24.2.2014 | 01:05
Smávegis um snjóhulu á landinu í góubyrjun
Þar sem snjóhula á landinu hefur verið nefnd í athugasemdum hungurdiska er rétt að fara lauslega yfir stöðuna. Óhætt er að segja að óvenjulítill snjór sé víðast hvar í byggðum landsins - meira að segja í sumum snjóasveitum. Í viðhenginu er listi af vef Veðurstofunnar frá því í dag (sunnudaginn 23. febrúar) þar sem þetta blasir við.
Eina undantekningu er þó skylt að nefna en það eru tölurnar úr Svartárkoti í Bárðardal. Þar er snjór með mesta móti - jafnmikill og mest hefur mælst áður í þessum mánuði. Grímsstaðir á Fjöllum og Mýri í Bárðardal eru hins vegar langt frá sínu hæsta í febrúar.
Snjór er óvenjumikill í fjöllum á Austfjörðum en snjólítið hefur verið þar í byggðum - óvenjusnjólítið. Snjóhula hefur verið athuguð á Dalatanga frá því haustið 1938. Myndin að neðan sýnir snjóhulu þar í febrúar á öllu þessu tímabili.
Meðalsnjóhula á Dalatanga í febrúar er 71% (rauða strikalínan). Hulan í febrúar síðustu 4 árin hefur verið um eða innan við helmingur meðaltals og hafa aldrei komið jafnmargir snjórýrir febrúarmánuðir í röð á öllu tímabilinu. Minnst varð snjóhulan í febrúar 1972 - 5%.
En það er ekki komið vor, síðasti vetrarmánuðurinn (mars) er allur eftir og sömuleiðis snjóar oft talsvert norðan til á Vestfjörðum og á Norðausturlandi fram eftir apríl. Einkunn vetrarins er því langt í frá ráðin - meira að segja á Suðvesturlandi.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 293
- Sl. sólarhring: 417
- Sl. viku: 2591
- Frá upphafi: 2414255
Annað
- Innlit í dag: 271
- Innlit sl. viku: 2386
- Gestir í dag: 266
- IP-tölur í dag: 262
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Endurteknar þakkir til þín Trausti fyrir veðurbloggið.
Vil vinsamlegast benda hér á fréttir fjölmiðla um "smávegis snjóhulu á landinu í góubyrjun":
"Enn ófært víða um land
Það er enn ófært á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði og Háreksstaðaleið. Ófært er um Oddsskarð og á Fjarðarheiði. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Vatnsskarði eystra." (http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/02/23/enn_ofaert_vida_um_land/)
"Norðfirðingar fastir í firðinum
Í nótt skóf fyrir Norðfjarðargöngin með þeim afleiðingum að þau urðu ófær. Snjóþunginn var svo mikill að gangamunninn lokaðist næstum því alveg." (http://www.visir.is/nordfirdingar-fastir-i-firdinum/article/2014140229612)
"Fjarðarheiðin loksins opnuð á ný
Seyðfirðingar voru búnir að vera lokaðir inni vegna ófærðar á Fjarðarheiði frá því á miðvikudag, þegar leiðin opnaðist loks í morgun. Vöruskortur var orðinn í kaupfélaginu." (http://www.visir.is/fjardarheidin-loksins-opnud-a-ny/article/2014140229403)
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 24.2.2014 kl. 16:42
Nú þarna liggur hundurinn grafinn Hilmar. Ég hef verið að velta mér hvar snjórinn hefur farið þar sem hann hefur varla sést enn í allan vetur hérna í Vestmannaeyjum.
Pálmi Freyr Óskarsson, 24.2.2014 kl. 20:14
Snjódýptarmælirinn við skálann á Setri sunnan Hofsjökuls hefur verið óvirkur síðustu tvo vetur sem mér finnst ekki alveg nógu gott því hann gefur góðar vísbendingar um snjóalög til fjalla á stórum hluta landsins. Ætla jeppakarlarnir ekkert koma þessu í lag?
http://brunnur.vedur.is/athuganir/sjalfvirkar/setur/
Emil Hannes Valgeirsson, 24.2.2014 kl. 23:28
Það er spurning hvort snjódýptarmælar Veðurstofunnar á hálendinu séu óvirkir vegna óvenju mikillar snjóhulu?
"Lokaðir í firðinum í 50 daga
Þrátt fyrir að ferlirit Veðurstofunnar sýni að óvenjulítill snjór sé í mörgum byggðum landsins hafa íbúar á Austurlandi búið við annan veruleika. Snjóþunginn er það mikill að víða hafa vegir lokast og fólk ekki komist leiðar sinnar." (http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/02/25/lokadir_i_firdinum_i_50_daga/)
Svo geta talsmenn Trausta auðvitað afneitað þeim veruleika sem íbúar á Austurlandi búa við :)
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 25.2.2014 kl. 09:32
Óvenjumikil snjóhula er ekki að hrjá mælinn á Setri, það veit ég fyrir víst enda nokkur ár síðan ég fór að fylgjast með honum (http://emilhannes.blog.is/blog/emilhannes/entry/1174096/)
Emil Hannes Valgeirsson, 25.2.2014 kl. 11:27
"Mikill snjór er í fjöllum, einkum á Austfjörðum en einnig á Norðurlandi. Nokkur snjóflóð hafa fallið þar undanfarna daga. Einnig hafa vélsleðamenn sett af stað flóð á hálendinu."
(Skrifað af vakthafandi sérfræðingi 24. feb. 16:27)
Snjóflóðaspá fyrir valin svæði:
Norðanverðir Vestfirðir = Nokkur hætta
Utanverður Tröllaskagi = Töluverð hætta
Austfirðir = Töluverð hætta
> http://www.vedur.is/ofanflod/snjoflodaspa/
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 25.2.2014 kl. 15:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.