8.1.2016 | 00:02
Nýtt met (aðeins fyrir áhugasama)
Munur á ársmeðalhita í Vestmannaeyjum og í Grímsey er nú með allra minnsta móti. Samanburður nær allt aftur til ársins 1874. Það gerðist árið 2015 að 12-mánaða keðjumeðaltal munarins fór í fyrsta sinn niður fyrir 1,0 stig.
Lóðrétti ásinn á myndinni sýnir hitamuninn milli staðanna, en sá lárétti tímann frá 1874. Grái ferillinn markar 12-mánaða keðjumeðaltölin - þau sveiflast frá hámarkinu 1881 (5,65 stig) og niður í nýja lágmarkið (0,96 stig). Rauði ferillinn sýnir 10-ára keðjumeðaltöl - er núna í því minnsta sem þekkst hefur, en þó ómarktækt lægra en á árunum 1984 til 1993.
Almennt hefur munur hita þessara staða minnkað um 1 stig á þessum 140 árum sem myndin sýnir. Á þeim búti 19. aldar sem við sjáum var munurinn um 3 stig - en sveiflaðist mjög frá ári til árs. - en hefur lengst af verið 2,0 til 2,5 stig á síðustu áratugum.
Þeir sem kunnugir eru almennri veðurfarssögu tímabilsins átta sig strax á því að að á 19. aldarskeiðinu var lengst af mikill hafís hér við land - og að hann var viðloðandi fram undir 1920. Sömuleiðis að mikill hafís var líka hér um og eftir miðjan 7. áratuginn - einmitt þegar hitamunur staðanna tveggja náði aftur nítjándualdargildum í nokkur ár.
Nærveru hafíssins gætir mun meira í hita í Grímsey heldur en í Vestmannaeyjum. Nú - á það má benda að árið 1943 sýnir einnig tímabundinn hámarksmun - þá og fleiri ár um þær mundir var reyndar talsverður hafís undan Norðurlandi. Ritstjóri hungurdiska hefur stundum leyft sér að tala um litlu-hafísárin í því sambandi (en það er reyndar á mörkum velsæmis). - Og íss varð líka vart í nokkrum mæli nærri tímabundna hámarkinu 1998.
En nú er munurinn sem sagt í algjöru lágmarki - það er helst að 1984 jafnist á við núverandi ástand.
Næsta mynd ber saman 10-ára keðjuna á myndinni að ofan við 10-ára keðjur hita í Stykkishólmi.
Kvarðinn til vinstri - og blái ferillinn sýnir sömu línu og rauði ferillinn á fyrri mynd - nema hvað kvarðinn hefur verið belgdur út - sveiflurnar sýnast því stærri. Tíminn fyrir 1920 er sér á parti í um 2,9 stigum - síðan tekur við skeið með um 2,4 stigum - fram yfir litlu-hafísárin. Þá dettur munurinn niður undir 2 stig um skamma hríð á 6. áratugnum - en vex síðan aftur upp í nítjándualdarástand - en aðeins fáein ár og hrapar síðan aftur niður í um 2,2 stig. Sjá má tvö lágmörk - hin áðurnefndu á 9. áratugnum - og svo aftur nú.
Kvarðinn til hægri - og grái ferillinn sýna hitann í Stykkishólmi. Hlýskeiðið mikla 1925 til 1965 fellur vel saman við lágmark bláa ferilsins á sama tíma. Þó er hægt að klóra sér í höfðinu yfir smáatriðum, sjötti áratugurinn með sínu sérlega lágmarki bláa ferilsins var kaldari en sá fjórði - með hóflegri stöðu þess bláa.
Á köldu árunum frá 1979 og fram yfir 1990 var hitamunur Vestmannaeyja og Grímseyjar minni en var almennt á hlýskeiðinu fyrr á öldinni - og hefur verið svipaður síðan - þrátt fyrir mikla hlýnun síðan þá. Kuldaskeiðið 1965 til 1995 skiptist nefnilega í nokkra hluta - gjörólíka veðurfarslega - þrátt fyrir að hiti væri lágur mestallan tímann. Skeiðið skiptist í þrjú skemmri kuldaskeið - ólík innbyrðis. Aðeins eitt þeirra færði okkur hafís - og þar með sérlega kulda við Norður- og Austurland - hin voru frekar af vestrænum uppruna.
Þetta undirstrikar mikið höfuðatriði veðurfarsfræða - hitinn mælir ekki veðurfar einn og sér. Að baki tölunnar 4,0 stig (svo dæmi sé tekið) býr alls ekkert sama veðurlag í hvert sinn sem hún kemur upp. Það er nánast fásinna (kannski fullsterkt orð) að halda að hlýindi framtíðar séu einhver veðurfarsleg endurtekning á hlýindum fortíðar (eða kuldi vilji menn nota hann frekar sem framtíðarsýn). Hvert skeið er með sínum nánast einstaka hætti - allt eftir því hvað veldur/ræður veðri þess.
Það sem hefur ákveðið hina óvenjulegu stöðu nú er að fyrir norðan land hefur verið (og er enn) óvenjuhlýtt - en fyrir suðvestan land óvenjukalt. Norðanáttin hefur verið með hlýrra móti (þótt þrálát hafi verið) - en suðvestanáttin frekar kalsöm (algeng síðastliðinn vetur - en lítið síðan).
Þess má að lokum geta að hitabrattinn sem þykktin mælir - (hún sýnir hita í neðri hluta veðrahvolfs) er í langtímameðaltölum um 0,6 stig á breiddargráðu hér við land. Breiddarmunur Vestmannaeyja og Grímseyjar er um 3,1 stig - sem segir að eðlilegur hitamunur staðanna tveggja sé tæp 2 stig - eða svipaður og hann hefur verið síðustu áratugina (jafnvel aðeins minni en algengast hefur verið). En - Ísland stíflar norðanáttina - beinir henni um Grænlandssund - eða austur fyrir land. Því er eðlilegt að búast við því að hitamunur sé meiri yfir landið heldur en hið almenna ástand í neðri hluta veðrahvolfs segir til um - landið suðvestanvert er í skjóli fyrir mesta norðankuldanum.
Þykktarbrattinn á svæðinu virðist reyndar hafa farið minnkandi líka - en við vitum enn ekki nægilega vel um áhrif hafíssins á hita ofan jaðarlagsins til að geta fullyrt um áhrif hafíssmagns fyrir norðan land á vestanvindabeltið. Talsvert vantar upp á að líkanendurgreiningar þær sem gerðar hafa verið fyrir hafístímann fyrir 1920 séu alveg trúverðugar hvað þykktina varðar.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 82
- Sl. sólarhring: 380
- Sl. viku: 2404
- Frá upphafi: 2413838
Annað
- Innlit í dag: 78
- Innlit sl. viku: 2219
- Gestir í dag: 76
- IP-tölur í dag: 76
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Gott að fá staðfestingu á því sem manni hefur fundist vera síðustu árin. Norðanáttin tiltölulega mild og jafnvel á Norðurlandi orðið algengt að rigni eða slyddi yfir vetrarmánuðina úr noðri. Nánast er hægt að fullyrða að fyrir 25 árum eða svo gerðist það sárasjaldan. Í norðanátt var snjókoma á vetrum og hlákur komu í sunnanátt.
Hjalti Þórðarson (IP-tala skráð) 8.1.2016 kl. 13:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.