14.1.2013 | 00:44
Aftur hlýnar
Þegar þetta er skrifað (seint sunnudagskvöldið 13. janúar) er komið talsvert frost víða um land, snertir á tveggja stafa tölu. En það virðist ekki eiga að standa lengi. Mikill gangur er í veðrakerfinu og við skulum rétt sem snöggvast líta á norðurhvelsspá evrópureiknimiðstöðvarinnar sem gildir um hádegi á þriðjudaginn, 15. janúar.
Fastir lesendur vita að hægt er að gera kortið mun skýrara með stækkun. Jafnhæðarlínur 500 hPa flatarins eru svartar - því þéttari sem þær eru því meiri er vindurinn. Liturinn sýnir þykktina, því minni sem hún er því kaldari er neðri hluti veðrahvolfs. Í pistlinum í gær var langt mál um kuldapolla og sérstaklega um þann sem er mest áberandi á kortinu og við höfum valið að kalla Stóra-Bola.
Hann er á sínum heimaslóðum við norðurströnd Kanada. Þykktin í miðju hans er undir 4740 metrum (dekksti fjólublái liturinn). Í gær sáum við að flatarhæðin í miðju lægðarinnar var um 4900 metrar en hefur hér fallið niður fyrir 4800 metra. Það er töluverð dýpkun. Eins og bent var á í gær er hreyfingin nokkurn veginn samsíða vindstrengnum vestan við Bola - eða eins og litla hvíta örin sýnir.
Annar gríðarmikill strengur nær frá Kaliforníu til Nýfundnalands. Sem stendur sjást ekki neinar teljandi bylgjur á honum fyrr en í lægðinni fyrir suðvestan Grænland og kemur við sögu fljótlega hér á landi. Óvenjukalt hefur verið í suðvestanverðum Bandaríkjunum síðustu daga enda ná mörk grænu og gulu flatanna nærri því að Kaliforníuströnd. Svona veður veldur áhyggjum þar í gróðursælum dölum þar sem vaxa appelsínur og vínber. Starfsbræður ritstjórans vestra hafa hins vegar áhyggjur af kalda loftinu norðurundan og mega það svo sannarlega. En alls ekki er útséð um hversu langt kalda loftið berst suður um Bandaríkin - enn er von að þau sleppi að mestu.
Lítill kuldapollur er líka yfir Vestur-Evrópu. Þótt ekki sé hann öflugur veldur hann samt vandræðum því þykktin í miðju hans er niðri í frosti. Við sjáum að hann hreyfist til suðurs og stefnir á Miðjarðarhaf. Einhver leiðindi verða því þar um slóðir síðar í vikunni.
Fyrirstaðan mikla sem beindi til hlýindum til okkar í fyrri viku hefur hér gefið eftir, en ný myndast yfir Skandinavíu sunnanverðri síðar í vikunni. Á kortinu er Ísland komið í hlýja loftið sem verður notað sem byggingarefni í fyrirstöðunnar. Miðgræni liturinn sýnir þykkt á bilinu 5340 til 5400 metra - það er góð hláka - nema þar sem er bjart og lygnt. Engin þykkt ræður við útgeislun í björtu hægviðri þegar sólar nýtur ekki.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.3.): 39
- Sl. sólarhring: 73
- Sl. viku: 1720
- Frá upphafi: 2452597
Annað
- Innlit í dag: 35
- Innlit sl. viku: 1588
- Gestir í dag: 34
- IP-tölur í dag: 33
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.