6.3.2014 | 01:42
Suðvestanátt í þrjá daga (hvað svo?)
Í dag (miðvikudaginn 5. mars) fór meðalvindátt á landinu loks vestur fyrir suður og hinni hreinu austanáttarsyrpu því lokið. Líklega verður meðalátt líka úr suðvestri eða vestri á morgun, fimmtudag, og sömuleiðis á föstudaginn. Þann dag verður kröpp lægð suður í hafi sem spurning er hvað gerir.
Eins og er gera spár ráð fyrir því að hún fari til norðausturs við Suðausturland á laugardaginn. Fyrir utan braut lægðarinnar er nokkur óvissa með úrkomutegund - það er að segja hvar rignir og hvar snjóar. Rétt að fylgjast með spám Veðurstofunnar varðandi slíkt - sem og auðvitað vindhraða.
En við bregðum upp spákorti evrópureiknimiðstöðvarinnar sem gildir kl. 18 á föstudag.
Stóra lægðin er þarna um 963 hPa í miðju, dýpkar ört og hreyfist hratt til norðnorðausturs. Hún skefur upp dálítinn hæðarhrygg á undan sér - eins og hver önnur jarðýta og þá herðir tímabundið talsvert á suðvestanáttinni norðan við hrygginn þegar hann aftur stuggar við lægðinni vestan við land. Þessu fylgir eitthvað leiðindaéljakóf um landið vestanvert. - En svo slaknar á áður en djúpa lægðin tekur völdin.
Í framhaldi af hlýindafréttunum frá Svalbarða sem voru hér upp á borðinu í gær má geta þess að einnig var mjög hlýtt á Norðaustur-Grænlandi, hiti var 6,9 stigum ofan meðallags við Scoresbysund og 5,6 stig ofan þess á Station Nord. Einnig var óvenjuhlýtt í Syðri-Straumfirði (+4,9) og norður við Thule (+2,6 stig). Í Nuuk og þar sunnan við var hiti hins vegar nærri meðallagi - enda náði kuldinn að vestan stundum þangað. Einnig má koma fram að (alþjóða-) veturinn var sá hlýjasti í Björgvin í Noregi frá því að samfelldar mælingar hófust þar 1861. Kuldafréttir úr fjarlægum heimsálfum virðast oftast sjá um að birta sig sjálfar á athugasemdum hungurdiska án aðkomu ritstjórans.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 13
- Sl. sólarhring: 156
- Sl. viku: 1934
- Frá upphafi: 2412598
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 1687
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Landafræðiþekking ritstjóra Hungurdiska er víðfræg: "Kuldafréttir úr fjarlægum heimsálfum..."(sic)
Keflavík - Svalbarði = 2163.03 km
Keflavík - Quebec = 3109.31 km
Við getum haldið fjarlægðarsamanburðinum áfram:
Keflavík - Helsinki = 2451.16 km
Keflavík - New York = 4174.80 km
En Reykjavík er auðvitað nafli alheimsins (http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1328867/) :)
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 6.3.2014 kl. 10:12
Svo virðist sem síðan sé ekki einungis áhugaverður vettvangur til þess að fræðast um veður og lofthjúp jarðar. Hér er einnig hægt að fylgjast með þeim illvíga sjúkdómi sem nefndur er paranoia querulantis.
Hólmgeir Guðmundsson, 6.3.2014 kl. 12:04
Láttu þér batna Hilmar Hafsteinsson.
Skemmtilegir pistlar Trausti.
Óðinn (IP-tala skráð) 6.3.2014 kl. 17:22
Auðvitað bið ég þá félaga HG og Óðinn afsökunar á því að hafa upplýst Trausta um að "fjarlæga heimsálfan" Norður-Ameríka er rétt fyrir vestan Ísland.
Þannig telst t.a.m. Grænland til N.-Ameríku og Vestfirðingar sjá yfir til "fjarlægu heimsálfunnar" í góðu skyggni (að vísu á fjöllum þegar snjóa leysir).
Þetta hélt ég nú satt að segja að veðurfræðingurinn Trausti vissi :)
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 6.3.2014 kl. 17:35
The Role of ENSO in High Plains Drought. To see two neutral ENSO-winters in a row is fairly uncommon, but not unprecedented – analogous pairs occurred in 52-54, 59-61, 80-82, and 89-91. http://drought.unl.edu/Portals/2/Ranchplan%20Images/Presentations/1_9_2014/Wolter.GardenCity2014.pdf
Hólmsteinn Jónasson (IP-tala skráð) 6.3.2014 kl. 23:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.