Kólnar lítillega - en líklega aðeins í bili

Líklega sækir kaldara loft úr norðri og vestri að landinu næstu daga - minnir á haustið.

Kortið sýnir ástandið í 500 hPa-fletinum og þykktina kl. 6 á laugardagsmorgun. 

w-blogg011015a

Jafnhæðarlínur eru heildregnar, því þéttari sem þær eru því meiri er vindurinn í fletinum. Litir sýna þykktina, því meiri sem hún er því hlýrra er í neðri hluta veðrahvolfs. Lítið hefur hér sést af bláa litnum til þessa - en hér þekur hann allt landið. Hann markar möguleika á næturfrosti víða um land og ef úrkoma fellur þar verður hún víðast í föstu formi. En þetta telst samt bærilegt haustveður.

Á þriðjudaginn hefur staðan breyst.

w-blogg011015b

Hér er orðin mikil breyting. Gríðarvíðáttumikil lægð er fyrir sunnan land og beinir til okkar mjög hlýju loft - þykktin er meiri en 5520 metrar þar sem mest er yfir landinu. - Dugir í meir en 15 stiga hita þar sem best lætur - og eindregna austlæga átt.  

Bandarískir austurstrandarveðurfræðingar búa nú við mikinn efa varðandi fellibylinn Joaquin - allar spár - nema evrópureiknimiðstöðin senda bylinn á land í Bandaríkjunum - en sú evrópska vill frekar fá hann til sín (til Bretlands) - skaðalaust austur um hafið - þetta er ábyggilega hið svæsnasta mál hjá spáveðurfræðingum og almannavarnayfirvöldum, hvort sem úr verður eða ekki - ný kynslóð kollega fær ómetanlega reynslu. En mikið er bloggað og tístað - 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 44
  • Sl. sólarhring: 347
  • Sl. viku: 2760
  • Frá upphafi: 2378336

Annað

  • Innlit í dag: 41
  • Innlit sl. viku: 2448
  • Gestir í dag: 41
  • IP-tölur í dag: 41

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband