Af stöðu 10-ára hitameðaltala

Á dögunum var á þessum vettvangi fjallað um stöðu 30-ára hitameðaltala einstakra mánaða. Niðurstaðan var sú að meðalhiti síðustu 30-ára hefði að undanförnu orðið hærri en vitað er um áður í 5 af 12 mánuðum ársins. 

Nú er komið að ámóta samanburði fyrir 10-ára meðaltöl mánaðanna. Allar tölur úr mælingum í Stykkishólmi.

Lestur þessa pistils krefst sennilega nokkurrar athygli og jafnvel hugsunar - ekki víst að allir nenni að standa í slíku - ritstjórinn skilur það viðhorf - en þeir sem vilja lesa eru boðnir velkomnir.

sth-10-ar_max21-max20

Jákvæð gildi tákna að „nýi tíminn“ hefur staðið sig betur hvað hlýindi varðar heldur en sá gamli. Ársmeðalhiti tíu ára (lengst til hægri) hefur orðið 0,4 stigum hærri nú en hann var hæstur áður. Átta mánuðir hafa „toppað“ gamla tímann, en fjórir sitja „enn“ eftir. Merkilegt er að það skuli vera haust og vor. Ekki munar miklu í september - en miklu í október - og ekki hefur maí staðið sig sem skyldi. 

Fjórir mánuðir, mars, apríl, júlí og ágúst áttu sín hæstu tíu ár 2003 til 2012 - og árið sömuleiðis, janúar var hlýjastur á árabilinu 2006 til 2015, febrúar 2005 til 2014 og desember 2001 til 2010. Maí var hins vegar hlýjastur á árunum 1927 til 1936 (býsna langt síðan), september á árunum 1930 til 1939, október 1956 til 1965 og nóvember 1952 til 1961.

Lítillega hefur sem sagt kólnað síðan 2012 - sé miðað við 10-ára meðaltöl. En hversu mikið? Næsta mynd sýnir það.

sth-10-ar_nu-max21

Af myndinni sjáum við reyndar strax að september, október og nóvember hafa aldrei verið hlýrri á nýja hlýskeiðinu en einmitt síðustu tíu árin (munurinn á stöðunni nú og þeirri hlýjustu er núll). Þeir hafa því hlýnað á síðustu árum. Mest hefur kólnað í desember - enda toppaði hann á undan hinum mánuðunum. 

Síðasta mynd pistilsins sýnir síðan muninn á stöðunni nú og hæstu stöðu gamla tímans.

sth-10-ar_max20-nu

Þrátt fyrir lítilsháttar kólnun eru fimm mánuðir (og árið allt líka) enn hlýrri en hlýjast varð á fyrra hlýskeiði.

Ekkert segir þetta okkur um framtíðina - hún er óráðin sem fyrr. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Ég er aðeins heftur í að grafa upp upplýsingar um þessi hitastig en hvernig lítur t.a.m. Litla Ávík (eða Strandirnar) út síðustu 10 ár (meðaltal) miðað við tímabilið 1978 - 1988 ? Tímabilið apríl - júli er það sem ég er að höggva eftir.

Ef horft er á meðaltal þessara tveggja tíu ára tímabila í samanburði við meðaltal sama tímabils síðustu þrjú ár, hvernig lítur það út?

kv.

Sindri Karl Sigurðsson, 3.3.2016 kl. 23:31

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Hef nákvæmt svar ekki á hraðbergi, en mér sýnist í fljótu bragði að þessi tími árs hafi síðustu 3 árin verið um 0,4 stigum kaldari í Litlu-Ávík en næstu tíu árin þar á undan, en um 0,8 stigum hlýrri en sömu mánuðir 1978 til 1988. En var athugað í Litlu-Ávík á fyrra tímabilinu heldur á Gjögri og athuganir þessara tveggja stöðva hafa ekki enn verið samræmdar. Athuganir á Gjögurflugvelli benda þó til þess að munurinn sé ekki mikill - en hann er einhver. 

Trausti Jónsson, 4.3.2016 kl. 00:37

3 identicon

einsog tilfiníngin er. maí virðist hafa verið leiðinlegur slæmt fyrir skepnur. því skulum við vona að eðlilegur vetur þrátt fyrir nokkur stórviðri að vorið verði eðlilegt.því góðir vetrar virðast ekki þýða góð vor því miður. því vil ég heldur vetur jan-apríl maður þarf hvort sem er að géfa skepnum. heldur en vor í jan-apríl að fá vetur í apríl og maí er lít spenandi. ef veður hækkar um 2.gráður mun það þýða snjólausan vetur ef úr rætist þarf það að þýða mýnkun jökla skilst að jöklar hafi hækkað allra seinustu ár þrátt fyrir hitan því rigníng á láglendi gétur verið snjókoma á jöklum 

kristinn geir steindórsson briem (IP-tala skráð) 4.3.2016 kl. 11:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 33
  • Sl. sólarhring: 140
  • Sl. viku: 1782
  • Frá upphafi: 2348660

Annað

  • Innlit í dag: 31
  • Innlit sl. viku: 1561
  • Gestir í dag: 31
  • IP-tölur í dag: 31

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband