Óráðinn éljabakki

Óráðinn éljabakki hefur í dag verið á sveimi skammt suðvestur af landinu - enn ein tilraun sóknar vestanloftsins í átt til landsins og sennilega enn misheppnaðri heldur en áður.

Spár hafa þó verið að gefa úr og í með það að hann nái inn yfir Reykjanes á mánudag (10. febrúar) og satt best að segja getur ritstjórinn ekki frekar en venjulega verið með einhverjar uppástungur þar um. Veðurstofan er líka loðin - en þar er þó fylgst náið með málum frá mínútu til mínútu - sem hungurdiskar gera ekki.

En lítum á mynd veðursjárinnar á Miðnesheiði á miðnætti (sunnudagskvöld).

w-blogg100214b 

Litirnir sýna ágiskaða úrkomuákefð - mest 2 til 3 mm á klukkustund. Það er ekki mikið en samt.

En lesendur geta fylgst með sjálfir á ratsjársíðu á vef Veðurstofunnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef oft lesið framlag þitt á blogginu og kunnað vel við. Fróðleg og skemmtileg blanda sem passar bæði lærðum og leikum. En hvað eru hungurdiskar?

Kveðja.

Gunni

Gunnar H. Gylfason (IP-tala skráð) 10.2.2014 kl. 18:25

2 identicon

Já, það er erfitt að spá í veðrið þennan veturinn, enda hefur veðrið verið mjög einsleitt lengi.  Viðvarandi fremurl lágur hiti, og engin veruleg hlýindi sem hláku.
Klakinn ekkert á förum  Langt í að hann bráðni
Ástæður þessa eru að til að klakinn bráðni af einhverju ráði, þarf hitastig að vera yfir 6 gráður í nokkra daga, og helst rigning og rok með.

Ekkert bendir þó til að slíkt hitastig muni láta sjá sig hér á landi á næstunni, þvert á móti mun kólna all verulega nú upp úr 10. feb. og mun sá kuldi verða viðvarandi næstu 10 daga.

Eftir 20 feb. er búist við kunnuglegu veðri, austlægum áttum og hitastig rétt yfir frostmarki.

Í mars má svo búast við kunnuglegu veðri fyrir þann árstíma, norðlægum áttum með því frosti sem þeim fylgja.

Það verður því ekki fyrr en undir mánaðarmót mars-apríl sem búast má við breytingum, en á þeim tímapunkti mun klakinn verða enn sem fastast þar sem hann hefur verið síðan í desember á síðasta ári.
Sjávarhiti lægri en undanfarin ár.
Sjávarhiti það sem af er vetra er lægri en undanfarin ár, og það skýrir etv. kaldara veðurfar nú en undanfarna vetur.

Til að mynda var sjávarhitinn um 7-8 gráður í desember 2009 hér við land, en var um 3 gráður í desember sl.
Helsta breytingin - Veðurfar er orðið stöðugra
Helsta breytingin á verðurfari hér á landi er sú, að veðurfar er orðið stöðugra en áður var.  Ríkjandi veðurkerfi vara nú mun lengur en hér áður fyrr, þegar veðrið var síbreytilegt.

Nú í daga ráða ríkjandi veðurkerfi í vikur ef ekki mánuði miðað við hér áður fyrr, þegar veðurkerfin ríktu í mesta lagi í eina viku.

Þetta þýðir stöðugra veðurfar, líkt og sl. sumar þegar það rigndi frá því í lok apríl og fram í miðjan september, auk þess að ríkjandi vindátt voru suðlægar áttir.
Nú í vetur hafa svo austlægar og norð-austlægar áttir verið ríkjandi og það skýrir langvarandi klakabönd sem virðast hafa skotið rótum hér víðast hvar.
Við getum því búist við austlægum áttum í nokkrar vikur enn, en hvaða veðurkerfi tekur við eftir það, er ekki gott að spá um.

En eitt er víst, að næsta ríkjandi veðurkerfi mun vara mánuðum saman, þá mun verða ríkjandi á sumri komanda.

Björn Logason (IP-tala skráð) 10.2.2014 kl. 22:39

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Gunnar. Hungurdiskar er orð sem Jón Eyþórsson veðurfræðingur tók úr kvæði Matthíasar Jochumssonar Hafísinn og notaði í myndartexta í þýðingu sinni á bók Fridtjof Nansen Hjá selum og hvítabjörnum. Á myndinni mátti sjá það sem almennt eru kallaðar íslummur, nýmyndaður sporöskjulaga ís að verða til úr krapa. Jón hafði orðið reyndar í gæsalöppum og skrifaði sem „hungur-diskar“. Mjög óvíst er að Matthías hafi haft nákvæmlega þessa ísgerð í huga þegar hann notaði orðið í kvæðinu - sennilega bjó hann það til um leið og hann orti - meira þá um hafís og hafísjaka almennt. Fljótur að kasta fram orðum hann Matthías og reynir ritstjóri hungurdiskabloggsins að taka hann og fleiri sér til fyrirmyndar í þeim efnum - þótt misjafnlega takist til eins og gengur. Björn, þrátt fyrir að nákvæmlega ekkert hafi verið um háan hita nú um langa hríð getur engan veginn kallast kalt í veðri, hiti 2 til 3 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Janúar var einn af 10 hlýjustu í sínum flokki (næsthlýjastur á Teigarhorni frá upphafi 1873) og hiti er enn langt ofan við meðallag. Næstu vikuna verður samt líklega ívið kaldara en að undanförnu - gaman er að menn reyni sig í lengri spám þakka þér fyrir.

Trausti Jónsson, 11.2.2014 kl. 01:22

4 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Þetta þykir mér góð kenning - ég má til með að prófa:

Ísinn visku enga fann
æddi fiskagrundir.
Hvergi'af miskunn hélið spann
hungurdiskum undir.

Höskuldur Búi Jónsson, 11.2.2014 kl. 14:38

5 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Verð að fá að leiðrétta smá villu hjá mér:



Ísinn visku enga fann
æddi fiskagrundir.
Hvergi'af miskunn hélan spann
hungurdiskum undir.

Höskuldur Búi Jónsson, 11.2.2014 kl. 20:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 33
  • Sl. sólarhring: 381
  • Sl. viku: 1858
  • Frá upphafi: 2350594

Annað

  • Innlit í dag: 33
  • Innlit sl. viku: 1661
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 33

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband