Undir háloftaröstinni

Nú gengur allsnörp suðvestanátt yfir landið. Hún fylgir mikilli vindröst í háloftunum - miðað við árstíma. 

w-blogg080615a

Hér má sjá spá evrópureiknimiðstöðvarinnar um hæð 300 hPa-flatarins og vind í honum seint á mánudagskvöld. Vindur í röstinni miðri (skotvindi hennar) er meiri en 60 m/s. Hes rastarinnar teygir sig í átt til jarðar - þar sem bylgjur yfir fjöllum geta dregið vind niður í átt til jarðar. Því er spáð stormi sums staðar á hálendinu og jafnvel norðan og austan fjalla - einstakar hviður geta sömuleiðis gert sig gildandi. 

Þótt ekki sé hægt að segja að þetta sé beinlínis óvenjulegt að sumarlagi viljum við samt helst ekki sjá kerfi af þessu tagi. Norðanáttin sem gjarnan fylgir í kjölfar þeirra er líka oft afleit - en við virðumst eiga að sleppa sæmilega að þessu sinni - nema hvað kalt verður áfram. 

Einnig má telja happ(?) hvað laufgun trjáa er stutt á veg komin - hvöss suðvestanátt og selta fara aldrei vel með fallegar laufkrónur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég þarf að taka á öllu mínu til að fella mig við jákvæðnina. Það þarf súperpollyönnu til að sjá einhverja silfurbryddingu á þessum ósköpum. ;)

Jón Steinar Ragnarsson, 8.6.2015 kl. 15:19

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Viðvarandi kuldinn er miklu verri en þessi fjósgola!

Sigurður Þór Guðjónsson, 8.6.2015 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 399
  • Frá upphafi: 2343312

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 361
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband