Rakasnið

Hér verður (eins og oft áður) malað um einhverja smámuni í stöðu dagsins sem litlu sem engu skipta. Textinn er frekar þykkur og sjaldséð hugtök ríða húsum. - Aðvörun lokið.

w-blogg03113a 

Hér er fyrst spá harmonie-líkansins um sjávarmálsþrýsting, vind og úrkomu kl. 21 á sunnudagskvöld 3. nóvember. Jafnþrýstilínur eru heildregnar, hefðbundnar vindörvar sýna vindstefnu og vindhraða og úrkoma sýnd í litum. Eina úrkoman á kortinu eru nokkrar grænar klessur þræddar upp á línu sem liggur skammt út af landinu suðvestanverðu. Þetta er dálítill úrkomubakki sem líkanið hefur kreist út úr sýndarlofthjúpi sínum. Ekki er þetta mikið og alls ekki víst að raunheimar sýni það sama kl. 21 - en áhugasamir gætu gefið bakkanum gaum.

Næst er þversnið úr líkaninu. Það liggur eftir 23. lengdarbaug til norðurs rétt vestan við land. Legu sniðsins má sjá á litla Íslandskortinu í efra hægra horni (myndin batnar heldur við stækkun).

w-blogg03113b 

Hér hefur verið fjallað um þversnið af þessu tagi áður. Förum samt yfir táknmálið. Lárétti ásinn sýnir breiddarstig - norður eftir 23°V. Fjöllin á Snæfellsnesi sjást sem grár toppur við miðjan ásinn og Vestfjarðafjöllin eru önnur grá klessa lengra til hægri. Hornstrandir þar hægra megin. Lóðrétti ásinn sýnir þrýsting, hann minnkar auðvitað upp á við. Efst er merkt við 250 hPa - sá flötur er í um það bil 10 km hæð.

Litafletirnir sýna vind. Á öllum grænum svæðum er vindur lítill, minni en 10 m/s. Bláu svæðin sýna meiri vind. Hefðbundnar vindörvar sýna vindstefnuna en sérstaklega þarf að gæta að því að enginn lóðréttur vindur er sýndur. Ör sem liggur eins og suðaustanátt á hefðbundnu veðurkorti er líka suðaustanátt í þversniðinu.

Heildregnu línurnar sýna mættishita. Það er sá hiti sem loftið hefði ef það væri dregið niður til 1000 hPa þrýstings (ekki fjarri sjávarmáli). Mættishiti vex alltaf upp á við - í besta falli breytist hann ekki með hæð. [Þetta er nærri því satt - stöku sinnum má sjá hið gagnstæða alveg neðst á svona myndum, þar er mikið uppstreymi]. Þar sem hann breytist ört með hæð (línurnar eru þéttar) er loft stöðugt - jafnvel er um hitahvörf að ræða.

Veðrahvörfin sjást ekki á þessari mynd - þar eru jafnmættishitalínur gríðarlega þéttar. Þau sjást hins vegar mjög oft á sniðum eins og þessu - en ekki í dag. Örin sem merkt er með bókstafnum a bendir á svæði þar sem mættishitalínurnar eru þéttari en annars staðar. Þar eru líklega svokölluð kvikuhitahvörf. Þar undir eru fáar línur - loftið er mjög vel blandað.

Sniðið gengur í gegnum úrkomubakkann á fyrri myndinni. Satt best að segja þarf maður að vita af honum til að geta séð hann. Örin sem merkt er með bókstafnum b sýnir hvar þetta er. Þar liggur ljósblátt svæði þar sem vindhraði er aðeins meiri en í kring frá jörð og upp í um 600 hPa (um 4 km hæð).

Lítum nú á annað snið á sama stað - en nú er rakinn aðalatriði myndarinnar.

w-blogg03113c 

Ásarnir sýna það sama og áður - og sömu fjöll sjást á myndinni. Litafletir sýna rakastig, bláir litir tákna rakt loft en gulleitir þurrt. Heildregnu línurnar sýna svokallaðan jafngildismættishita (æ). Skilgreiningin er sú sama og á mættishita að því leyti að við flytjum loftið niður í 1000 hPa en til viðbótar leysum við dulvarma loftsins úr læðingi og hitum það með því. Jafngildismættishitinn er því allaf hærri heldur en mættishitinn fyrir sama loft.

Að jafnaði hækkar jafngildismættishitinn með hæð eins og þurri bróðirinn, en getur þó lækkað. Dæmi um það sést á þessari mynd. Örin sem merkt er með bókstafnum b sýnir svæði (rör) þar sem jafngildismættishitinn er á bilinu 292 til 294 Kelvinstig (um 20°C) nánast frá jörð og upp í 600 hPa. Þar er rakastig líka mun hærra heldur en umhverfis (á bilinu niður í um 800 hPa. 

Þeir sem treysta sér til að rýna í myndina (hún batnar við stækkun) sjá að sitt hvoru megin við rörið er jafngildismættishitinn lægri heldur en bæði ofan og neðan við. Hvað hefur gerst?

Líklega það að rakt loft hefur komið að sunnan (frá vinstri) og skotist undir þurrara loft. Eitthvað (við sjáum ekki hvað það er) hefur orðið til þess að lyfta raka loftinu lítilsháttar. Við það þéttist rakinn, dulvarmi þess losnar og hitinn hækkar. Þetta er þó ekki meira en svo að þess sér mjög lítil merki á efri myndinni. Það sést þó - einmitt þar sem rörið er á neðri myndinni hafa jafnmættishitalínurnar gliðnað lítilsháttar (meira bil er þar á milli línanna heldur en til hvorrar handar). Ritstjórinn verður þó að játa að hann hefði alls ekki tekið eftir þessu nema eftir því að hafa séð rakasniðið.

Þar sem rakt loft með hærri jafngildismættishita liggur undir lofti þar sem hann er lægri býr yfir veltimætti sem kallað er. Það getur legið í friði í bæli sínu - en sé stuggað við því þannig að lóðrétt streymi fari af stað og dulvarminn losnað raskast jafnvægið og loftið getur farið að veltast um og blandast. Það getur haft víðtækar afleiðingar.

En hér er þetta bara smáatriði sem þó gæti valdið hálku suðvestanlands á sunnudagskvöld eða aðfaranótt mánudags.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 41
  • Sl. sólarhring: 74
  • Sl. viku: 439
  • Frá upphafi: 2343352

Annað

  • Innlit í dag: 35
  • Innlit sl. viku: 395
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 32

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband