30.1.2014 | 01:38
Skörp skil koma inn á Suðvesturland
Skörp skil koma inn á Suðvesturland síðdegis á fimmtudag (30. janúar). Að baki skilanna snjóar nokkuð. Þegar þau koma inn á land verða þau enn í nokkurn veginn heilu lagi - en útsynningur sem ætti kannski að fylgja í kjölfarið um aðfaranótt föstudags virðist ekki ætla að komast til landsins vegna ört dýpkandi lægðar suður í hafi. Hún fer að snúa lofti yfir mestöllu Norður-Atlantshafi í kringum sig - og dregur upp austanátt hér á landi.
Kortið (evrópureiknimiðstöðin) sýnir hita og vind í 925 hPa-fletinum auk hæðar hans (í dekametrum). Þessi flötur verður í um 540 metra hæð yfir Reykjanesi þegar kortið gildir - en það er klukkan 15 á fimmtudag (30. janúar).
Hefðbundnar vindörvar sýna vindátt og vindhraða en litafletir hita. Mörk grænu og bláu litanna er við -4 stig. Kortið þolir töluverða stækkun ef smellt er á það tvisvar.
Á undan skilunum er suðaustanátt og frostleysa á láglendi - en norðvestanátt á eftir þeim og hiti þá nærri frostmarki á láglendi. Norðvestanátt hefur tilhneigingu til þess að leggjast fljótt í vestur við Faxaflóa.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi staða kemur upp nú í janúar. Mikil blinda var á vegum úti vegna þess að klessusnjór settist á vegstikur og veglínur - þótt skafrenningur væri nánast enginn á láglendi. Frost er á heiðum og þar getur skafið.
Þetta er spennandi staða fyrir okkur sem fylgjast með lágmarkshitanum á Stórhöfða og á Vattarnesi - en enn er hugsanlegt að allur mánuðurinn líði á þess að hiti fari niður fyrir frostmark á þessum stöðvum. Stórhöfði verður í hættu í snjókomunni - hiti gæti þar hæglega farið rétt undir frostmarkið. Annar tími frosthættu rennur upp aðfaranótt föstudags - þegar birtir upp að aflokinni snjókomunni.
Ritstjórinn reyndist þurfa að loka pistli gærdagsins og eru almennir lesendur beðnir velvirðingar. Ástæðan var sú sama og áður - deilur þær um páfadóm sem ekki eiga heima á síðum hungurdiska.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 01:40 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.3.): 6
- Sl. sólarhring: 249
- Sl. viku: 1203
- Frá upphafi: 2452934
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 1099
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Stórhöfði er sprunginn á limminu með -0,2!
Sigurður Þór Guðjónsson, 30.1.2014 kl. 18:29
Sigurður - þetta hlýtur að þýða að það sé að kólna og það jafnvel á heimsvísu...
Sveinn Atli Gunnarsson, 30.1.2014 kl. 19:13
En Vattarnes þybbast við.
Sigurður Þór Guðjónsson, 30.1.2014 kl. 19:21
Já Sigurður Þór, og það á síðustu metrunum af janúarmánuðunum.
Og ekki stóð þetta frost dagsins lengi. Eða bara nokkrar mínútur (eða þegar mælirinn var þurrkast).
Enn það hefur samt ýmislegt merkilegt gerst í veðrinu í janúar 2014 á Stórhöfða.
Og læt ég Trausta um það að segja það hér á blogginu ef hann hefur áhuga á því.
Pálmi Freyr Óskarsson, 30.1.2014 kl. 19:26
Sumir liggja á bæn en aðrir ekki :D
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 30.1.2014 kl. 19:33
Höfðarnir okkar klikka á síðustu metrunum ekki síður en strákarnir okkar!
Sigurður Þór Guðjónsson, 30.1.2014 kl. 20:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.