Minniháttar (?) skipulagshliđrun?

Lćgđir halda áfram ađ berja Bretlandseyjar. Viđ höfum sloppiđ nokkuđ vel - nema hvađ óvenjuúrkomusamt hefur veriđ um landiđ austanvert. Allan ţennan tíma hefur mikiđ háloftalćgđardrag legiđ til austurs fyrir sunnan land og lengi vel var drjúgur hćđarhryggur viđ Norđur-Noreg og Svalbarđa. Ţessi kerfi héldu viđ suđaustanátt yfir öllu kaldastríđshafinu ţannig ađ kalt loft sem viđ eđlilegar ađstćđur finnur sér framrás međfram Austur-Grćnlandi hefur orđiđ ađ fara annađ.

Nú virđist ćtla ađ verđa minniháttar skipulagsbreyting á svćđinu. Minniháttar segjum viđ vegna ţess ađ ţetta hefur frekar á sér yfirbragđ ţess sem er ađ hagrćđa sér í sćtinu heldur en ţess sem er viđ ţađ ađ standa upp. - En samt. Lítum á spákort evrópureiknimiđstöđvarinnar sem gildir um hádegi á föstudag (14. febrúar).

w-blogg130214a 

Sjá má jafnhćđarlínur 500 hPa-flatarins merktar í dekametrum (1 dam = 10 metrar) og lagđar til á 6 dam bili. Litafletir sýna ţykktina en hún sýnir hita í neđri hluta veđrahvolfs. Mörkin á milli grćnu og bláu litanna er viđ 5280 metra. Ađ undanförnu höfum viđ ýmist veriđ í dekksta grćna litnum eđa ţeim ljósasta bláa.

Skilin á milli fyrsta og annars bláa lits liggja um Ísland og ekki er sérlega langt í ţriđja bláa litinn. Í honum er ţykktin á milli 5100 og 5160 metrar. Ţar er heiđarlegur vetrarkćla - hiti undir međallagi árstímans. Nćđingurinn er ţá kaldur, lygni og birti upp getur frost orđiđ býsna hart inn til landsins. En alvöruvetur - ţar sem frost er um nćr allt land ţótt vindur sé byrjar viđ 5100 metra - á fjórđa bláa lit. Ţá er kalt viđ strönd og í sveitum. Ţessi fjórđi blái litur er ađ sögn reiknimiđstöđva ekkert á leiđ til okkar.

Kortiđ sýnir samt norđanátt í 500 hPa á svćđinu milli Íslands og Jan Mayen - mjög veik hćđ er yfir Scoresbysundi og lćgđ undan vesturströnd Noregs. Ţetta er á föstudag og aum norđanáttin á ađ standa í rúma tvo daga áđur en vindur snýst aftur til suđurs og suđausturs. Ţađ rćđst svo í nćstu viku hvort hann kemur sér enn og aftur fyrir í janúarsćtinu. Ný veik fyrirstađa gćti nefnilega myndast aftur - og allt hrokkiđ í nákvćmlega sama far.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 109
  • Sl. sólarhring: 293
  • Sl. viku: 1425
  • Frá upphafi: 2349894

Annađ

  • Innlit í dag: 94
  • Innlit sl. viku: 1297
  • Gestir í dag: 94
  • IP-tölur í dag: 91

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband