8.2.2014 | 01:24
Af ástandinu í heiðhvolfinu snemma í febrúar
Það er um það bil mánuður síðan fjallað var um ástandið í heiðhvolfinu hér á hungurdiskum. Rétt er að líta á stöðuna nú, viku af febrúar.
Nú verður að játa að ritstjórinn hefur ekki verið nógu duglegur við að fletta daglegum háloftakortum sem háskólinn í Berlín gaf út á árum áður. Þetta hefur þær afleiðingar að hann á erfitt með að meta hversu óvenjuleg staðan á 30 hPa-korti dagsins er í langtímasamhengi. En hún er alla vega ekki sú algengasta í janúar og febrúar.
Hér má sjá mestallt norðurhvel - skautið er rétt ofan við miðja mynd. Við erum í 30 hPa-fletinum sem er nú í 22 til 24 km hæð (merkingar eru í dekametrum). Litafletir sýna hitann, fjólublái liturinn markar -82 stig, en sá brúnasti markar um -50 til -46 stiga frost. Kortið batnar mjög við stækkun.
Hringrásin er mjög aflöng og lægðarmiðjur tvær (gleraugnalægðir). Auk þess eru tvö myndarleg háþrýstisvæði á kortinu. Þessi staða er búin að vera svipuð í nærri því mánuð. Eiginlega svipaðan tíma og mesta hringrásarröskunin á norðurhveli hefur staðið. Það er mjög líklegt að tengsl séu á milli - en ekki gott að segja í hverju þau nákvæmlega felast.
Einhvern veginn hefur maður búist við því að hringrásin skiptist alveg í tvennt og eyðileggist síðan svipað og gerðist snemma í janúar í fyrra - en sú skipting hefur látið á sér standa. Svona kauðaleg getur leti ritstjórans verið - að koma sér ekki í það að fletta þessum tíuþúsund kortum. En langtímatölur segja að ólíklegt sé að algjört hringrásarniðurbrot með skyndihlýnun eigi sér stað tvö ár í röð - sú reynsla liggur alla vega fyrir.
En þótt þetta gleraugnaástand heiðhvolfsins sé skrýtið er það samt allt öðru vísi (og mun eðlilegra) heldur en var á sama tíma í fyrra - við skulum rifja það upp á korti til að geta rétt tilfinningalega slagsíðu ástandsmatsins af.
Staðan í fyrra gæti nærri því verið á annarri plánetu - svo ólíkt er hún stöðunni nú. Lægðin er þarna aðeins að ná sér eftir algjört niðurbrot janúarmánaðar - en hún náði sér aldrei alveg það sem eftir lifði vetrar.
En hvað svo? Nú bregður svo við að spár segja að hæðin yfir Austur-Síberíu eigi að slakna - en jafnframt á lægðaraugað til vinstri að vaxa töluvert á kostnað þess til hægri (sem er öflugra í dag). Hvort þetta eru einhver merki um að sú óvenjulega staða sem við erum í niðri í veðrahvolfinu sé að breytast vitum við ekki. En eðlilegt ástand í febrúar felst annað hvort í lægðagangi yfir Ísland - eða kaldri norðanátt en ekki eilífri Bretlandseyjalægð og hlýindum í norðurhöfum eins og nú.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 01:29 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.3.): 8
- Sl. sólarhring: 93
- Sl. viku: 1689
- Frá upphafi: 2452566
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 1559
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
góð grein í bændablaðinu. 1. gétur verið að jörðinn sé að aðlaga sig að þessu veðurfari og stilli sig af með eldgosum.það er hjátrú hér um slóðir ef það kemur alveg logn þá kemur eldgos breitist ekki loftþrýstíngur þegar eldgos kemur. það hljúta vera nikil átök þegar þau brjóta sér keið uppá yfirborðið
2. ef mikið hefur verið af austanáttum í janúar ef ég skildi þig rétt í öðru bloggi eru tvö ár sambærileg eiga þau meira sameiginlegt ef dreigið er mark af þessum tvem árum voru hegðuðu þau sér eins þar sem eftir var ársins. meigum við búast við að þettað ár verði svipuð og þau.
3. halli jarðar gjétur það valdið því að að ísin á norðurhvelinu færist til gétur það hafa valdið þessum kuldum í mongólíju á undanförnum árum. gétur verið að hin svokallaða ísöld sem var í evrópu í fyrndinni hafi í raun verið borðurpóllin þá hefur norðuríshafið verið hugsanlega íslaust þá um stundir
kristinn geir steindórsson briem (IP-tala skráð) 8.2.2014 kl. 08:34
1. Loftþrýstingur breytist ekki við eldgos ein og sér (nema að hljóðbylgjur mælast). Talið er að líkur á eldgosum aukist ef jökulfargi léttir af jarðskorpunni - mjög stór eldgos geta valdið skammtímabreytingum á veðurfari - en ekki öfugt. 2. Þótt tveir janúarmánuðir finnist í fortíðinni svipaðir og nú (1943 og 1948) urðu þau ár mjög ólík hvort öðru að veðri og það strax í febrúar. 3. Breytingar á möndulhalla jarðar eða beinnar færslu norðurskautsins koma ekki við sögu veðurfarsbreytinga frá ári til árs (en hallabreytingar hafa áhrif á þúsundum ára). Norðurpóllinn er búinn að vera nokkurn veginn þar sem hann er í tugmílljónir ára og færsla hans skýrir ekki þær ísaldir sem gengið hafa yfir síðustu 3 milljónir ára eða svo.
Trausti Jónsson, 9.2.2014 kl. 02:15
takk vel svarað. en mín reinsla er sú að yfirleit er eithvert sanleikskorn í hjátrú menn eru bara búnir að gleima því hvernig hún varð til. athiglisvert með þessar hljóðbylgjur
kristinn geir steindórsson briem (IP-tala skráð) 9.2.2014 kl. 08:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.