9.1.2013 | 00:35
Skammvinn fyrirstaða
Nú eru fimm til tíu daga spár farnar að sjá fyrirstöðumyndanir - en enn er aðeins samkomulag um þá fyrstu. Hún er nú um það bil að myndast, verður í hámarksstyrk frá fimmtudegi fram á sunnudag - en samkomulag reiknilíkana nær ekki lengra. En í kvöld (þriðjudag 8. janúar) búa nýjustu spár evrópureiknimiðstöðvarinnar og bandaríska veðurstofulíkanið til risafyrirstöðu eftir um það bil viku. En við megum ekki trúa þeim ennþá.
En lítum á spá reiknimiðstöðvarinnar um fyrirstöðuna í 500 hPa næstu daga, kortið að neðan gildir um hádegi á fimmtudag (10. janúar).
Skýringatextinn er eins og venjulega: Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar og merktar í dekametrum (1 dam = 10 metrar). Því þéttari sem línurnar eru því hvassari er vindurinn sem hér blæs nokkurn veginn samsíða jafnhæðarlínunum með hærri flöt til hægri við vindstefnuna.
Litafletirnir marka ákveðin jafnþykktarbil, skipt er um lit á 6 dam bili. Mörkin á milli grænna og blárra lita er sett við 5280 metra, en mörk á milli grænna og gulra er við 5460 metra. Þar er algeng sumarþykkt á Íslandi. Þykktin mælir meðalhita í neðri hluta veðrahvolfs. Því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Ísland er ekki fjarri miðri mynd.
Við sjáum að gríðarlega mikil hlý tunga (grænir litir) teygir sig langt til norðurs fyrir austan land. Sunnanátt beinir hlýja loftinu sunnan frá Biskæjaflóa og langleiðina til norðurskautsins og myndar gríðarstórt hæðarsvæði. Kalt loft (blátt) er til beggja handa. Kalda tungan fyrir austan hæðina leggst til vesturs um sunnanverð Norðurlönd og mun ná allt til Bretlandseyja. Önnur köld tunga er á austurleið yfir Tyrklandi eftir að hafa valdið snjókomu og usla á Grikklandi síðustu daga.
Hæðin þokast nú austur og fer minnkandi næstu daga. Þetta er mikil hlýindastaða fyrir okkur. Að vísu er stutt í kalt loft vestan við land og kuldaskilin sem fjallað var um í pistlinum í gær eru á kortinu yfir landinu. Þau eiga smám saman að leysast upp og þá tekur við óráðið veður í tvo til þrjá daga.
Lægðin við Suður-Grænland, sú sem veldur sunnanhvassviðri á morgun miðvikudag (þegar flestir lesa þennan pistil) grynnist og gerir lítið meir.
Síðan er spurning hvað gerist. Langt suðvestur undan eru tvö býsna snörp lægðardrög sem hreyfast eins og örvarnar sýna. Líkönin segja þau verða svo þung á sér að þau fari ekki norðar og lokist um síðir inni sunnan við meginvindröstina, að austara skýst til austurs yfir Frakkland, en það vestara breytist í afskorna lægð. Þetta er ekki alveg víst.
Kuldapollurinn mikli, sem við köllum enn Stóra-Bola situr í réttu sæti sem stendur en á reyndar að fara í langa hringferð í kringum sjálfan sig - svipað og hvíta, sveigða örin sýnir. Framtíðin ræðst af því sem gerist þegar hann er aftur kominn í syðstu stöðu í hringnum. Síðasta spá reiknimiðstöðvarinnar sýnir hann verpa eggi sem þá myndi valda gríðarlegu kuldakasti í austanverðu Kanada eftir rúma viku og ryðji upp gríðarstórri fyrirstöðu við Ísland - sem þá aftur beindi lofti frá norður Rússlandi eða Síberíu vestur um Evrópu. Við vonum að sú spá gangi ekki eftir.
Um síðastliðna helgi skiptist Stóri-Boli heiðhvolfsins (ofan við 18 til 20 km hæð) snögglega í tvennt. Gamlar þumalfingursreglur segja að við slíka atburði bæti í lengdarbundna hringrás veðrahvolfsins. Orðið lengdarbundinn er framandi - en þýðir einfaldlega það sem orðhlutarnir segja. Venjulega blása flestir vindar samsíða breiddarbaugum (oftast úr vestri til austurs) - breiddarbundið. Norðan- og sunnanáttir eru hins vegar lengdarbundnar - blása samsíða lengdarbaugum. Í veðrahvolfinu er lengdarbundið flæði að jafnaði aðeins um 10% af því breiddarbundna (vegna áhrifa snúnings jarðar).
Aukist lengdarbundið flæði lítillega táknar það að kalt loft á greiðari aðgang til suðurs - og hlýtt til norðurs heldur en að jafnaði. Eins og gefur að skilja verður hitafar margra svæða á norðurhveli mjög afbrigðilegt við þessi skilyrði. Hversu afbrigðilegt fer að vísu mjög eftir því hvar norðan- og sunnanáttirnar koma sér fyrir á hverjum tíma í landaskipan úthafa og meginlanda. Ástand þetta er líka mjög misþrásetið - það ræðst af tilviljunum hverju sinni - stundum stendur það aðeins í tvo til þrjá daga - en stundum miklu lengur.
Við fáum alla vega þessa fyrirstöðu næstu daga. Hvað svo gerist kemur í ljós. En við reynum að fylgjast með ef atburðir verða merkilegir.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.1.): 40
- Sl. sólarhring: 740
- Sl. viku: 3532
- Frá upphafi: 2430579
Annað
- Innlit í dag: 19
- Innlit sl. viku: 2900
- Gestir í dag: 19
- IP-tölur í dag: 16
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Væri ekki gott bara að fá gríðarstóru fyrirstöðuna ef hún væri á hagstæðum stað fyrir okkur. Skítt með aðra!
Sigurður Þór Guðjónsson, 9.1.2013 kl. 16:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.