Inni á topp tíu (í milliriðli)

Hitinn í janúar er nú kominn inn á topp-tíu listann - varlegt er þó að trúa því að hann haldi það út. En er á meðan er. Við lítum fyrst á Reykjavíkurlistann frá 1949 að telja:

 

röðármánmhiti
1197214,91
2196414,66
3197314,40
4200214,08
5199613,44
6195013,06
7201313,04
8201412,84

Núlíðandi janúarmánuður er í 8. sæti. Sá í fyrra í því sjöunda. Hér er i öllum tilvikum liðnir 19 dagar af 31. Við getum líka virt fyrir okkur lokalista janúarmánaða allt aftur til 1871 (því við eigum ekki dægurmeðaltöl nema aftur til 1949). 

 

ármánmhiti
196413,52
194713,26
198713,14
197212,96
197312,96

Þrír af þessum fimm eru líka á efri listanum, en 1987 hefur átt góðan endasprett upp í topp 3 en 1947 er eini eldri janúarmánuður á topp fimm listanum.

Svipað er á Akureyri.

 

STODármánmhiti
1197214,10
2197314,04
3200213,17
4196413,00
5195712,16
6201411,74

Núlíðandi janúar er í 6. sæti en á fleiri keppinauta frá fyrri tíð, það er 1933, 1935, 1946 auk 1947 sem er hlýjastur allra norðanlands.  

En við þökkum fyrir þó þetta. Segja má að mánuðurinn sé rétt eins og handboltalandsliðið komið í milliriðil - en eins og þar er spurning um úthald á lokasprettinum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þakkir fyrir þessa samantekt Trausti.

Samkvæmt þessum staðfestu tölum

7.   2013  janúar                3,04

8.  2014  janúar                 2,84

er ljóst að árið 2014 stefnir í að verða kaldara en 2013 á Íslandi! 

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 20.1.2014 kl. 13:54

2 identicon

Eigum við ekki að fara aðeins rólega í hlutina Hilmar? Trausti neyddist til að fjarlægja síðustu færslu vegna leiðinda á kommentakerfinu - og það ekki í fyrsta sinn. Við skulum vona að svo fari ekki aftur.

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 20.1.2014 kl. 14:08

3 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Mér finnst hann Hilmar vera óvenju spakur kl. 13:54, Torfi.

Svo finnst mér þetta vera fyrsta sinn sem hann Trausti fjarlægir leiðindin hérna, Torfi.

Svo tengt færslunni (samkvæmt óskrifaða reglu til að réttlæta að setja athugunarsemdarfærslu hér). Meðalhiti janúarmánaðar 2014 á Stórhöfða er eins og er 4,1°C. Sem er með því hæsta hér í bæ. Er það ekki annars Trausti? Og í þokkabót hefur ekki enn komið frost á höfðanum í þessum mánuði.

Pálmi Freyr Óskarsson, 20.1.2014 kl. 15:48

4 Smámynd: Trausti Jónsson

Jú, Pálmi, 4,1 stig koma fyrstu 20 dögunum í á Stórhöfða í 7. sæti á 66-ára hita listanum (frá og með 1949) og ef þetta héldist út mánuðinn myndi hann lenda í 5. sæti á Höfðanum (frá og með 1922 að telja). Enginn janúar á tímabilinu 1869 til 1921 er þar nærri. Það er líka mjög óvenjulegt að ekki hafi enn komið frost eftir 20 daga. Það hefur þó gerst að minnsta kosti tvisvar áður, 1964 og svo 2002. Í báðum tilvikum kom frost síðar í mánuðinum þannig að hæsti lágmarkshiti janúarmánaðar á Stórhöfða sýnist mér vera -1,2 stig. Það var 1973. Mjög ólíklegt er að þið sleppið alveg við frost að þessu sinni - þótt ekki sé spáð neinum hörkum næstu daga.

Trausti Jónsson, 21.1.2014 kl. 00:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 45
  • Sl. sólarhring: 109
  • Sl. viku: 1536
  • Frá upphafi: 2348781

Annað

  • Innlit í dag: 42
  • Innlit sl. viku: 1340
  • Gestir í dag: 39
  • IP-tölur í dag: 38

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband