7.2.2014 | 01:33
Þrýsti- og hæðarvikin stóru
Eins og fjallað var um á þessum blöðum fyrir nokkrum dögum var lofthringrás við norðanvert Atlantshaf sérlega óvenjuleg í janúar (og það sem af er febrúar). Við lítum nú á kort sem sýna þetta vel. Gögnin eru fengin frá evrópureiknimiðstöðinni, kortin eru úr smiðju Bolla Pálmasonar kortagerðarmeistara á Veðurstofunni.
Fyrst er það sjávarmálsþrýstingurinn og vik frá meðaltali. Miðað er við tímabilið 1981 til 2010.
Það er hið hefðbundna N-Atlantshafskort sem liggur undir - og ef rýnt er í kortið sjást útlínur landa vel. Kortið þolir talsverða stækkun. Heildregnar gráar línur sýna meðalsjávarmálsþrýsting janúarmánaðar, en litafletir sýna vikin. Á bláu svæðunum er þrýstingur undir meðallagi en yfir því á þeim rauðu. Stærsta neikvæða vikið er beint vestur af Skotlandi - þar er þrýstingur um 20 hPa undir meðallagi, en stærsta jákvæða vikið er milli Norður-Noregs og Svalbarða um 17 hPa yfir meðallagi.
Samtals bæta vikin 37 hPa við austanáttina á svæðinu. Eins og nefnt var í pistli fyrir nokkrum dögum er þessi aukaaustanátt yfir Íslandi ekki alveg dæmalaus - hún var svipuð eða lítillega meiri í janúarmánuðum áranna 1943 og 1948. Annars eru þessi vik svo stór og yfirþyrmandi að þau rúmast varla á kortinu, það táknar að í janúar hefur vestanvindabeltið yfir N-Atlantshafi verið verulega raskað.
Það sést líka vel á korti sem sýnir vik í 500 hPa-fletinum í janúar.
Vikin eru hér síst minni. Reyndar hefur aldrei svo vitað sé verið jafn mikil aukaaustanátt í heilum mánuði í háloftunum yfir Íslandi. Venjulega er ákveðin suðvestanátt ríkjandi í janúar en hér er áttin af suðaustri eða austsuðaustri.
Jákvæða vikið er í hámarki nyrst á kortinu, yfir 200 metrar - það neikvæða er um 190 metrar. Jákvæða vikið er svo stórt að það minnir helst á þau vik sem myndarlegar og þaulsetnar fyrirstöðuhæðir gefa af sér. Við ræddum nokkrum sinnum um þessa fyrirstöðu í pistlum í janúar - en hún var aldrei mjög stór eða sterk miðað við það sem mest verður. Hins vegar var hún svo rækilega þaulsetin að hún skilur eftir sig mestu austanátt við Ísland sem vitað er um - og næsthæsta janúarhita á Teigarhorni frá 1873. Þetta var aldeilis lúmskt.
En nú virðist jákvæða vikið vera að þokast austar - en það neikvæða situr eftir - alla vega í viku til viðbótar. Hver stórlægðin á fætur annarri gengur inn á Bretland úr vestri - og stöðvast þar. Þegar lægðirnar eru að stöðvast og fara að grynnast breiða þær úr sér og við fáum röð úrkomubakka yfir okkur úr suðaustri. Spurningin er hversu lengi þetta hlýja loft úr suðaustri getur haldið kaldri norðanátt í skefjum þegar hæðin er að hörfa. Við sjáum hvað setur.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.3.): 39
- Sl. sólarhring: 72
- Sl. viku: 1720
- Frá upphafi: 2452597
Annað
- Innlit í dag: 35
- Innlit sl. viku: 1588
- Gestir í dag: 34
- IP-tölur í dag: 33
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.