Molar um 20 stiga hita í Reykjavík

Tuttugu stig eru svo sannarlega sjaldséđ í Reykjavík. Hámarkshiti hefur ţar veriđ mćldur daglega frá ţví í maí 1920 og eru ađeins 54 dagar á 93 sumrum sem státađ hafa 20 stigunum. Rétt rúmlega annađ hvert ár ađ međaltali. En 20 stiga sumrin eru ekki nema 28 - ţriđja hvert ár. Á Akureyri eru sjö dagar á ári (ađ jafnađi) tuttugustigadagar og ađeins 4 sumur af 76 eru tuttugustigalaus.

Síđustu tíu ár (2003 til 2012) hafa veriđ gćf Reykvíkingum ţví átta af ţeim hafa veriđ tuttugustigasumur, en ađeins er ţriggja ađ vćnta sé tekiđ miđ af langtímameđaltalinu. Engin samfelld tíu ára tímabil önnur hafa veriđ jafngćf og hin síđari ár.

Áriđ 2004 voru tuttugustigadagarnir fimm og fjórir áriđ 2008. Á síđustu tíu árum eru tuttugustigadagarnir alls 16 og hafa aldrei veriđ svo margir á tíu árum. Nćst ţessu kemst tímabiliđ 1936 til 1945 međ fjórtán daga. Ţar af voru sjö tuttugustigadagar í Reykjavík áriđ 1939 og hafa aldrei orđiđ fleiri á einu sumri.

Áriđ 1939 á líka síđasta tuttugustigadaginn í lok sumars, 3. september. Sá fyrsti ađ vori kom 14. maí 1960.

Lengst hafa liđiđ 16 ár á milli tuttugustigadaga í Reykjavík, 5844 dagar frá 8. júlí 1960 til 9. júlí 1976. Menn mega gjarnan leggja ţessa tölu á minniđ. Eins og minnst var á í Akureyrarpistlinum munađi ţó litlu ađ ţessi röđ slitnađi ţegar hitinn fór í 19,9 stig 5. ágúst 1969.

Nćstlengsta biđin var frá 31. júlí 1980 til 27. júlí 1990, tíu ár eđa 3647 dagar. Biđin var nćrri ţví eins löng frá upphafi hámarksmćlinganna 1920 og fram til ţess tíma ađ hámarksmćlirinn sýndi 20 stig í fyrsta sinn, 6. júlí 1927.

Sćmilegar heimildir um hámarkshita eru einnig til á tímabilinu frá 1885 til 1907 en ţá var reyndar enginn hámarksmćlir á stađnum, en lengst af síriti sem lesa mátti af hćsta hita dagsins međ talsverđri nákvćmni. Á ţessu 23 ára tímabili fór hiti 12 sinnum í 20 stig, en tuttugustigaárin voru hins vegar ađeins sex - rétt eins og langtímameđaltaliđ 1920 til 2012 gefur til kynna.

Elta má uppi ţá daga ţegar hiti á athugunartíma náđi 20 stigum ţótt ekki vćri hámarksmćlir á stađnum. Leit á tímabilinu 1907 til 1919 skilar fjórum tuttugustigadögum - en trúlega hafa ţeir veriđ fleiri.

Hitamet Reykjavíkur er nýlegt, frá 30. júlí 2008 en ţá mćldist hámarkshitinn á mönnuđu veđurstöđinni 25,7 stig. Nćstmestur mćldist hitinn 11. ágúst 2004, 24,8 stig, rétt marđi ađ slá viđ meti síritans gamla frá 1891, en ţađ var 24,7 stig.

En hámarkshitamćlingar eru einnig gerđar á ţremur sjálfvirkum stöđvum í Reykjavík. Tvćr ţeirra eru í reit Veđurstofunnar. Ţćr telja ađ mestu sömu daga og mannađa stöđin, en sjálfvirkir mćlar í sívalningum virđast íviđ vakrari heldur en mćlar í skýli. Hćgastur er sjálfvirki mćlirinn í skýli sem er opnađ í mesta lagi einu sinni á dag.

Á tímabilinu áriđ 2000 til 2012 voru 17 tuttugustigadagar á mönnuđu stöđinni, en 20 á sívalningssjálfvirku stöđinni. Á tímabilinu frá 2007 til 2012 voru 10 tuttugustigadagar á mönnuđu stöđinni, 13 á sívalningsstöđinni, en 9 á ţeirri sjálfvirku í skýlinu.

En einnig er athugađ á Reykjavíkurflugvelli. Svo vildi til ađ lítillega vantar ţar í hámarksmćlingar í hitabylgjunni miklu í ágúst 2004, en frá 2007 ađ telja eru tuttugustigadagarnir á flugvellinum fjórtán.

Um tíma voru hámarksmćlingar gerđar viđ rafmagnsstöđina viđ Elliđaár og sömuleiđis á Víđistöđum í Hafnarfirđi. Ţćr eru ađgengilegar frá 1949 til 1960 á Elliđaárstöđinni, en frá 1942 til 1960 á Víđistöđum. Eru ţessar stöđvar ekki alveg sammála Reykjavíkurstöđinni um dagana.

Góđur dagur međ 22,7 stiga hita kom á Víđistöđum ţann 1. júlí 1943, en ţá var hámarkshiti í Reykjavík 19,0 stig. Dularfyllri er 10. júní 1947, Víđistađir segir hámarkshitann hafa orđiđ 21,3 stig en ţann dag var hámarkshiti í Reykjavík ekki nema 11,8 stig. Ţetta er eitt fjölmargra atriđa sem athuga ćtti betur í listunum.

Á sjötta áratugnum eru Elliđaárstöđ og Víđistađir sammála um ađ 20. júlí 1953 hafi veriđ tuttugustigadagur og sömuleiđis 24. júní 1959. Í báđum ţessum tilvikum náđi Veđurstofan 19 stigum rúmum.

Listi um tuttugustigadaga í Reykjavík 1891 til 2012 er í viđhenginu. Athuga ber ađ hámarksmćlir kom ekki á stöđina fyrr en í maí 1920.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Svo var Hólmur viđ Rauđhóla. Hann mćldi 22,7 stig 8. júlí 1963 ţegar Reykjavíkurflugvöllur var bara međ 18,7 stig sem mćldist eftir kl. 18.

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 7.6.2013 kl. 13:31

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Ţakka fyrir ađ minna á Hólm. Mógilsá, Korpa - og ađ ég held meira ađ segja Straumsvík eiga staka tuttugustigadaga sem ekki mćldust á móđurstöđinni í Reykjavík. Svo auđvitađ sjálfvirku stöđvarnar á svćđinu - líka Skálafell er ţađ ekki?

Trausti Jónsson, 9.6.2013 kl. 01:53

3 identicon

Ţetta sýnir eins og viđ var ađ búast ađ 20 stiga dagarnir í Reykjavík eru líklega talsvert fleiri en "móđurstöđin" í Reykjavík telur enda er hún uppi á hćđ, opin fyrir veđri og vindum.  Hún sýnir ţví kannski ekki alltaf raunsanna mynd af hitanum í borginni eins og hinir ýmsu mćlar sýna.  Ţađ sama á ekki viđ víđa úti á landi ţar sem stuđst er viđ sjálfvirka mćla, sem stundum eru stađsettir á "vafasömum" stöđum, viđ malbikuđ stćđi eđa inni í rjóđrum.  Samanburđurinn á milli ţessara stöđva og mönnuđu stöđvarinnar á Bústađaveginum gefur ţví oft ekki rétta mynd.  Ţar ađ auki vćri fróđlegt ađ sjá hversu lengi 20 stigin standa og hvernig vindafariđ er.  Mín tilfinning er sú ađ oft sé ansi hvasst á Norđurlandi ţegar hitinn nćr 20 stigum og ef vindurinn er ekki til stađar sé hafgolan skammt undan ţannig ađ 20 stigin staldra kannski stutt viđ.

Hefur ţú spáđ í ţetta Trausti?

Haukur E. (IP-tala skráđ) 10.6.2013 kl. 10:22

4 Smámynd: Trausti Jónsson

Haukur, jú. ég hef spáđ í ţetta flestallt.

Trausti Jónsson, 11.6.2013 kl. 01:13

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 139
  • Sl. sólarhring: 190
  • Sl. viku: 2381
  • Frá upphafi: 2348608

Annađ

  • Innlit í dag: 113
  • Innlit sl. viku: 2076
  • Gestir í dag: 102
  • IP-tölur í dag: 102

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband