • Innlit sl. viku: 910
  • Gestir í dag: 72
  • IP-tölur í dag: 72

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband