Af (met)þurru lofti

Í dag (þriðjudaginn 26. febrúar) var óvenjuþurrt loft yfir landinu vestan- og suðvestanverðu. Á nokkrum sjálfvirkum veðurstöðvum varð rakastig lægra heldur en áður hefur þar mælst í febrúarmánuði. Það gerðist t.d. bæði á stöðvunum á Veðurstofutúni og á Reykjavíkurflugvelli.

Listi yfir nýju metin er í viðhenginu - nördum til fróðleiks. Allra lægst varð rakastigið þó á Þingvöllum þar sem stöðin mældi aðeins 12%. Nokkur óvissa er um kvörðun rakamælanna við svo lágt rakastig - en við skulum láta það eftir okkur í bili að trúa þessari tölu.

Á flestum stöðvanna varð auðvitað einnig metmunur á þurrum hita og daggarmarki. Á ensku heitir þessi munur dew point depression, daggarmarksbæling. Þetta hugtak var (og er e.t.v. enn) helst notað í umfjöllun um háloftaathuganir. Í viðhenginu er líka listi yfir ný bælingarmet. Mestur varð munurinn á Þingvöllum, 27,2 stig. Ný lágmarksdaggarmarksmet (úff) voru hins vegar ekki sett í dag, það er ekki svo kalt í veðri.

Í pistli gærdagsins (sem bæla varð vegna skíthríðar virkra í athugasemdum) var m.a. sagt frá febrúarrakametinu á mönnuðu stöðinni í Reykjavík. Sá bútur er endurtekinn orðréttur hér að neðan.

„Lægsta tala febrúarmánaðar á mönnuðu stöðinni í Reykjavík er 21%, sú lága tala mældist kl. 21 8. febrúar 1958 (já). Lægsta febrúartalan á sjálfvirku stöðinni á Veðurstofutúni er 23% og mældist kl. 2 þann 26. febrúar 2004. Sama dag og á sama tíma mældist lægsta febrúartalan á stöðinni á Reykjavíkurflugvelli, 29%“.

Það láðist að geta þess að árið 1958 var mannaða stöðin á Reykjavíkurflugvelli. Nýju met sjálfvirku Reykjavíkurstöðvanna eru: Veðurstofutún 22%, Reykjavíkurflugvöllur 21% (sjá einnig viðhengið).


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Trausti. Hvað er lægsta % ársins í Vestmannaeyjarstöðvunum, og jafnframt í febrúarmánuði?

Veðurstofan hefur lengi stuðst við daggarmark, enn nýtilkomið að nota % með komu sjálfvirkra veðurstöðva. Er búið að umreikna daggamarkið yfir í % á Stórhöfða síðan 1921?

E.s. Ekki tók ég eftir þessari skíthríðu í þessari færslu í gær. Hinsvegar eru til margar skárri aðfarir enn að eyða færslu.

Pálmi Freyr Óskarsson, 26.2.2014 kl. 17:32

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Pálmi. Rakastig hefur verið reiknað fyrir allar athuganir á Stórhöfða aftur til 1949. Þegar ég horfði á metalistann kom í ljós ein villa sem þarf að laga og eitt vafasamt gildi að auki sem þarf að líta á áður en ég get svarað spurningu þinni með vissu. En þó er ljóst að lægsta tala mönnuðu stöðvarinnar í febrúar er 36% mælt 15. febrúar 1955. Eins og ég nefndi í pistlinum eru rakamælingar sjálfvirku stöðvanna illa kvarðaðar þegar kemur niður fyrir 20%,  þá fara skrítnir hlutir að gerast, t.d. koma tölurnar 5, 6 og 7% allt of oft fyrir bæði á sjálfvirku stöðinni á Stórhöfða og þeirri í Vestmanneyjabæ miðað við mönnuðu stöðina. Allar þessar mælingar þarf að skoða sérstaklega hverja fyrir sig til að finna rétta lægsta gildið. Allt undir 25% er mjög óvenjulegt í Vestmannaeyjum.

Trausti Jónsson, 26.2.2014 kl. 21:15

3 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Ég þakka kærlega fyrir svarið, Trausti.

Einkvað hefur þessi "villa" fari framhjá manni í rakamælinum í Stórhöfða (og Vestmannaeyjabæ). Enda er erfitt að fylgjast svo grannt með honum.

Pálmi Freyr Óskarsson, 26.2.2014 kl. 22:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • w-blogg231124-kosningaspa-ec b
  • w-blogg23124-kosningaspa-ec a
  • w-blogg211124a
  • w-blogg181124a
  • w-blogg151124c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 184
  • Sl. sólarhring: 336
  • Sl. viku: 2482
  • Frá upphafi: 2414146

Annað

  • Innlit í dag: 174
  • Innlit sl. viku: 2289
  • Gestir í dag: 171
  • IP-tölur í dag: 170

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband