10.7.2015 | 02:18
Fórnarlömb troðnings
Þó svo sé að heyra að höfuðborgarbúar og nærsveitamenn séu nokkuð ánægðir með veðrið undanfarna daga er því ekki að neita að kalt er í veðri á landinu í heild. Reyndar var það svo að hiti var ofan meðallags síðustu tíu ára á aðeins einni veðurstöð í dag, á Patreksfirði. Á veðurstofutúni var hitinn -0.8 stigum undir meðallagi og -1,0 stigum undir því við Korpu. Kuldinn fyrir norðan er ískyggilegur, við Mývatn var hann -5,4 stigum undir meðallagi, meðalhiti sólarhringsins aðeins +4,1 stig og hámarkshiti dagsins 7,4 stig.
Ástæða kuldans er kuldapollur sem hörfað hefur undan troðningshlýindum á norðurslóðum. Þetta sést vel á kortinu hér að neðan. Það er frá bandarísku veðurstofunni og sýnir spá um hæð 500 hPa-flatarins og þykktina um hádegi á laugardag (11. júlí).
Norðurskautið er ekki fjarri miðju myndar, en Ísland sést neðst á henni. Heildregnu línurnar sýna hæð 500 hPa-flatarins - en litir þykktina. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs, því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Á heimskautaslóðum eru hlýindin þó sýnd veiði frekar en gefin - því undir liggur gjarnan þunnt lag af köldu lofti yfir ísbreiðum eða köldum sjó.
Á landi er meiri von um hlýindi, í gær (8, júlí) mun hiti t.d. hafa farið í 20,4 stig á Norðvesturgrænlandi í byggðarkjarnanum Qaanaaq, þeim stað sem við köllum gjarnan Thule. Svo vel vildi til að danadrottning var þar í heimsókn. Vindur stóð af fjalli um tíma - en fór niður undir frostmark þegar skipti um. Tengill í frétt má finna á fjasbókarsíðunni opnu, svækjusumar, þar sem ritstjóri hungurdiska (og vinsamlegir hópbúar) setja stundum inn tengla á fréttir tengdar hitum og slíku í útlöndum. Ritstjórinn veit ekki hvort stigin 20,4 eru met - það kemur vonandi í ljós síðar. Spáin fyrir Thulesvæðið er hlýindaleg áfram - þykktin á kortinu er þar um 5580 metrar - það þætti okkur vænt um að fá hingað.
En hlýindatroðningur norðurslóða ryður kalda loftinu úr heimkynnum sínum suður til okkar. Á laugardaginn er versti kuldinn þó kominn vestur fyrir land eins og sjá má á dökkgræna svæði kortsins - en mildari fölgrænn litur liggur yfir landinu. Að meðaltali eigum við þó að vera inni í þeim sandgula í júlí. Kuldinn hefur einnig hörfað til annarra átta í kringum íshafið.
En - þótt eitthvað hlýni er samt ekki von á verulega hlýju lofti í bráð.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 158
- Sl. sólarhring: 203
- Sl. viku: 2079
- Frá upphafi: 2412743
Annað
- Innlit í dag: 150
- Innlit sl. viku: 1824
- Gestir í dag: 138
- IP-tölur í dag: 131
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.