5.2.2014 | 01:20
Austanáttin óvenjulega (mest fyrir nördin)
Nú hefur komið í ljós að nýliðinn janúar raðast meðal mestu austanáttamánaða síðustu 140 ára. Hér eru þrenns konar mælingar lagðar til grundvallar röðunar. Í fyrsta lagi er fundinn munur á meðalmánaðarloftþrýstingi í Vestmannaeyjum og á Akureyri. Þessi mælitala er til allt aftur til ársins 1877 (fyrsti janúarmánuðurinn í röðinni er 1878). Því meiri sem munurinn er - því meiri er austanáttin.
Þarna er janúar 2014 í þriðja efsta sæti (austanmegin), aðeins janúarmánuðir áranna 1943 og 1948 slá hann út.
Í öðru lagi er meðalvigurvindátt janúarmánaðar reiknuð. Þeir reikningar ná aftur til janúar 1949. Enginn slær 2014 út á öllu tímabilinu í keppnisgreininni.
Í þriðja lagi er reiknaður munur á loftþrýstingi á 60°N og 70°N - hann segir til um þrýstivind yfir Íslandssvæðinu. Við njótum hjálpar evrópureiknimiðstöðvarinnar og amerísku veðurendurgreiningarinnar. Greiningin nær aftur til 1871 - en er ekki áreiðanleg fyrstu áratugina. Hér skýst janúar 2014 upp á milli 1943 og 1948, sá síðastnefndi er á toppnum sem fyrr.
Að auki lítum við líka á bratta 500 hPa-hæðarsviðsins milli sömu breiddarstiga - en hann segir okkur til um ríkjandi vinda í miðju veðrahvolfinu. Þar var austanáttin í janúar svo mikil að ritstjórinn hrökk við þegar hann sá töluna - langt, langt ofan við næstmestu háloftaaustanáttina í janúar 1948 og síðan 1974. Aðeins einn mánuður á öllu tímabilinu var með viðlíka austanátt (en þó aðeins minni). Það var desember 1978. Veðurreynd þess mánaðar var hins vegar mjög ólík janúar nú - eins og forgömul veðurnörd muna. Desember 1978 var undanfari kuldaársins mikla, 1979.
Út frá bratta þrýstisviðs við jörð og bratta háloftasviðsins er auðvelt að reikna bratta þykktarsviðsins. Bratti þess segir til um hversu mikill hitamunur er á milli 60°N og 70°N. Í ljós kemur að hann var mun minni en að meðaltali nú í janúar - en ekkert nálægt meti.
Já, janúarmánuður var sannarlega óvenjulegur að þessu sinni og febrúar byrjar í svipuðum farvegi.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.3.): 96
- Sl. sólarhring: 98
- Sl. viku: 1777
- Frá upphafi: 2452654
Annað
- Innlit í dag: 88
- Innlit sl. viku: 1641
- Gestir í dag: 84
- IP-tölur í dag: 81
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Trausti, mig vantar sárlega mánaðarmeðaltalsvindhraða og mánaðarmeðaltalsloftþrýsting á Stórhöfða (og jafnvel Surtsey og Vestm.bæ líka) síðan 1.maí 2013. Einnig sakna ég meðaltal hámarks og lágmarkshita. Og svo líka meðaltal fyrir árið 2013 fyrir sömu mæla. Nýtt tölvupóstfang: palmifreyroskarsson@gmail.com
Pálmi Freyr Óskarsson, 5.2.2014 kl. 03:52
Já, febrúar byrjar hlýr og loksins kemur regnið sem vonandi vinnur eitthvað á klakanum.
Eftir helgi er hins vegar spáð kólnandi veðri og frosti, sem gleði manna yfir hlýjum febrúar gæti breyst í sorg.
Eins og áður hefur komið fram er veðrið í vestan- og norðanverðri Evrópu mjög sérkennilegt. Meðan lægðirnar virðist hafa tekið sér bólfestu á Bretlandseyjum, með mestu flóðum í manna minnum, þá hefur ekki komið dropi úr lofti í norðanverðum Noregi.
http://www.yr.no/nyheter/1.11515651
Þessi veðrátta, með viðvarandi austanáttum hér á landi, hefur valdið því að fjöldi flækingsfugla er kominn til landsins eins og sagt var frá í Kastljósinu í gær (já loksins eitthvað áhugavert þar á bæ!!).
Torfi Kristján Stefánsson, 5.2.2014 kl. 13:57
skrýtið hvað veðrið er ávallt óvenjulegt !
Glódís Karin E. Hannesdóttir (Kaja) (IP-tala skráð) 5.2.2014 kl. 16:47
Skrítin þessi sífellda hálka og klaki:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/02/05/i_heidmork_a_halum_is/
Torfi Kristján Stefánsson, 5.2.2014 kl. 20:22
Hæsti loftþrýstingur janúar 2014 á Stórhöfða sýnist mér í fljótu bragði vera 3 lægsti-hæsti loftþrýstingur í janúar á Stórhöfða síðan árið 1949.
Svo finnst mér merkilegt í austan-átt á Stórhöfða í janúarmánuði 2014, að það fór aðeins sex sinnum yfir 28 m/s. og nokkuð oft undir 5 m/s. í meðalvind í þessum lágþrýstingi.
Enn sennilega átti Eyjafjallajökull mikið þátt í því.
Pálmi Freyr Óskarsson, 5.2.2014 kl. 23:11
Ég er forvitinn um austlægar áttir árið 1979, sem mig minnir að hafi verið óvenjulega langvinnar.
Einnig, hvort á því ári hafi suðvestan- eða vestanáttir verið sjaldgæfari en í nokkurn annan tíma.
Ómar Ragnarsson, 5.2.2014 kl. 23:50
Ómar, austlægar vindáttir voru yfir meðallagi 1979 - en það var samt fyrst og fremst þrálát norðanáttin sem einkenndi það ár - en það má rifja upp pistil hér á hungurdiskum frá í fyrra. Þar var fjallað um tíðni útsynnings. Pálmi - ég skal senda þér þessar tölur fljótlega. Glódís - veðrið kemur sífellt á óvart - hefur gert það á allri minni veðurminnistíð.
Trausti Jónsson, 6.2.2014 kl. 01:25
Óvæntleikinn og fjölbreytnin er eitt af því sem gerir veðrið svo skemmtilegt.
Sigurður Þór Guðjónsson, 6.2.2014 kl. 16:15
... svo kemur auðvitað meint "undirliggjandi hnatthlýnun" sífellt á óvart með því að láta ekki á sér kræla! :)
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 6.2.2014 kl. 17:06
Ég bíð enn.
Ég vil benda á að vistorhofdi@simnet.is virkar ekki síðan áramót. Og því er nýja tölvupóstfangið palmifreyroskarsson@gmail.com.
Pálmi Freyr Óskarsson, 7.2.2014 kl. 21:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.