Af hlýjum september

Eins og fram hefur komið í frétt á vef Veðurstofunnar var september hlýr að þessu sinni, reyndar svipaður og september í fyrra sé litið á landið í heild. Landsmeðalhiti í byggð, sem ritstjóri hungurdiska reiknar sér til hugarhægðar, var +8,9 stig [9,0 stig í fyrra] og þar með í 12. hlýjasta sæti septemberhita aftur til 1874. 

Hlýindin stöfuðu af óvenjusterkri sunnanátt í háloftunum. 

w-blogg021015b

Kortið sýnir meðalhæð 500 hPa-flatarins í september (heildregnar línur), en litirnir sýna hæðarvik miðað við tímabilið 1981 til 2010. Jákvæðu vikin eru mest fyrir norðan og norðaustan land og sýnir lögun jafnvikalínanna að loftið á sér sterkari austrænan þátt en venjulegt er. 

w-blogg021015a

Hlýindin hér á landi eru hluti mikilla hlýinda yfir norðaustanverðu Atlantshafi og norðanverðri Skandinavíu - en kalt hefur verið suður í Frakklandi og þar vestan við. Vestan Grænlands hefur hiti verið lítillega undir meðallagi. Litirnir á kortinu sýna hitavik í 850 hPa-fletinum - í um 1400 metra hæð. Jafnþrýstilínur mánaðarins eru heildregnar. 

Hitavikin eru mest nærri Jan Mayen, milli 4 og 5 stig. Þar eru þykktarvikin á svæðinu einnig mest, samsvarar vik þeirra (ekki sýnt hér) tæpum 4 stigum. - Norska veðurstofan er í dag á fullu við að sinna illviðri sem þeir kalla „Roar“ og septembermeðalhiti á Jan Mayen hefur ekki birst á vef hennar ennþá. 

En meðalþykkt septembermánaðar yfir landinu var 5448 metrar - þetta er reyndar mesta mánaðarþykkt ársins - rétt ofan við meðalþykkt ágústmánaðar. 

Sú varð líka raunin að september varð hlýjasti mánuður ársins á 47 sjálfvirkum veðurstöðvum - og á 23 af stöðvum vegagerðarinnar. Það er harla óvenjulegt að september sé hlýjasti mánuður ársins - gerist ekki nema endrum og sinnum, en helst þó á annesjum á Austfjörðum. Í viðhenginu er listi sem sýnir á hvaða stöðvum september var hlýjastur mánaða í ár.

Þar má einnig sjá lista um eldri tilvik. 

Það er ekki nema einu sinni sem september hefur verið hlýjasti mánuður ársins á landinu í heild. Það var árið 1958, og mánuðurinn varð þá sá hlýjasti á árinu á 45 stöðvum - enn hærra hlutfall en nú. September 1941 varð líka víða hlýjasti mánuður ársins. Í Reykjavík hefur september aðeins einu sinni verið hlýjasti mánuður ársins, það var 1877 - en þá var hann líka hlýjastur í Stykkishólmi, í Grímsey og í Papey.

Það er aðeins 1958 sem september hefur verið hlýjasti mánuður ársins á Akureyri. September nú var hlýrri en bæði júní og júlí á Akureyri og er aðeins vitað um þrjú slík tilvik áður, 1939, 1958 og 1993. 

Það hefur aðeins gerst þrisvar að október hefur orðið hlýjasti mánuður ársins á íslenskri veðurstöð, í Grímsey og í Kjörvogi í Árneshreppi 1882, og í Grímsey 1915. 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stundum er nú hægt að tala um eitthvað annað en hlýindi þegar veðrið er annars vegar.

September í ár sker sig nefnilega ekki svo mjög úr öðrum septembermánuðum á þessari öld. Þetta er níundi septembermánuður á öldinni hér í Reykjavík sem fer yfir 9 stigin (9 af 15). Tveir septembermánuðir fór yfir 10 stigin (2006 og 2010).

Það sem vekur hins vegar athygli mína er hve þungbúið hefur verið og úrkomusamt hér syðra.

Hér í borginni rigndi í 18 daga af 30 (sem er helmingi fleiri úrkomudagar en í meðalári). 

Reyndar komu einnig þrír stormdagar í mánuðinum, þar af eitt ofsaveður, svo það er spurning hve hagstætt tíðarfarið hefur verið í mánuðinum!

En eins og svo oft áður hefur verið sagt:

Rok og rigning í huga almennings merkir hlýindi í máli veðurfræðinganna!

 

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 2.10.2015 kl. 07:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 23
  • Sl. sólarhring: 111
  • Sl. viku: 1514
  • Frá upphafi: 2348759

Annað

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 1320
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband