Landsynningur

Á sunnudag (18. janúar) kemur öflug lægð inn á Grænlandshaf. Því er spáð að henni fylgi nokkuð öflugur landsynningur. Landsuður er gamalt nafn á suðaustri. Orðið landsynningur vísar því til suðaustanáttar - en oftast ekki hvaða suðaustanáttar sem er, heldur til þeirrar sem ber með sér bæði hvassviðri og úrkomu - sem oftast er rigning. 

Lægðin þessi er af mjög algengri gerð - landsynningur hennar er „alvöru“ (eins og menn vilja oftast orða það í dag) - en útsynningurinn (suðvestanátt með éljum) sem oft fylgir í kjölfarið skilar sér ekki nema mjög stutta stund - eða alls ekki. Lægðin fer í hring aftur fyrir sig (kannski má segja að hún stolli) og hrapar svo skyndilega út úr myndinni og brotnar - brotin fara svo til Bretlandseyja. 

Tölvuspár undanfarinnar viku hafa verið mjög óljósar um þetta lægðarbrot - meira að segja var um tíma útlit fyrir að landsynningurinn næði aldrei til okkar (suðaustanátt kannski - en ekki landsynningur). 

Nú er samkomulag orðið betra. Kortið hér að neðan sýnir spá harmonie-líkans Veðurstofunnar um vind í 100 metra hæð (yfir líkanlandinu) kl. 10 á mánudagsmorgunn. Þá á hvassviðrið að vera í hámarki (að sögn). Á kortinu stendur 2014 en á að vera 2015.

w-blogg180115a

Örvar gefa stefnu til kynna, en litir sýna vindhraða. Rauðbrúnu litirnir sýna vind yfir 24 m/s. Hér má sjá að fjöll hafa mikil áhrif á vindhraðann - hlémegin (auðvitað öfugmæli hið versta) er vindur miklu meiri en áveðurs. Hæstu hámörkin eru við Langjökul, þar sem vindur á að vera yfir 40 m/s. Tölur í litlum gulum kössum sýna líklegar hviður (sem geta náð til jarðar). 

Landsynningsstormurinn hreyfist til norðausturs - en minnkar jafnframt. Öllu hægari suðaustanátt fylgir í kjölfarið. Spáin gerir ráð fyrir talsverðri úrkomu - aðallega slyddu og rigningu í byggð en hríð á fjöllum. Það er alltaf spurning hvers konar úrkoma fylgir í kjölfarið - hér má sjá að vindstefna virðist ekki breytast mikið í þann mund sem draga fer úr vindi. Það bendir til þess að hiti breytist ekki mjög - og þar með er snjókoma ólíklegri. Ef snögglega lygnir alveg í lok landsynningsveðra að vetri er viðbúið að hann fari strax að snjóa. 

En þetta er vindur í 100 metra hæð. Kortið hér að neðan sýnir vind í hæð vindhraðamæla - 10 metrum á sama tíma, kl. 10 á mánudag 19. janúar. Núningur sér til þess að hann er öllu minni heldur en 100 metravindurinn. Á kortinu stendur 2014 en á að vera 2015.

w-blogg180115b

Hér hafa rauðleitu svæðin dregist mjög saman - en samt eru þarna flákar, t.d. einn á Kjalarnesi. Nú er varla hægt að ætlast til þess að líkanið nái öllum smáatriðum. Þannig geta verið stakir blettir þar sem vindur er meiri en þetta kort sýnir og gott að eiga bæði kortin þegar ráða á í líklegan vindhraða á þeim stað sem við höfum áhuga á hverju sinni. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sé að vindakortin eru merkt 2014? 

Steinarr Bragason (IP-tala skráð) 18.1.2015 kl. 09:59

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Það er eins og venjulega - tekur marga mánuði að færa sig frá 14 yfir á 15.

Trausti Jónsson, 18.1.2015 kl. 15:04

3 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Já svona eins og með ávísanaheftið í denn...

Mér finnst enn merkilegt hvað Austfirðirnir hafa sloppið ótrúlega vel þennan veturinn. Jú hér rigndi djöfludóm í haust en síðan eru nánast öll veður þannig að við endum í lægðarmiðjunni og allt vesenið fer framhjá án þess að það blási úr nös.

Ef ég þekki þetta rétt þá blæs nösin nú samt.

Sindri Karl Sigurðsson, 18.1.2015 kl. 17:46

4 Smámynd: Trausti Jónsson

Þakka ábendinguna Steinarr -

Trausti Jónsson, 18.1.2015 kl. 19:30

5 Smámynd: Kristján Sigurður Kristjánsson

Sæll

Hélt að landsynningur og útsynningur væri einu leifar sem eftir væru úr landnámsmálinu frá Noregi. Landsynningur í Noregi kæmi ofan af landi og útsynningur utan af hafi. 

Kristján Sigurður Kristjánsson, 19.1.2015 kl. 00:01

6 Smámynd: Trausti Jónsson

Jú, Kristján svo er sagt - þetta á vel við í Vestur-Noregi og færeyingar nota þetta enn meira en við. Útnorður og landnorður notum við líka - eins og færeyingar - fyrir norðvestan- og norðaustanátt.

Trausti Jónsson, 19.1.2015 kl. 00:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 17
  • Sl. sólarhring: 436
  • Sl. viku: 2733
  • Frá upphafi: 2378309

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 2421
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband