Af þurru lofti

Þurrkur (í veðurfarslegri merkingu) verður ekki til nema á löngum tíma - en þurrt loft getur dottið yfir fyrirvaralítið. Þegar rakamælar (utanhúss) sýna lágar tölur er það yfirleitt merki um niðurstreymi lofts. Sýni utanhússrakamælar lágt rakastig í kulda verður enn þurrara innandyra.

Á morgun (þriðjudag) verður norðaustanáttin með þurrasta móti suðvestan- og vestanlands - ef marka má spár. Við lítum til gamans á tvö spákort fengin úr harmónílíkaninu. Það fyrra sýnir rakastig um hádegi á morgun - í hitamælaskýlahæð - en hið síðara sýnir það sama uppi í 925 hPa-fletinum, í rúmlega 500 metra hæð.

w-blogg250214a 

Litafletir sýna rakastig (í prósentum) eins og líkanið vill hafa það kl. 12 á hádegi á morgun (þriðjudaginn 25. febrúar). Allt landið norðaustanvert er hulið bláum litum og meira að segja sést í einn fjólubláan blett en þar er rakastigið 100 prósent. Sé kortið stækkað sjást kvarðinn og tölurnar mun betur.

Gulu og brúnu litirnir tákna lágt rakastig - alveg niður í 18% við Skóga undir Eyjafjöllum. Það er ekki algengt að rakastig fari niður fyrir 30% - en þó er til slatti af athugunum með svo lágum tölum á mörgum veðurstöðvum.

Lægsta tala febrúarmánaðar á mönnuðu stöðinni í Reykjavík er 21%, sú lága tala mældist kl. 21 8. febrúar 1958 (já). Lægsta febrúartalan á sjálfvirku stöðinni á Veðurstofutúni er 23% og mældist kl. 2 þann 26. febrúar 2004. Sama dag og á sama tíma mældist lægsta febrúartalan á stöðinni á Reykjavíkurflugvelli, 29%.

Þótt rakastig geti orðið lágt niður undir jörð er lágmarka oft að vænta ofar. Mjög lágar tölur eru því tíðari í 925 hPa-fletinum heldur en koma fram á veðurstöðvum. Þannig er því farið í spá morgundagsins.

w-blogg250214b

Kortið nær yfir aðeins stærra svæði heldur en það fyrra. Sé það stækkar má finna afskaplega lága tölu, 8%, við Klofning við innanverðan Breiðafjörð og 9% undir Eyjafjöllum.

Norðaustanáttin verður heldur rakari annað kvöld (þriðjudag) - auk þess sem hún kólnar, rakastigið hækkar þá aftur. Sagt er að miðvikudagurinn verði ekki jafnþurr og þriðjudagur - en engri úrkomu er þó spáð á þurrkasvæðunum frekar en venjulega.

Staðan á þurrklistanum hefur lítið breyst:

 

stöðármándagurúrksummafyrra árfyrra lágmupphaf NAFN
9420142223,4201015,11996 Kirkjuból
9720142233,6201018,11991 Neðra-Skarð
10820142240,019909,51988 Stafholtsey
11720142240,1201010,01994 Augastaðir
14920142247,8201015,71995 Hítardalur
18720142231,3201018,92008 Kvennabrekka
21220142220,119908,91977 Brjánslækur
21220142220,120108,91977 Brjánslækur
22120142243,5201017,72005 Hænuvík
300201422424,7201031,01995 Steinadalur
30320142240,719771,61940 Hlaðhamar
32120142212,8201018,41992 Ásbjarnarstaðir
33320142230,220103,92003 Brúsastaðir
36120142240,319860,61978 Bergstaðir
93120142243,4201025,51990 Hjarðarland
95120142223,3201041,91981 Nesjavellir
 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

24. febrúar virðist ætla að vera stór dagur í sögu loftslagsvísindanna:

"Massive counterclaims, in excess of $10 million, have just been filed against climate scientist Michael Mann after lawyers affirmed that the former golden boy of global warming alarmism had sensationally failed in his exasperating three-year bid to sue skeptic Canadian climatologist, Tim Ball. Door now wide open for criminal investigation into Climategate conspiracy...

Anyone may now freely dismiss him (Mann) in the harshest terms as a junk scientist who shilled for a failed global warming cabal. Without fear of his civil legal redress, we may now refer to Mann for what he is: a climate criminal, a fraudster.

Dr Ball has destroyed the credibility of both the IPPC paleoclimate record (Mann’s ‘hockey stick’ graph ‘science’) and all those IPCC computer model ‘projections’ of a dangerously warming climate (Weaver’s ‘science’). And all achieved in the most important ‘peer reviewed’ venue possible – a government court of law...

By tenaciously and bravely defending his actions for three long years the mild-mannered septaugenarian (Dr Ball) has single-handedly proved that the very core of government climate science is junk. Thereby, this instance of ‘science on trial’ is no less significant, in the broadest sociatal context, as the infamous Scope’s Monkey Trial of 1925."

> http://iceagenow.info/2014/02/agw-golden-boy-michael-mann-faces-bankruptcy/

"Óðahlýnun" hvað?

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 25.2.2014 kl. 16:39

2 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Það eru sennilega tíðindi í veðrinu á Íslandi 25. febrúar 2014 sem mjög þurr dagur í febrúarmánuði. Svo er spurning hvort þurrkstigið (rakastigið) hafi einhverstaðar farið niður fyrir 20%. Ég mun allavega bíða spenntur eftir eftirmiðnættisfærslu Trausta.

Pálmi Freyr Óskarsson, 25.2.2014 kl. 17:22

3 identicon

Og spár mínar um óbreytt veðurfar næstu vikur virðast ætla að rætast, þ.e. áframhaldandi austlægar til norð-austlægar áttir með hita rétt í kringum frostmar (plús eða mínus 3 stilg).

Þetta er orðið voðalega tilbreytingalaust veðurfar og örugglega eitt lengsta tímabil í nýjari Íslandssögu þar sem veðurfar hefur verið nær óbreytt, eða síðan í miðbik október sl.

Þetta er eiginelga það veðurfar sem ætti að vera hér í sumar en ekki núna. Núna vil ég rigningu og rok með 6-10 stiga svo að þessi landsins nýjasti fjandi, klakinn, fari veg allra veraldrar.

Björn Logason (IP-tala skráð) 25.2.2014 kl. 17:35

4 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Hilmar: að þú skulir vera ánægður með að peningaöflin/olíuiðnaðurinn skuli ógna loftslagsfræðingum með stjarnfræðilegum fjárupphæðum segir bara meira um þig en Micheal Mann..

Höskuldur Búi Jónsson, 25.2.2014 kl. 19:56

5 identicon

Enn einu sinni leyfir þú þér að gera mér upp skoðanir HBJ, ásamt því að fara vísvitandi með rangt mál. Ég haf áður rakið hvernig þú hefur þverbrotið Codex Ethicus Jarðfræðafélags Íslands. Best að rifja upp:

"2 SKYLDUR VIÐ ALMENNING

2.2 Félagi skal alltaf forðast yfirborðslegar, órökstuddar og ýktar yfirlýsingar og ekki ljá slíkum málflutningi stuðning sinn, einkum þegar um er að ræða atriði sem tengjast faglegri ábyrgð og stangast á við faglegt mat.

2.4 Félagi lætur ekki í ljós faglega skoðun, skrifar ekki skýrslu eða ber vitni, án þess að hafa að hans mati fullnægjandi upplýsingar sem varða viðkomandi mál og að skýrt komi fram á hvaða gögnum hann byggir mál sitt.

2.5 Félagi skal hvorki gefa rangar yfirlýsingar né rangar upplýsingar þótt hann sé beittur þrýstingi af vinnuveitanda eða viðskiptavini."

> http://www.jfi.is/sidareglur/

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 25.2.2014 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • w-blogg031124c
  • w-blogg031124b
  • w-blogg031124a
  • w-blogg311024a
  • w-blogg311024b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.11.): 68
  • Sl. sólarhring: 92
  • Sl. viku: 1493
  • Frá upphafi: 2407616

Annað

  • Innlit í dag: 61
  • Innlit sl. viku: 1321
  • Gestir í dag: 60
  • IP-tölur í dag: 57

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband