Ţurr október í Reykjavík

Eins og fram hefur komiđ á fréttasíđu Veđurstofunnar var október sá ţurrasti í Reykjavík síđan samfelldar úrkomumćlingar hófust ţar áriđ 1920. Í eldri syrpu (1884 til 1907) leynist einn ámóta ţurr, 1892 - ţá mćldist mánađarúrkoman 17,9 mm en 18,9 mm nú. Í eyđunni var mćlt á Vífilsstöđum í október 1911 til 1917 og sömuleiđis 1919 - en enginn mánuđur ţar var svona rýr.

Í eyđunum sem út af standa var enginn sérlega ţurr október. Sennilega eru keppinautar um lágmarksoktóber ekki fleiri frá 1884. Reyndar var úrkoma í Reykjavík (og í Nesi viđ Seltjörn) líka mćld á árunum 1829 til 1854. Ţar er einn ofurţurr október, 1843. Jón Ţorsteinsson mćldi ţá ađeins tveggja mm úrkomu. Óráđ er ţó ađ gefa út heilbrigđisvottorđ á ţá tölu ađ óathuguđu máli ţví Jón mćldi ekki á hverjum degi - nokkrir rigningardagar voru gjarnan teknir saman. Viđ ţennan hátt týnist óhjákvćmilega eitthvađ (í uppgufun) auk ţess sem slíkar tveggja til fjögurra daga syrpur geta legiđ yfir mánađamót. Annars eru mćlingar Jóns mjög trúverđugar.

En ţađ mćldust ţó nćrri 19 mm nú - ţađ er langt í frá ţví ađ vera ekki neitt og dagar međ eins mm úrkomu eđa meiri voru sex. Koma ţá upp í huga gamlar (og stöđugar) vangaveltur ritstjórans um árstíđasveiflur. Lítum á myndina.

w-blogg021113 

Lárétti ásinn sýnir mánuđi ársins en sá lóđrétti millimetra. Súlurnar segja til um lágmarksúrkomu hvers mánađar í Reykjavík. Bćđi tímabilin eru undir, 1884 til 1907 og frá og međ 1920. Ţađ sker í augu ađ síđustu fjórir mánuđir ársins eru mun tryggari í sínum háttum heldur en hinir.

Einhverju lítilsháttar munar um ađ september og nóvember eru deginum styttri heldur en október og desember - en langt í frá ađ skýra muninn. Hinn stutti febrúar lćtur sig ekki muna um ađ vera ofan viđ janúar og mars. Júlímánuđur sýnist hér sýnu úrkomutryggari heldur en maí, júní og ágúst. Trúlega er ţađ tilviljun - okkar bíđur alţurr júlí [Jón á tvo međ 3 mm]. En júlílágmarkiđ er ekki hátt, ađeins 11,5 mm, frá 2009 - alls ekki úr löngu liđinni fortíđ.

Hér stóđ til ađ sýna ađra mynd. Á henni er hlutfall lágmarksins af međalúrkomu mánađarins sýnt. Sannleikurinn er sá ađ munur á myndunum tveimur er lítill - sú síđari ţá tilgangslítil. En ţeir sem vilja sjá hana geta litiđ á viđhengiđ. Jú, júlí fer upp fyrir nóvember. [Nafniđ á skránni er best].

Um síđir munu afburđaţurrir haustmánuđir sýna sig og hafa örugglega komiđ í fortíđinni. Jón Ţorsteinsson á alţurran september (ótrúlegt?) og 5 mm nóvember. En desember heldur alveg [hvađ međ desember 1872 og 1878? - ţá var ekki mćlt í Reykjavík].


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki var ţetta nú góđur mánuđur, undir međalhita kuldaáratugana og hálfri gráđu kaldara en međalhiti síđustu 10 ára.Hafa ţrír mánuđir undir međallagi ekki komiđ í röđ í Reykjavík síđan 1999. Ćtli kólnunarspár Páls Bergţórssonar séu ađ verđa ađ raunveruleika?

"Hiti

Međalhiti í Reykjavík var 4,2 stig, 0,2 stigum neđan međallags áranna 1961 til 1990 en 0,5 stigum undir međallagi síđustu tíu ára. Talsvert kaldara var í október 2008. Mánuđurinn var sá ţriđji í röđ mánađa undir međallagi. Hafa ţrír mánuđir undir međallagi ekki komiđ í röđ í Reykjavík síđan 1999. Hafa verđur í huga ađ vikin nú eru mjög lítil. Í Stykkishólmi var međalhitinn 4,1 stig og er ţađ 0,3 stigum yfir međallagi. Á Akureyri mćldist međalhiti 2,7 stig og er ţađ 0,3 stigum neđan međallags 1961 til 1990 en 0,4 stigum undir međallagi síđustu tíu ára. Á Höfn í Hornafirđi var međalhitinn 4,7 stig og -1,2 stig á Hveravöllum, ţađ er í međallagi." af vedur.is

Hermundur Sigurdsson (IP-tala skráđ) 2.11.2013 kl. 19:51

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 400
  • Sl. viku: 1579
  • Frá upphafi: 2350206

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 1453
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband