20.4.2015 | 01:30
Kuldi úr Norður-Íshafi
Það svala loft sem hefur verið að heimsækja okkur í vetur hefur aðallega verið ættað frá Kanada. Nú bregður svo við að norrænn kuldi virðist ætla að heimsækja okkur í hörpubyrjun.
Það er reyndar oft þannig að þegar vestanáttin í háloftunum skiptir í vorgírinn - og breytist reyndar í austanátt ofan við 20 km hæð - kemur los á ört minnkandi kuldapolla í norðurhöfum og þeir taka á rás suður á bóginn - stundum til okkar - stundum til Skandinavíu eða eitthvað annað. Tímabilið frá því um 20. apríl til 20. maí er þrýstingur að meðaltali hæstur hér á landi og norðanátt algeng.
Síðasta vika (13. til 19. apríl) hefur verið hlý - sérstaklega þó síðustu þrír dagarnir um norðaustan- og austanvert landið. Hæð hefur verið nærri Bretlandseyjum og hefur hún beint til okkar hlýju lofti. Nú á að skera á sunnanáttina - það fer að kólna strax á morgun (mánudaginn 20.) - en lægðardrag sem fer hjá á aðfaranótt miðvikudags markar upphaf kuldans.
Kortið að neðan er sjávarmálsspá evrópureiknimiðstöðvarinnar sem gildir kl. 18 síðdegis á miðvikudag 22. apríl.
Umrætt lægðardrag er komið til Vestur-Noregs (lægðir af þessu tagi eru í sérstöku uppáhaldi hjá ritstjóra hungurdiska - en það er önnur saga). Hér er vestanátt enn ríkjandi á landinu. Það er -5 stiga jafnhitalínan í 850 hPa sem liggur með suðurströndinni, en -10 jafnhitalínan er ekki langt fyrir norðan land.
Þetta er ekki óvenjulegt á þessum árstíma - hér er hretið varla byrjað. En norðanáttin sækir að. Hæðin við Norðvestur-Grænland er mjög öflug, hér komin yfir 1040 hPa. Evrópureiknimiðstöðin ætlar með hana upp fyrir 1050 hPa á fimmtudag (þá utan við svæðið sem þetta kort sýnir) - orðið óvenjulegt reynist það rétt.
Norðanáttin sem er fyrir norðan landið sýnist ekki mjög ógnandi öflug - jú, við sjáum -15 stiga jafnhitalínuna - en rétt norðan við kortið er mjög snarpur kuldapollur, sá kaldasti á norðurhveli öllu um þessar mundir. Í honum miðjum er spáð meir en -25 stiga frosti í 850 hPa á miðvikudaginn.
Við látum bandarísku veðurstofuna sýna okkur kuldapollinn - kortið gildir á sama tíma og kortið að ofan, kl. 18 síðdegis á miðvikudag.
Kortið sýnir norðurhjarann - Ísland er alveg neðst á myndinni, norðurskautið nærri miðri mynd. Kuldapollurinn - er við norðausturhorn Grænlands. Heildregnar línur sýna hæð 500 hPa-flatarins en litir þykktina. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs.
Mörkin á milli grænna og blárra lita eru við 5280 metra, sú þykkt er mjög algeng í apríl - en við kveinum aðeins undan henni þegar líður á maí. Örin sýnir áætlaða leið kuldans, fjólublái liturinn lifir ekki af ferðina til Íslands - enda eins gott. Þar er þykktin minni en 4920 metrar og fer sárasjaldan niður fyrir það hér á landi - þótt hávetur sé.
Báðar reiknimiðstöðvar, sú bandaríska og sú evrópska segja þykktina fara niður fyrir 5000 metra hér á landi á aðfaranótt laugardags. Það eru einhver örfá gömul dæmi um slíkt á þessum tíma árs í gögnum, svo fá, að þessar miklu svartsýnisspár reiknimiðstöðvanna sýnast beinlínis ótrúverðugar.
En við bíðum auðvitað spennt.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.11.): 183
- Sl. sólarhring: 439
- Sl. viku: 1672
- Frá upphafi: 2409103
Annað
- Innlit í dag: 169
- Innlit sl. viku: 1496
- Gestir í dag: 169
- IP-tölur í dag: 167
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Vindurinn ýlfrar í upsunum hér
álftirnar hættar að kvaka
vorið sem ætlaði ´að verða það fer
en veturinn kemur til baka
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 20.4.2015 kl. 08:22
Þetta fer bara að slá út vorhretið 1963, sem þó var upphafið af 30 ára kuldaskeiði. Það skyldi þó ekki vera að spá Páls Bergþórssonar skuli vera að ganga eftir?
Hermundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 20.4.2015 kl. 13:16
Lipur vísa Bjarni - takk fyrir hana. Ritstjóri hungurdiska hefur litla hugmynd um hvað gerist í framtíðinni - en veit þó að við erum enn inni á miklu hlýindaskeiði - þótt stök kuldaköst líti alltaf við. Í vetur hafa þau verið fá, mesta frost vetrarins til þessa í Reykjavík er -9,6 stig. Það er sárasjaldan að mesta frost vetrarins sé minna en -10 stig í Reykjavík, gerðist þó veturna 2008 til 2009 og 2012 til 2013. Í hretinum 1963 fór frostið í Reykjavík í -12,5 stig. Mesta frost sem mælst hefur í Reykjavík eftir 20. apríl er -12,5 stig, árið 1887 - við skulum vona að við sleppum við slíkt.
Trausti Jónsson, 20.4.2015 kl. 14:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.