Háþrýstivika framundan

Hér er auðvitað átt við loftþrýsting við sjávarmál - en hvað ætti það svosem að vera annað? Tíu daga þrýsti- og þrýstivikkort evrópureiknimiðstöðvarinnar sýnir þetta vel.

w-blogg290516a

Meðalþrýstingur næstu tíu daga (fram til 7. júní) er sýndur með heildregnum línum, en vik eru sýnd í lit. Hér á landi á tíudagavikið að vera meira en 12 hPa - og er það mikið á þessum tíma árs. Trúlegt er að neikvæða vikið mikla suður í hafi sé þó enn óvenjulegra. 

Þetta þýðir þó ekki að veðurlag sem þetta ríki alla dagana - á því eru alltaf einhver afbrigði - auk þess sem spáin getur verið röng. 

Háþrýstingurinn á að ná hámarki á miðvikudag-fimmtudag (1. eða 2. júní). Ritstjóranum finnst spár reiknimiðstöðva í hærra lagi, t.d. sú hér að neðan - en hún gildir um miðnætti á aðfaranótt fimmtudags. 

w-blogg290516b

Hæðin er hér sýnd 1038 hPa í miðju og 1036 hPa jafnþrýstilínan nær til Íslands. Þrýstingur fer mjög oft yfir 1030 hPa í júní á Íslandi eða rétt tæplega annað hvert ár. En svo glöggt stendur að hann hefur ekki nema 6 sinnum farið í meir en 1036 hPa síðustu 140 ár - Nítján ár eru síðan hann fór síðast í 1036 hPa í júní og þar áður þarf að fara til 1971 til að finna svo háa tölu.   

Háþrýstingur sem þessi er óþægilegur í júní. Hlýtt loft sem brýst til norðurslóða stuggar alltaf við heimaloftinu - því kalda - og það verður að koma sér undan. Rætist þessi háþrýstispá gerir t.d. leiðinda kuldakast í Norður-Noregi. Óljósara er hvað gerist hjá okkur í kjölfarið - við gætum alveg sloppið. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 108
  • Sl. sólarhring: 266
  • Sl. viku: 2350
  • Frá upphafi: 2348577

Annað

  • Innlit í dag: 96
  • Innlit sl. viku: 2059
  • Gestir í dag: 87
  • IP-tölur í dag: 87

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband