Óþægilega kalt áfram

Það er ekkert lát að sjá á kuldanum - jú, sólin gerir sitt - og svo eru stöku dagar betri en aðrir. Vestanhryðjan sem gekk yfir landið í gær (8. júní) var með snarpara móti um landið norðanvert - vindhraðamet júnímánaðar féllu á fjölmörgum stöðvum - en mæliraðirnar eru ekki mjög langar og því ekki rétt að gera allt of mikið úr.

En á eftir vestanátt snýst vindur oft til norðurs, hækkar á, eins og sagt var. Til allrar hamingju gerist það ekki með neinum látum að þessu sinni - því loftið sem kemur að norðan er kalt - svo kalt að það nægði í hríð niður í sveitir - væri vindur og úrkomuákefð meiri en raunin virðist ætla að verða. Þannig að vonandi sleppur það - en næturfrost er yfirvofandi víða inn til landsins. 

w-blogg100615a

Kortið sýnir spá evrópureiknimiðstöðvarinnar um hæð 500 hPa-flatarins og þykktina síðdegis á fimmtudag, 11. júní. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs og gefur einnig góðar vísbendingar um hita í mannheimum. 

Meðalþykkt í júní yfir landinu er um 5440 metrar. Á bláa svæðinu sem snertir norðurströndina er hún hins vegar aðeins 5280 metrar, 160 metrum undir meðallagi - það reiknast sem 8 stig - sem hiti í neðri hluta veðrahvolfs er undir meðallagi. Ekki fáum við það högg af fullum þunga - en 4 til 5 stig undir meðallagi gæti verið nærri sanni. 

Þetta er að vísu kaldasti dagurinn í sjónmáli - það á að hlýna verulega strax eftir helgi - þau hlýindi eiga þó að standa stutt við - en færa okkur þó rigningu og leysingu til fjalla. 

Kortið hér að neðan sýnir stöðuna um hádegi á þriðjudag - að mati evrópureiknimiðstöðvarinnar.

w-blogg100615b

Þetta er miklu hlýrra. Þykktin yfir miðju landi er um 5530 metrar - 90 metrum yfir meðallagi júnímánaðar og hlýja tungan gefur möguleika á fyrsta 20 stiga hita ársins - þá um landið norðan- eða austanvert. En - eins og áður sagði stendur þetta stutt við. Lægðin er á hraðferð - og við sjáum líka í næstu bylgju á eftir. 

Gömul fræði segja von á viðvarandi umhleypingum svo lengi sem vindur gengur um vestur til norðurs á eftir lægðunum. Hins vegar var meiri von um breytingu „gengi hann öfugur upp í“ - eins og sagt var - úr suðri um austur til landnorðurs eða norðurs. Slík hegðan bendir til þess að háloftabylgjurnar fari fyrir sunnan land - heimskautaröstin og umhleypingar hennar fjarlægist. Það er mikið að marka þessa gömlu reynslureglu - sem og margar fleiri. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"gömul reinsluregla" þær eru góðar mér finst þettað gött veður ekki of blautt og ekki of þurt. mýið komið. menn géta deilt um hitan.um þessi hita og kuldatímabil sem koma með reglulegu millibili. gétur verið að grænlandjökull minki það mikið á hitatímabilunum að kuldaboli komist yfir hann sem síðan veldur kulda sem hækkar aftur jökulinn þangað til kuldaboli kemst ekki yfir hann þá hlíni aftur.  hlínar á norðanverðu kanada ef það kólnar hér 

kristinn geir steindórsson briem (IP-tala skráð) 10.6.2015 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 20
  • Sl. sólarhring: 344
  • Sl. viku: 1594
  • Frá upphafi: 2350221

Annað

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 1467
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband