Um sjávarhita í Grímsey (ađ undanförnu og áđur)

Áđur fyrr á árunum mćldi Veđurstofan reglulega sjávarhita á nokkrum stöđvum í kringum landiđ. Danska veđurstofan (DMI) hafđi einnig látiđ gera ţađ á sinni tíđ. Ýmislegt - ţar á međal einhvers konar sparnađur - varđ til ţess ađ ţessar mćlingar hćttu og er svo komiđ ađ upplýsingar frá ađeins einni stöđ berast nú til Veđurstofunnar međ reglubundnum hćtti. - Eitthvađ mun Hafrannsóknastofnun hafa sinnt strandmćlingum á síđari árum og heldur vonandi utan um ţćr.

Fyrir allmörgum árum var sjávarhitamćlir tengdur veđurstöđinni í Grímsey og er byggt á ţeim í ţví sem hér fer á eftir - sem og eldri mćlingum frá stađnum. 

Byrjađ var ađ mćla sjávarhita í Grímsey 1874 og voru fyrstu tveir athugunarmennirnir ţar ástundunarsamir. En frá 1933 flosnuđu mćlingarnar upp ađ nokkru og mikiđ vantar í mćliröđina - ţó eru sprettir. Um sögu sjávarhitamćlinga Veđurstofunnar og DMI á Íslandi má lesa í ritgerđ ritstjóra hungurdiska sem Veđurstofan gaf út 2003. 

En mćlingar eru nú gerđar í Grímsey og rétt ađ minna á tilveru ţeirra. Viđ lítum á mánađameđalhita ţar á árunum 2014 og 2015/16. 

w-blogg060316b

Janúar og febrúar 2015 eru reyndar ekki međ á myndinni. Hún ćtti ađ skýra sig sjálf. Vetrarhitinn fór niđur í um 2 stig í báđum tilvikum, en en töluverđur munur er á sumarhita áranna tveggja. Í ágúst 2014 fór hann yfir 9 stig, en ekki nema um 7,5 stig ţađ sem hćst var áriđ eftir (2015). Öll götin mćliröđinni gera samanburđ viđ hefđbundin mćlitímabil erfiđ, en viđ skulum ţó reyna eitthvađ.

Í öllum tilvikum er tímabiliđ frá mars 2015 til og međ febrúar í ár, 2016, lagt til grundvallar. - Fyrst eru ţađ síđustu tíu árin á undan (2005 til 2014).

w-blogg060316a

Súlan lengst til hćgri sýnir áriđ, en hinar einstaka mánuđi. Sjávarhiti vetrarins liggur í međaltali síđustu tíu ára, síđastliđiđ haust var lítillega hlýrra en međaltaliđ, en vor og sumar kaldara, sérstaklega sumariđ. Á kalda tímabilinu voru lofthitavikin reyndar enn stćrri, lofthiti í júlí var t.d. -2,6 stigum undir međallagi, en -1,8 undir ţví í sjónum. 

En hvernig lítur ţetta út miđađ viđ fyrri tíma? - Nú verđum viđ ađ hafa í huga ađ óvissa er talsverđ í mćlingunum og ekki rétt ađ vera allt of ályktanafús.

Sýndur er samanburđur viđ fjögur tímabil og er hann settur upp á sama hátt og á myndinni hér ađ ofan. - Myndin batnar og skýrist sé hún stćkkuđ.

w-blogg060316c

Efst til vinstri er hiti síđastliđins árs borinn saman viđ hita áranna 1926 til 1932, en ţá var sjór sérlega hlýr viđ Grímsey. Vikin minna á samanburđinn viđ síđustu tíu ár. Sjávarhiti er nú hćrri en hann var ađ međaltali bćđi haust og vetur samanburđarárin, en sumar- og vorhiti lćgri - mjög ámóta og fyrri myndin sýndi. 

Ţar fyrir neđan - neđst til vinstri er boriđ saman viđ sjö köld hafísár á 19. öld, 1882 til 1888. Síđastliđiđ ár var mun hlýrra í öllum mánuđum heldur en var á kuldatímanum. 

Efst til hćgri er boriđ saman viđ hafísárin svokölluđu, 1965 til 1971. Síđastliđnir 12 mánuđir hafa veriđ hlýrri en öll međaltöl ţeirra ára, sáralitlu munar ţó í júlí og ágúst. Fara ţarf aftur til júlí 2002 til ađ finna jafnkaldan júlímánuđ og 2015 og aftur til 1998 til ađ finna jafnkaldan ágúst. 

Síđasta myndin sýnir einmitt samanburđ viđ síđustu sjö árin áđur en sjávarhlýindin miklu hófust. Allir mánuđir síđastliđins árs hafa veriđ hlýrri í sjó í Grímsey heldur en međaltal áranna 1991 til 1998, nema júlí og ágúst. 

Viđ bíđum auđvitađ spennt eftir sumrinu 2016 - en tökum aftur eftir ţví ađ nýliđnir janúar og febrúar voru í međallagi síđustu tíu ára - og hlýrri en sömu mánuđir á öllum ţeim tímabilum sem hér voru undir. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 13
  • Sl. sólarhring: 483
  • Sl. viku: 2255
  • Frá upphafi: 2348482

Annađ

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 1974
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband