8.7.2015 | 02:39
Enn eitt sjávarhitakortið
Það er sannarlega verið að bera í bakkafullan vefheimalækinn með því að birta sjávarhitavikakort úr öðrum heimshlutum hér á hungurdiskum - en ritstjórinn lætur sig hafa það að þessu sinni (og vill ekki einu sinni loft því að gera það aldrei aftur).
Gulir og brúnir litir sýna jákvæð vik - gríðarleg hlýindi eru í austanverðu Kyrrahafi. Þar er margfrægur El nino nærri miðbaug - einhver stríðnissvipur samt á drengnum - svo margir hafa svo oft orðið sér til svo mikillar skammar við elninospár að mikil varkárni einkennir alla nema þá reynslulausu (eða fífldjörfu). Við vesturströnd N-Ameríku eru jafnvel enn stærri vik - hlýr blettur sem þarlendir hafa kosið að kalla The Blob (aldrei orðavant þar vestra). Orðabókin þýðir það sem klessan (enginn stór stafur á íslenskum lager hungurdiska) - og vísar ef til vill til amerískra vísindahrollvekja sjötta áratugarins - [hér átti að koma kafli um hrun íslenskrar menningar - en yfirritstjórinn klippti hann út].
Á Atlantshafi er mynstrið allt annað. Mjög hlýtt er í norðurhöfum fyrir norðan Ísland og þaðan langt austur í Barents- og Karahöf. Vindur sem blæs þaðan er samt ekkert sérlega hlýr - frekar en venjulega - en væri enn kaldari ef sjórinn væri það.
Suður í hafi er kalt - það er að segja kaldara en venjulega - blái liturinn byrjar við -2 stig. Strandsævi Evrópu eru mjög hlý og eins er nokkuð hlýtt undir Asóreyjahæðinni. Þar sunnan við - á staðvindasvæðinu er aftur óvenju kalt. Suðurvængur Asóreyjahæðarinnar hefur að sögn verið mun öflugri en venjulegast er - sjávarmálsþrýstingur í hæstu hæðum - það hefur styrkt staðvindana og blandast yfirborðssjór sem sífellt er að hlýna í sólinni jafnharðan kaldari sjó undir. Þetta vilja menn kenna fjarhrifum (teleconnection) elnino sem valdi niðurstreymi á þessum slóðum. Við viljum trúa því (enda er það góð uppástunga).
Eins og venjulega finnst manni að þessi mynstur kortsins muni standa að eilífu - en svo verða breytingarnar furðuhraðar þegar að þeim kemur - eins og venjulega.
Reiknilíkön reyna að spá - en þeim er í reynd oftast lítið að treysta - sum segja að El nino styrkist fram að áramótum - en málpípur annarra klóra sér í hausnum - og enn fleiri klóra sér yfir kyrrahafsklessunni - sem enginn virðist vita hvað verður um.
Í Atlantshafi er helst talið að mynstrið annað hvort haldi sér að mestu næstu mánuði - eða það dofni - frekar en að það fari að snúast við eða taka upp á öðrum kúnstum. Strandsjávarhlýindin eru að vísu veigalítil - og geta horfið á mjög stuttum tíma.
Rétt er að taka fram að bláu svæðin nyrst og syðst á kortinu sýna hafís heimskautaslóða - en ekki hitavik.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 31
- Sl. sólarhring: 257
- Sl. viku: 1826
- Frá upphafi: 2412846
Annað
- Innlit í dag: 28
- Innlit sl. viku: 1628
- Gestir í dag: 28
- IP-tölur í dag: 28
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
The Blob, er PDO í jákvæðum fasa, þannig að líklegt að heimshitametið frá '98 falli í ár eða á næsta með sterkum El Nino og PDO í +.
Hermundur Sigurdsson (IP-tala skráð) 8.7.2015 kl. 21:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.