Rakt loft

Nú streymir mjög rakt loft langt úr suđri til landsins. Myndin hér ađ neđan er ţversniđ úr harmonie-líkaninu og gildir kl.13 síđdegis á morgun, ţriđjudag 11. október. Rétt er ađ vara viđ textanum hér ađ neđan - hann er snúinn og fullur af tungubrjótum. Lesendur beđnir um ađ taka honum af hógvćrđ og jafnlyndi - einfaldast kannski ađ sleppa ţví ađ lesa hann. 

w-blogg111016a

Ekki alveg auđveld aflestrar ţessi ţversniđ - en lóđrétti ásinn sýnir ţrýstihćđ, frá 1000 hPa neđst og upp í 250 hPa efst, frá sjávarmáli og upp í um 10 kílómetra hćđ. Legu lárétta ássins má sjá á smákortinu í efra hćgra horni. Ţađ sýnir Ísland, ţrýsting viđ sjávarmál og einnig má sjá línu sem liggur til norđurs yfir Vesturlandi - ţversniđiđ liggur eftir ţeirri línu - breiddarstig eru merkt á lárétta ás myndarinnar.

Ljósgráu blettirnir sýna fjöll sem línan liggur um - Snćfellsnes alveg neđst á miđri mynd - og síđan Vestfjarđafjöllin lengra til hćgri. 

Litir sýna rakastig. Ţađ er fremur óvenjulegt ađ dökkblár litur ţekur nćrri ţví allan myndflötinn - rakastig er ţar meira en 90 prósent. Heldregnar svartar línur tákna jafngildismćttishita og mćlir hann í Kelvinstigum. Ţar sem jafngildismćttishitinn lćkkar upp á viđ er loft annađ hvort óstöđugt eđa skilyrt óstöđugt - ţađ verđur óstöđugt sé hreyft viđ ţví. 

Óstöđuga (eđa skilyrt óstöđuga) lagiđ er ekki mjög ţykkt í ţessu ţversniđi - nćr ađeins upp í um 800 hPa (um 2 km hćđ). Ofan viđ ţá hćđ vex jafngildismćttishitinn ákveđiđ međ hćđ. Yfir Snćfellsnesi norđanverđu er mjótt grátt svćđi sem liggur ţar upp og niđur - ţar sjáum viđ niđurstreymi norđan fjalla á nesinu - ţađ léttir á rakamettun loftsins í sunnanáttinni sem ríkir á allri myndinni (en ekki er sýnd).

Ef vel er ađ gáđ má einnig sjá rauđar strikalínur - ţetta eru jafnrakalínur - ekki jafnrakastigslínur og mćla raka í grömmum vatnsgufu á hvert kíló lofts. Ađ jafnađi er talađ um eđlisraka međ ţessari einingu (ekki endilega gott orđ - en viđ látum hefđina trampa hér á okkur - jafneđlisrakalína og jafn-jafngildismćttishitalína eru ekki beinlínis ţjál orđ).

En hvađ er myndin svo ađ segja okkur? Jú, mjög rakt loft liggur viđ Vesturland - vćri vindur mjög hćgur myndi ţađ e.t.v. samt ekki endilega skila mikilli úrkomu - ţađ er fremur stöđugt - en úrkomumćtti ţess er mjög mikiđ. Ţvingi vindur ţađ til ađ lyftast yfir fjöll - og líkaniđ segir ađ ţađ muni gerast fellur mikil úrkoma úr ţví. - En annars stađar verđi hún e.t.v. ekki endilega mikil. 

En munum ađ líkön eru líkön - ekki raunveruleikinn sjálfur. 

Fyrir ţá sem vilja fletta upp hugtökum á netinu eđa í bókum eru alţjóđaheitin „equilvalent potential temperature“ = jafngildismćttishiti og „specific humidity“ = eđlisraki. 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 390
  • Sl. sólarhring: 494
  • Sl. viku: 1706
  • Frá upphafi: 2350175

Annađ

  • Innlit í dag: 350
  • Innlit sl. viku: 1553
  • Gestir í dag: 340
  • IP-tölur í dag: 328

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband