Tíu ára mánaðameðaltölin - nýi og gamli tíminn

Nú lítum við á 10-ára keðjumeðaltöl hita almanaksmánaða í Stykkishólmi á sama hátt og 30-ára meðaltölin voru tekin fyrir í fyrri pistli.

Enn eru janúar og október teknir fyrir sem sýnidæmi.

w-blogg251112

Tíu ára meðalhiti í janúar er nú um þessar mundir vel fyrir ofan það hæsta sem hann var á hlýindaskeiðinu mikla 1925 til 1964 - rétt eins og í 30-ára meðaltalinu. Október hefur enn ekki náð fyrri hæðum - og talsverðu munar. Samt er hann nokkuð hár miðað við enn eldri tíma. Fyrsta tíu ára meðaltalið á myndinni er frá árunum 1823 til 1832.

Ýmis konar skemmtileg smáatriði koma fram. Til dæmis voru janúarmánuðir áranna 1975 til 1984 sameiginlega fullt eins kaldir og bræður þeirra á 19. öld - en þetta stóð stutt. Við sjáum líka að október kom mun seinna inn í hlýindin eftir 1920 heldur en janúar. Þrátt fyrir undirliggjandi hlýnun geta komið margra ára mjög köld tímabili - líka í næstu framtíð.

Eins og síðast skulum við bera saman hæstu gildi nýja og gamla tímans fyrir alla almanaksmánuðina. Í keppninni um hæstu 30-ára gildin er staðan: 8 - 1 - 3 gamli tíminn heldur enn hæstu gildunum í átta af mánuðum ársins en sá nýi þremur, í einum mánuði er staðan jöfn.

w-blogg251112b

Nýju tíu ára meðaltölin standa sig betur, þau eru hærri í 8 mánuðum ársins en þau gömlu. Það eru maí, september, október og nóvember sem enn sitja eftir í keppninni. Í sex tilvikum er tímabil sem endar á árinu í ár (2003 til 2012) í hæsta sæti, en í tveimur (júní og desember) er það tímabilið 2001 til 2010 sem á hæsta gildið. Staðan 4 - 8.

Á næsta ári (2013) detta mánuðir ársins 2003 út úr tíu ára meðaltalinu - það var sérlega hlýtt ár og því er líklegt að eftir eitt ár standi 2003 til 2012 enn með sín sex gildi í metsætinu en 2004 til 2013 verði aðeins neðar.

Þrjátíu ára meðaltölin eiga hins vegar mjög góðan möguleika á að vera slegin enn á ný á næsta ári. Júlímánuður, sem jafnaði eldra met nú í ár, keppir á næsta ári við hinn illræmda júlí 1983 sem við vonum svo sannarlega að fari ekki að endurtaka sig. Þá var meðalhiti í Stykkishólmi 8,7 stig, en var 11,8 síðastliðið sumar. En veðrið getur tekið upp á nærri því hverju sem er.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Enn og aftur afar áhugaverð færsla Trausti. "Á næsta ári (2013) detta mánuðir ársins 2003 út úr tíu ára meðaltalinu - það var sérlega hlýtt ár og því er líklegt að eftir eitt ár standi 2003 til 2012 enn með sín sex gildi í metsætinu en 2004 til 2013 verði aðeins neðar."

Tölfræðin segir okkur óyggjandi að það er að kólna á ísaköldu landi.

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 25.11.2012 kl. 08:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • w-blogg170325a
  • w-blogg160325a
  • Slide16
  • Slide15
  • Slide14

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 285
  • Sl. viku: 1789
  • Frá upphafi: 2454250

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 1647
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband