Alaska og Svartahaf

Mestu hlýindin í Alaska virðast vera búin - að minnsta kosti í bili. Við lítum hér að neðan á kveðjustund þeirra. Auk þess gjóum við augum til Svartahafsins í tilefni ólympíuleikanna.

Hlýindin í Alaska hafa verið með nokkuð öðrum hætti en hér á landi. Hér er aðalástæðan sérlega þrálát en tiltölulega hlý austanátt í óvenju lágum loftþrýstingi. Það að þrýstingur hefur verið lágur táknar að lægðabeygja hefur verið á þrýstisviðinu mestallan austanáttartímann - loftið hefur þar af leiðandi ekki verið af norrænum uppruna. Það hefur hins vegar dvalið yfir hlýjum sjó sunnan við land sem sveigt hefur í töluverðri kreppu kringum lægðarmiðju, fyrst austur fyrir en síðan til vesturs yfir okkur. Hefði þrýstingur verið hár - eða í meðallagi er mun líklegra að austanáttin hefði í sífellu fært okkur loft að norðan (hæðarbeygja).

Í Alaska hefur staðan verið þannig að þar hefur lengst af ríkt mjög öflugur hæðarhryggur í háloftunum - hlýtt loft sem ýmist er komið langt að sunnan eða hefur hlýnað í miklu niðurstreymi á leið úr suðri. Hæðarhryggurinn er nú „að toppa“ - eins og nú er gjarnan tekið til orða. Gríðarleg háloftahæð er yfir svæðinu - en virðist nú gefa eftir. Lítum á spá evrópureiknimiðstöðvarinnar um 500 hPa hæð og þykkt um hádegi á föstudag.

w-blogg060214a 

Það tekur smátíma að ná áttum. Ör bendir á norðurskautið og austasti hluti Síberíu er undir hæðarmerkinu. Jafnhæðarlínur eru heildregnar, því þéttari sem þær eru því meiri er vindurinn. Hæðin er um 5770 metrar í miðju - þetta er með því mesta sem gerist svona norðarlega. Við sjáum gríðarlegan norðanstreng yfir Alaska vestanverðu - vestan við mjög krappa háloftalægð sem er á leið suður og út á Alaskaflóa. Svona stöðu viljum við ekki sjá hér á landi - ofsaveður af norðri við brött fjöll og blindhríð á láglendi.

Þykktina má ráða af litunum - hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Á öllu græna svæðinu er óvenjuhlýtt - en kalt er í lægðinni kröppu. Þetta er þó ekki svo mjög kalt loft miðað við það sem oft er á þessum slóðum í febrúar. Við getum talið okkur niður í fjórða bláa lit, en í honum er þykktin á milli 5040 og 5100 metrar. Ef hæðin legðist aftur yfir á eftir lægðardraginu væri það vel sloppið í jafnmikilli norðanátt - en reiknimiðstöðin gerir hins vegar ráð fyrir því að hún falli saman á nokkrum dögum og næsta lægðardrag komi þykktinni vel niður fyrir 5000 metra - alvörukulda.

Þessar breytingar við Alaska munu raska hringrás á öllu norðurheimskautssvæðinu - kannski verða einhverjar breytingar hér á landi í framhaldi af því. Þær breytingar munu - ef af verður - taka nokkurn tíma. Við fylgjumst með því síðar.

En lítum líka til suðausturs - þannig að við getum séð hvernig háloftastraumum er háttað í kringum Svartahaf (og mun stærra svæði). Kortið gildir á sama tíma og kortið að ofan - um hérlent hádegi á föstudag. Það sýnir líka hæð og þykkt 500 hPa-flatarins.

w-blogg060214c 

Litli rauði krossinn er settur nærri Sotsji - ólympíuborginni. Ísland sést alveg eftst á myndinni. Hér er allt með mildari hætti en yfir Alaska - jafnhæðarlínur mjög gisnar og engar stórar lægðir eða hæðir - nema kuldapollur norður af Aralvatni. Þykktin yfir Sotsji er eins og snemmsumars hér á landi (og við strönd Norður-Síberíu á kortinu að ofan).

Þetta er allt eins og verið hefur um langa hríð. Háloftalægðir og lægðardrög koma úr vestri yfir Bretlandseyjum en brotna þar og mynda veikan hæðarhrygg - sem stöku sinnum hefur orðið að veikri fyrirstöðuhæð - mjög ólíkri hæðarskrímslinu á Alaskakortinu. Þó verður að segja að hryggurinn er aðeins að hörfa til austurs sem gefur kaldara lofti úr norðri meiri möguleika hér en verið hefur.

Næstu vikuna eða svo munu grunn háloftalægðardrög og veikir hryggir berast til austurs um Svartahaf. Hlýindi verða við ströndina - og frostlausu er spáð í 1500 metra hæð næstu vikuna. Vonandi verða hlýindin ekki til vandræða - eins og var um tíma á olympíuleikunum í Vancouver. En svo er að sjá að ekki séu nein sérstök illviðri á leiðinni á leikana.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Langtímaspáin: "Teikn er á lofti ... Í 40 daga og 40 nætur mun rigna!" Og enginn kippir sér upp við neitt, spáin alltaf "eins"!!!

http://visir.is/section/FRONTPAGE

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 6.2.2014 kl. 13:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 18
  • Sl. sólarhring: 218
  • Sl. viku: 1334
  • Frá upphafi: 2349803

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 1218
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband