30.10.2012 | 00:45
Vetrarbyrjun
Samkvæmt gamla íslenska tímatalinu hófst vetur á laugardaginn var. Októbermánuður hefur síðustu daga rétt svo hangið í meðaltalinu 1961 til 1990, en er vel fyrir neðan meðallag síðustu 10 ára. Síðustu dagarnir eru ekki hlýindalegir.
Kortið sýnir spá um ástandið í 500 hPa-fletinum síðdegis á þriðjudag (30. október). Undanfarna viku eða svo höfum við verið inni á valdasvæði mikillar hæðar sem á kortinu er komin vestur til Nýfundnalands. Lægðarbeygja hefur á kortinu tekið við af hæðarbeygju og Ísland er komið vel norður fyrir heimskautaröstina. Hes hennar nær á kortinu alveg niður í 500 hPa eða neðar þar sem hámarksvindur við grænu örina á kortinu er um 50 m/s. Við veðrahvörf - en þar á röstin yfirleitt heima er vindur hins vegar enn meiri eða um 80 m/s.
Svörtu línurnar sýna að vanda hæð 500 hPa-flatarins en rauðdregnu strikalínurnar marka þykktina. Þykktin er hitamælir neðri hluta veðrahvolfs, því minni sem hún er því kaldara er loftið. Tölurnar sýna dekametra (1 dam = 10 metrar). Meðalþykkt um þetta leyti árs er milli 5300 og 5350 metrar. Bláa örin á kortinu bendir á 5100 metra jafnþykktarlínuna. Hún er tíður gestur hér á vetrum og er ekki fjarri því að marka það svæði sem frost er á allan sólarhringinn. Þetta er rúmum 200 metrum lægra en meðaltalið, það þýðir að hiti er um 10 stigum undir meðallagi.
Að þessu sinni rétt snertir 5100 metra línan Vestfirði en hlýr sjór bætir sífellt í þykktina og þegar kortið gildir segir evrópureiknimiðstöðin að hitunin úti af Vestfjörðum samsvari um 200 til 300 Wöttum á fermetra. Það þýðir að samfellt aðstreymi af köldu lofti þarf til þess að þykktin haldist svona neðarlega.
En þetta skot mjög lágrar þykktar stendur ekki lengi því hlýrra loft (rauða örin) sækir að úr austri. Það gengur þó ekki greiðlega fyrir sig og ástandið markast af hvössum norðanvindi næstu daga. Um síðir á hlýtt loft að sækja að úr vestri - en ekki fyrr en kuldapollur sem á kortinu er yfir Vestur-Grænlandi verður kominn hjá (svarta örin). Það mun að sögn verða á föstudag. Röstin á síðan að ganga aftur austur fyrir land á sunnudag.
Norðanskotið sem á að standa næstu daga er nokkuð samsett að því er virðist. Ekki er gott að segja t.d. hvort hægari kaflar gangi yfir landið á milli meginvindstrengjanna. Sömuleiðis er ekki langt í hlýrra loft austurundan og sjór er hlýr þannig að það gæti komið kafli með slyddu frekar en snjókomu á Norðausturlandi - en áhugasamir fylgjast auðvitað með spám Veðurstofunnar. Munið að hungurdiskar spá engu.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.3.): 7
- Sl. sólarhring: 105
- Sl. viku: 1341
- Frá upphafi: 2455667
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 1201
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Getur einhver bent mér á tengill sem sýnir vindhraða á veðurstöðvum þar sem sem fellibylurinn Sandy fer yfir.
Pálmi Freyr Óskarsson, 30.10.2012 kl. 01:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.