Óvenjuskýr ísmynd

Í dag sást vel til íssins í Grænlandssundi á myndum utan úr geimnum. Aðeins fáeinar háskýjaslæður voru þar á sveimi - en annars var skyggni sérlega gott. Myndin hér að neðan er klippt úr stærri og betri mynd á vef Veðurstofunnar - en skýrist nokkuð hér sé hún stækkuð (MODIS sunnudag 12. júní 2016, kl. 13:59).

modis_truecol_P_20160612_1225-klipp

Heldur er ísbreiðan gisin - en sérstaka athygli vekja ísrastir sem slitnað hafa langt austur úr henni og eru nú djúpt undan Húnaflóa - hafa greinilega lent út úr meginstraumnum sem liggur til suðvesturs um Grænlandssund og inn í straum sem liggur í öfuga átt. 

Þetta er reyndar furðulíkt því sem spáð var fyrir viku síðan að yrði í dag (sunnudag 12. júní) - en ritstjórinn hefur ekki séð nýrri spár. Sjávarhiti á þessum slóðum er almennt 6 til 8 stig, en ísinn ver sig (með því að fórna hluta af sér í bráðnun) og kælir í kring - en slík vörn er grunn og brestur um leið og vindur getur blandað kalda laginu saman við það sem undir er. - Að sögn eru rastirnar nú á hægri leið aftur til suðurs eða suðvesturs. 

Það er vonandi að þarna séu ekki líka sársvangir ísbirnir á ferð eins og um árið þegar svipuð staða kom upp. - En algengt er þetta.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Á sama tíma er mjög lítið um ís við austurströnd Grænlands til suðurs við þessa ísbreiðu. Flæði hafíssins suður eftir Grænlands hefur því eitthvað truflast. Væntanlega vegna sunnan og vestlægra vinda á Grænlandssundi fyrr í vor - eða vegna skorts á norðaustanátt.

Emil Hannes Valgeirsson, 13.6.2016 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 26
  • Sl. sólarhring: 225
  • Sl. viku: 1342
  • Frá upphafi: 2349811

Annað

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 1221
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband