Sumarúrkoma í Reykjavík (auk úrkomudagafjölda)

Úrkoma mćldist nú meiri í Reykjavík á tímabilinu júní til september heldur en áđur er vitađ til. Í mánuđunum júní og september mćldist úrkoman sérlega mikil, meir en tvöfalt međaltal í báđum. Einnig rigndi mikiđ í júlí (72 prósent umfram međallag), en í ágúst var úrkoman lítillega undir međallagi.

Úrkoma í júní og september náđi ţó ekki eldri metum mánađanna. Hungurdiskar hafa fjallađ nokkuđ um ţessa miklu úrkomu júní- og júlímánađa áđur, t.d. í fćrslu frá 22. júlí og annarri 26.júní. Ţótt úrkomusumma mánađanna júní til ágúst vćri há var hún nokkuđ frá meti. En september var drjúgur, virđist vera í 7. sćti mikilla úrkomumánađa. Eftir ţví sem best er séđ var heildarúrkoma mánađarins ţó hvergi meiri en mest hefur mćlst í september áđur nema á tveimur af yngstu úrkomustöđvunum, Drangshlíđardal undir Eyjafjöllum og Borgum í Hornafirđi - á ţessum stöđvum hefur ađeins veriđ mćlt frá 2012. 

En lítum á sumarsummuna (júní til september) í Reykjavík á mynd.

w-blogg011014a 

Mćlingaárin liggja á lárétta ásnum. Engar úrkomumćlingar voru gerđar í Reykjavík á árunum 1908 til 1919. Ţá var mćlt á Vífilsstöđum, niđurstöđur ţeirra sumra sem ţar var mćlt eru einnig settar inn (rauđar súlur)- úrkomumćlingar á stađnum voru ekki alveg trúverđugar - en förum ekki út í ţađ.

Lóđrétti ásinn sýnir mm og grćnu súlurnar sumarsummuna. Nýliđiđ sumar, súla sumarsins 2014 er sjónarmun hćrri (415,9 mm) heldur en tvćr ţćr nćsthćstu (1887, 407,3 mm og 1899, 405,4 mm). Ţurrast var sumariđ 1956.

Viđ lítum líka á úrkomudagafjöldann. Hér eru dagar ađeins taldir međ hafi úrkoma veriđ 1,0 mm eđa meiri. Ástćđan er sú ađ á árum áđur ţótti sumum veđurathugunarmönnum varla taka ţví ađ mćla úrkomu minni en 1 mm. Talningar á dögum međ úrkomu 0,1 mm eđa meir eru ţannig oftast óáreiđanlegar fyrstu ár mćlinga ţeirra löngu mćlirađa sem til eru. Efri viđmiđunarmörkin (1,0 mm) gefa samanburđarhćfari rađir.

w-blogg021014a 

Hér er Vífilsstöđum alveg sleppt. Sumrin 2013 og 2014 eiga jafnmarga úrkomudaga, 62 hvort sumar og eru í 5 til 6 sćti á fjöldalistanum. Efst er sumariđ 1969, međ 71 dag. Síđan koma 1955 (69 dagar), 1947 og 2003 (62 dagar, hvort sumar). 

Enga leitni er ađ sjá á línuritunum - úrkomumagn og úrkomudagafjöldi virđist breytast tilviljanakennt frá ári til árs. Athyglisvert er ţó ađ ţađ sýnist sem úrkomusumur (eđa ţurr) klasist nokkuđ. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 28
  • Sl. sólarhring: 75
  • Sl. viku: 669
  • Frá upphafi: 2351230

Annađ

  • Innlit í dag: 27
  • Innlit sl. viku: 601
  • Gestir í dag: 26
  • IP-tölur í dag: 26

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband