Fylgst með hæðarhryggnum

Við fylgjum þróun hæðarhryggjarins eftir í dag með því að líta á spá sem gildir um hádegi á miðvikudag. Kortagrunnurinn er sá sami og í gær og sýnir kortið hæð 500 hPa-flatarins (svartar, heildregnar línur) og þykktina (lituð svæði). Kortið batnar að mun við tvöfalda smellistækkun en það er eins og oftast úr fórum evrópureiknimiðstöðvarinnar.

w-blogg271112

Háhryggurinn er merktur með rauðri strikalínu. Hann hefur hér svignað talsvert mót austri, nyrðri endinn hefur á sama tíma færst lítið úr stað. Þessi hæðarhryggur er í sjálfu sér ekkert merkilegur umfram aðra en er nokkuð gott dæmi um mjóan hrygg sem slitnar í sundur - en það sjáum við ekki fyrr en á morgun - í spá sem gildir á fimmtudag. Lægðardragið sem sér um klippinguna er merkt með bláu striki skammt vestur af því rauða.

Næsta lægðardrag er blámerkt vestur yfir Ameríku. Það á að endurnýja hrygginn sundurklippta - aðeins austar heldur en hryggurinn okkar myndaðist. Þá er spurning hvort sagan endurtekur sig með nýrri klippingu eða hvort sá hryggur hneigir sig einfaldlega til austurs og hleypir lægðagangi að.

Fleira markvert má sjá á kortinu. Fyrirstöðuhæðin veiklulega er enn við norðurskautið og kuldapollarnir tveir (þeir ógurlegu) hafa heldur styrkst (fjólublái liturinn eykur umfang sitt í þeim báðum). Lokuð háloftalægð er orðin til yfir Miðjarðarhafi - með miklu leiðindaveðri. Þar eru víða aðvaranir í gildi um úrhellisrigningu, þrumuveður, snjókomu og vind - bara að nefna það. En engin af veðurstofunum á þeim slóðum gerir þó ráð fyrir aftökum - en þau eru táknuð með rauðri málningu á vefsíðunni góðu meteoalarm.eu sem forfallin veðurnörd fylgjast auðvitað með daglega.

Viðbót sólarhring síðar: Í frumgerð pistilsins var meinleg villa í titiltexta myndarinnar - hann hefur nú verið leiðréttur. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þakkir fyrir góða ábendingu v/meteoalarm.eu Trausti. Það hefði sennilega komið sér vel fyrir bændur á Norðurlandi að fylgjast með þessum ágæta vef sl. haust. Bendi í þessu sambandi á glænýja frétt Mbl. um þær búmannsraunir sem norðlenskir bændur hafa ratað í undanfarna mánuði.

Þetta er sannarlega búið að vera skelfilegt ár - líka á Veðurstofu Íslands. Og nú styrkjast kuldapollarnir ógurlegu við norðurskautið sem aldrei fyrr og erlendar langtímaspár gera ráð fyrir ísköldum desembermánuði á Íslandi. Hnattkólnun liggur í loftinu.

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 27.11.2012 kl. 09:14

2 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Hilmar - Ísland er nú ekki nafli alheims, og ekki líklegt að hægt sé að tala um hnattkólnun þó svo einhverjir kuldar séu á Íslandi um vetur... Hitastig á heimsvísu er enn tiltölulega hátt og ekkert sem bendir til þess að einhver hnattkólnun sé hafin. Hilmar var reyndar duglegur að spá hnattkólnun í kuldakastinu hér á Fróni í fyrra...en ekki tókst nú betur en svo að ekkert hefur enn bólað á þeirri hnattkólnun, en til að mynda þá endar hitastigið í BNA sennilega með nýju hitameti síðan mælingar hófust í ár - ekki að það sanni eitt eða neitt svona eitt og sér - ekki frekar en kuldapollur á Íslandi (sem er ekki óvenjulegt í sjálfu sér yfir vetrarmánuðina).

Sveinn Atli Gunnarsson, 27.11.2012 kl. 14:26

3 identicon

Félagi Svatli virðist eitthvað óánægður með hnattkólnunina. Sannir "Doom and Gloom" - talsmenn virðast óttast að þurfa að slá heimsendanum sínum eitthvað á frest.

Fréttir um snjókomu og fannfergi berast ekki bara frá Íslandi heldur allt frá Kína til Kanada. Í Kanada spá veðurfræðingar hörðum og köldum vetri.

Allt er þetta auðvitað á skjön við dauða- og djöfulsspádóma innvígðra kolefnisklerka. Þrátt fyrir meint metaregn CO2 í andrúmslofti hefur ekkert hlýnað síðustu 16 ár:

global temperature changes

Nýjar vísindarannsóknir virðast hins vegar staðfesta fylgni milli hitastigs jarðar og sólgeislunar:

En Svatli, Höski, Ólafur 16. og aðrir íslenskir kolefnishatarar vilja auðvitað halda áfram að borga kolefnisskattinn sinn...

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 27.11.2012 kl. 16:11

4 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Hilmar, þú vísar ekki í vísindagreinar, heldur einhverjar skoðanagreinar í sneplum eins og m.a. Daily Mail...hvaða vísindagreinar styðja málatilbúnað þinn? Meðal annars er grafið með 16 árunum sem Hilmar tekur úr Daily Mail nú bara tilbúningur David Rose og grein hans er að mestu leiti bull frá upphafi til enda - og hefur að sjálfsögðu ekkert með vísindi að gera. Ekki veit ég hvar hann gróf upp hitt grafið, en það lítur nú ekki út fyrir að vera rétt heldur - nenni svo sem ekki að elta ólar við allt bullið í Hilmari í dag.

Hér má lesa nánar um bullið í David Rose, Misleading Daily Mail Article Pre-Bunked by Nuccitelli et al. (2012)

Sveinn Atli Gunnarsson, 27.11.2012 kl. 17:21

5 identicon

Félagi Svatli. Ef þú gefur þér nú tíma til að anda á milli vanþóknunargusanna þá hlýtur þú að geta séð að ég er með tengla á greinar sem skýra bæði línuritin. Þú verður að fara að tileinka þér yfirvegaða vísindalega hugsun - og læra svolítið meira um vefsíðugerð.

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 27.11.2012 kl. 17:54

6 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Um kalda vetur á tímum loftslagsbreytinga er einmitt fjallað um hér í Kanadafréttinni sem vísar er í:

.......

He said that climate change is "shifting the range" of weather, noting that many winters in the last decade have been warmer than the historical norms.

But that doesn't mean less snow and higher temperatures every winter, Scott said.

"It doesn't mean that we can't get cold winters... if you were to project 30 to 40 years in the future, we could still get some pretty harsh winters."

"It's just that the odds are going to tilt towards milder winters," he said.

Semsagt. Langtímahlýnun útilokar ekki kalda vetur og kuldaköst (eins og allir ættu reyndar að vita).

Emil Hannes Valgeirsson, 27.11.2012 kl. 18:43

7 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Rétt athugað Emil.

Hilmar - Útskýringar David Rose (s.s. tengill þinn á skoðanir herra Rose - s.s. ekki á vísindgreinar) á þessu grafi sem hann bjó til eru svokallaðar bulllýsingar (disinformation) - þú myndir vita það Hilmar, ef þú hefðir lesið þér eitthvað til um þessi mál - í stað þess að trúa í blindni einhverju vísindaafneiturum. Bulllýsingar hafa ekkert með vísindi að gera.

Sveinn Atli Gunnarsson, 27.11.2012 kl. 18:51

8 identicon

Eru þetta ekki dæmigerð viðbrögð fyrir heimsendahoppara? Allt annað en yfirvofandi heimsendir kallast "bulllýsingar" í þeirra helgibókum.

Hér er annað línurit sem sýnir þróunina á 21. öld í hnotskurn:

GWPF_graph

Engin hnatthlýnun!

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 27.11.2012 kl. 20:05

9 identicon

ps. Er ekki best að Mail Online svari sjálf ásökunum Svatla og annara heimsendasérfræðinga um "bulllýsingar" (disinformation)?

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 27.11.2012 kl. 20:24

10 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Mail Online mun alltaf reyna að verja sjálft sig...en hitt er þó alveg ljóst að það eru ekki stunduð vísindi í þeim snepli. Bulllýsingar er nú bara ágætis þýðing á enska orðinu disinformation - sem er það sem þeir sem afneita loftslagsvísindum (sem og öðrum vísindum) bera fyrir sig.

PS. Hilmar er enn við sama heiðgarðshornið að uppnefna fólk - samanber "heimsendahoppara" - segir mest um hans nálgun að hann hefur ekkert sem einu sinni líkist vísindalegri nálgun - þ.a.l. þarf hann að grípa til uppnefninga - jæja hann um það.

Sveinn Atli Gunnarsson, 27.11.2012 kl. 21:57

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mjá!

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.11.2012 kl. 01:03

12 Smámynd: Trausti Jónsson

Það er ágætt að fá athugasemdir eða skot - en eiginlega er ætlast til þess að þær fylgi efninu en snúist ekki upp í algjörlega óviðkomandi biblíulegt þras. Var skeggið keisarans eða spámannsins?

Trausti Jónsson, 28.11.2012 kl. 01:16

13 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Trausti, það er svo sem ekki óalgengt að athugasemdir fari út og suður hér í bloggheimum...og hefur t.a.m. téður Hilmar verið duglegur við að setja fram hnattkólnunar spár sínar í athugasemdir á síður þessarar bloggsíðu, án þess að nokkur fótur sé fyrir slíkum spám. Þú ert að mínu mati ekki að koma fram með nein gögn varðandi það, þó þú nefnir hitastig og veðurfar á Íslandi - sem er mjög fróðlegt efni að mínu mati. Persónulega finnst mér ekki að það eigi alltaf að láta svona málatilbúning eins og Hilmar stundar (m.a. með gífuryrðum) standa ósvarað - þó slíkt megi sjálfsagt meta í hverju tilviki fyrir sig.

Sveinn Atli Gunnarsson, 28.11.2012 kl. 12:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • w-blogg211224b
  • w-blogg211224
  • w-blogg121224
  • w-blogg111224a
  • w-blogg101224b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 20
  • Sl. sólarhring: 214
  • Sl. viku: 985
  • Frá upphafi: 2420869

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 864
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband