Mesta sprengjan? - En í sæmilegri fjarlægð

Nú tekur þriðja ofurlægð vikunnar flugið undan austurströnd Bandaríkjanna og stefnir til norðausturs. Henni er spáð sjaldgæfri dýpt, evrópureiknimiðstöðin stakk í kvöld (fimmtudaginn 24. janúar) upp á 925 hPa í lægðarmiðju kl. 6 á laugardagsmorgun. Þá á lægðin að hafa dýpkað um 60 hPa á einum sólarhring og nærri 40 hPa á 12 klst.

Stundum líða mörg ár á milli svona djúpra lægða hér við norðanvert Atlantshaf. Þrýstingur hér á landi hefur aðeins sárasjaldan farið niður fyrir 930 hPa frá því að mælingar hófust. Nú er það auðvitað svo að ekki er víst að lægðin verði í raun alveg svona djúp - en líklega verður lægsta talan samt um eða undir 930 hPa.

Enn fáum við tækifæri til að sjá lægðina dýpka á stöðugleikakorti evrópureiknimiðstöðvarinnar - það ætti að fara að verða kunnuglegt föstum lesendum.

w-blogg250113a

Við sjáum Nýfundnaland til lengst til vinstri á myndinni. Kortið gildir kl. 18 síðdegis á föstudag (25. janúar). Heildregnu línurnar sýna þrýstingur við sjávarmál. Lægðarmiðjan er hér um 963 hPa djúp. Á rauðu og brúnu svæðunum er stöðugleiki lítill, en á grænu svæðunum er hann mikill. Tölurnar eru mál fyrir stöðugleikann, háar tölur sýna að hann er hár, en lágar að hann sé lítill.

Pínulítill fjólublár blettur er inni við lægðarmiðjuna, þar er stöðugleikinn minnstur og veðrahvörfin lægst. Við sjáum hvernig lág veðrahvörf (brúnn litur) breiðast til suðausturs í breiðum boga. Nákvæmlega Þar sem hann mætir fleyg af röku lofti (sem í þessu tilviki er „hlýi geiri“ lægðarkerfisins) á mesta dýpkunin sér stað. Veðrahvörfin stinga sér þar niður og undir í mjórri trekt, við það magnast snúningur í kerfinu gríðarlega og fárviðri geisar í kringum miðjuna.

w-blogg250113d

Þetta er spákort bresku veðurstofunnar sem gildir á sama tíma og kortið að ofan. Hér er lægðin talin vera 959 hPa (í líkani þeirra). Hlýi geiri lægðarinnar (sá ytri) þekur nokkurn veginn sama svæði og raki fleygurinn þekur á litakortinu að ofan. Aðalatriði myndarinnar (framsókn veðrahvarfanna) sést hvergi og hefði þó mátt teikna hann sem háloftakuldaskil (svipað og sundurslitnu hitaskilin framan við lægðina á kortinu). Æ.

Á litakortinu að ofan bendir ör einnig á skarpa brún efst á kortinu. Þetta er útjaðar kerfisins og eru þar einnig grófgerðir atburðir. Útstreymisloft (loft rís upp í lægðum og streymir fram og til hliðar) ryðst þar undir veðrahvörfin og lyftir þeim snögglega. Mikil ókyrrð (sem flugvélar eiga að forðast) er oftast í kringum ruðning af þessu tagi. Hvort það verður í þetta sinn skal látið ósagt.

En lítum loks á tvö spákort. Hið fyrra sýnir lægðina eins og henni er spáð í dýpstu stöðu kl. 6 á laugardagsmorgun - óvenjuleg tala, 925 hPa.

w-blogg250113b

Hitt spákortið sýnir líka mjög óvenjulega tölu. Hún birtist í spánni fyrir miðnætti á föstudagskvöld.

w-blogg250113c

Litirnir sýna loftþrýstibreytingar á þremur klukkustundum. Á hvíta svæðinu sem örin bendir á hefur fallið sprengt litakvarðann - enda er ástandið mjög óvenjulegt. Þrýstingur hefur fallið um 31,3 hPa á þremur klukkustundum. Svo ákaft hefur þrýstingur aldrei fallið svo vitað sé hér á landi. Vitað er um eitt þrýstiris sem er meira. Þrýstingur steig um 33,0 hPa á Dalatanga 25. janúar 1949, gildandi íslandsmet í þrýstirisi.

Hér á landi er ris yfir 20 hPa / 3 klst algengara en ámóta fall.

Lægðin fer að hafa áhrif hér á landi síðdegis á laugardag með vaxandi austanátt en verður þá farin að grynnast. Spár gera síðan ráð fyrir því að hún þokist til austurs fyrir sunnan land og vindur snúist þá til norðausturs.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Mjög athyglisvert, ef ekki beinlínis uggvænlegt.

Jón Valur Jensson, 25.1.2013 kl. 02:00

2 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Er nokkur von að það komi strok í lægðina og hún taki strikið norður? Öll skemmtunin er langt suður í höfum.

Sigurbjörn Sveinsson, 25.1.2013 kl. 08:49

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Lægðin heldur sig vonandi langt sunnan við land.

Trausti Jónsson, 26.1.2013 kl. 01:50

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En hvað skyldi gerast ef hún kæmi hér yfir landið eða upp að því?

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.1.2013 kl. 12:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 110
  • Sl. viku: 1496
  • Frá upphafi: 2348741

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 1302
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband