22.1.2014 | 01:48
Mjór fleygur af (ekki svo) köldu lofti
Eftir austan- og norðaustanáttina sem hefur verið ríkjandi þennan mánuð allan (og að minnsta kosti tíu dögum betur) er nú útlit fyrir að áttin snúist eitt andartak til vesturs og suðvesturs. Síðan á austan- og norðaustanáttin að taka aftur við. En smátilbreyting samt - því kannski snjóar hér suðvestanlands ofan í klakann.
En við lítum á spákort evrópureiknimiðstöðvarinnar sem sýnir sjávarmálsþrýsting, úrkomu og hita í 850 hPa-fletinum síðdegis á morgun, miðvikudag 22. janúar.
Við sjáum strax að hæðin yfir Skandinavíu heldur enn og hindrar hreyfingar lægða til austurs. Þær hafa hins vegar að einhverju leyti fengið farveg suður um Frakkland og valdið flóðum við Miðjarðarhaf.
Mikið lægðardrag og flókið er við Ísland og kemst ekki langt en mjakast til norðurs og norðausturs. Þegar það fer inn á land snýst til vestanáttar sunnan við. Lægðardraginu fylgir drjúg úrkoma - rigning í hlýju lofti norðan við en slydda eða snjókoma sunnan við. Vegna þess hversu hægfara lægðardragið er getur úrkoman orðið allmikil - snjór eða regn. Það er að skilja á spám að það geti snjóað á Suðvesturlandi á miðvikudagskvöld eða aðfaranótt fimmtudags - en við látum Veðurstofuna að vanda fylgjast með því.
Aðaléljagangurinn verður talsvert langt sunnan við land og við komumst varla í heiðarlegan útsynning að þessu sinni. Það fer að verða merkilegt hvað hann forðast okkur. En lægðin í suðvesturhorni kortsins nálgast hratt og rekur smáfleyg af köldu lofti á undan sér. Hann sést best á myndinni hér að neðan.
Þetta er þykktarkort sem gildir sólarhring síðar en kortið að ofan - síðdegis á fimmtudag, 23. janúar. Jafnþykktarlínur eru heildregnar - en litafletir sýna hita í 850 hPa-fletinum. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs, því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Hlýja loftið sem hefur verið yfir landinu undanfarna daga hefur hér hörfað til norðausturs. Þetta er ekkert sérstaklega hlýtt loft - en hefur samt með seiglu verið að mjaka koma mánuðinum ofar og ofar á hitalistum.
Miklu hlýrra loft fylgir næstu lægð - en aðalhlýindin fara samt hjá fyrir suðaustan land og styrkja hæðina góðu. Kaldi fleygurinn er ekki svo sérstaklega kaldur, jafnþykktarlínan sem liggur til austsuðausturs um landið vestan- og sunnanvert sýnir 5200 metra. Þetta minnir satt best að segja frekar á október heldur en janúar. En samt - það snjóar trúlega.
Lægðin nýja fer svo langt með að bræða þennan snjó - og óskastaðan er sú að hún bræði aðeins meira til þannig að klakinn hræðilegi hjaðni.
Síðan kemur enn öflugri lægð á sunnudag - en þrátt fyrir atgang segja spár að hún ráði ekki heldur við fyrirstöðuhæðina. Meðan sú víkur ekki getur varla orðið kalt hér á landi nema stutta stund - og þá aðeins í útgeislunarsveitum.
Enn mun bæta í úrkomuna á Austurlandi. Hún var í morgun (þriðjudag) farin að nálgast 500 mm á Hánefsstöðum í Seyðisfirði, Neskaupstaður er kominn í 300 mm, eins Desjarmýri á Borgarfirði eystra og svipað á Gilsá í Breiðdal. Skjaldþingsstaðir í Vopnafirði eru líka vel yfir 300 mm það sem af er mánuði. Vestanlands er úrkoma langt undir meðallagi - en ekki tekur nema einn eða tvo daga að bæta úr því ef hann snýr sér á áttinni.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.1.): 1053
- Sl. sólarhring: 1112
- Sl. viku: 3443
- Frá upphafi: 2426475
Annað
- Innlit í dag: 940
- Innlit sl. viku: 3096
- Gestir í dag: 912
- IP-tölur í dag: 845
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.