Köldustu dagar í maí

Frá því í ágúst á síðasta ári hafa hungurdiskar mánaðarlega birt pistla með yfirskriftinni köldustu dagar. Er nú komið að maí. Rifja verður upp að hér er einungis litið til síðustu 63 ára, frá og með maí 1949 og til og með 2011. Líklegt er að finna megi enn kaldari daga sé leitað lengra aftur. Einnig er rétt að minna lesendur á pistil sem birtist hér 13. maí í fyrra undir yfirskriftinni: Hvað getur orðið kalt í maí? Þar er fjallað um dægurlágmarksmet maímánaðar - fleiri pistlar í maí í fyrra fjalla einnig um kulda og kalda tíð.

En hverjir eru köldustu maídagarnir? Hér að neðan er tillaga.

röð ármándagurmeðalh.
1198251-5,32
2198253-5,16
3197951-4,81
4196853-4,28
5197952-4,21
6198252-4,09
7197654-3,86
8196854-3,84
9198254-3,50
10197953-3,48
11197954-3,10
12196751-3,07
13199755-2,94
14197955-2,83
15198255-2,81

Reiknaður er meðalhiti í byggð alla maídaga 1949 til 2011 og búinn til listi. Alls eru 1953 dagar á listanum og sjá má þá tuttugu köldustu hér að ofan. Kuldakast í byrjun maí 1982 á fimm daga á listanum þar með þá tvo köldustu. Þriðja maí 1982 var hiti kl. 15 í Reykjavík -3,5 stig og -4,9 stig kl. 18. Ekki glæsilegt. Fyrstu fimm dagar maímánaðar 1979 eru einnig á listanum. Sá mánuður telst sá kaldasti á landinu í heild frá 1866 en e.t.v. var lítillega kaldara í maí það ár.

Síðan er listi yfir daga með lægsta meðallágmarkshitann. Köldustu maínæturnar.

röð ármándagurm.lágm.
1198255-7,59
2196854-7,43
3196751-7,13
4198251-6,95
5197951-6,87
6198252-6,76
7196851-6,64
81979519-6,55
9197655-6,52
10198253-6,43

Hér lendir 5. maí 1982 efst á listanum (var í því 15. á meðalhitalistanum). Þessa nótt var -7,7 stiga frost í Reykjavík, -15,0 á Staðarhóli í Aðaldal og -16,0 í Möðrudal. Athygli vekur að á listanum skýst 19. maí 1979 upp í 8 sæti. Óvænt að dagur eftir miðjan mánuð skuli komast svo ofarlega - því ört hlýnar að meðaltali eftir því sem á mánuðinn líður.

Að lokum eru þeir dagar sem eiga lægsta meðalhámarkshitann. Dagar þar sem maísólin er falin bakvið ský um mestallt land í hvassri norðanátt. Ekki er einu sinni hlýtt um hádaginn sunnan undir vegg í Kópavogi (og er þá fokið í flest skjól).

röð ármándagurm.hámark
1198251-3,36
2197951-2,60
3198253-2,42
4198252-2,21
5197952-1,84
6198254-0,98
7194955-0,91
8194956-0,89
9197953-0,81
10197654-0,42

Fyrsti maí 1982 og 1979 eru í efstu sætunum og fleiri dagar úr sömu syrpu fylgja á eftir. Þá birtast 5. og 6. maí 1949 á listanum. Þá var getið um vatns- og rafmagnsskort á Ísafirði vegna snjóa. Vorið 1949 var eftirminnilegt fyrir kulda og snjó, tíð batnaði ekki að ráði fyrr en eftir miðjan júní þegar gerði meiriháttar hitabylgju - í flokki þeirra mestu.

Langyngsti dagurinn á listunum hér að ofan er 5. maí 1997 og er það til merkis um hlýindi á síðari árum. Þó er það svo að slatti af leiðinlegum kuldaköstum hefur komið á nýrri öld - þau hafa þó ekki keppt um listasæti. Mörg þeirra hafa verið seint á ferð í mánuðinum t.d. það sérlega leiðinlega kast sem gerði í fyrra (2011).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Verst að kuldakatið hrollvekjandi í maí 1943 skuli vera utangarðs.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.5.2012 kl. 01:13

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Jú, það er slæmt. En lauslegur samanburður á lægstu lágmörkum kuldakastanna 1982 og 1943 sýnir að víðar var kaldara 1982 heldur en 1943. En keppnin er hörð. Úrskurður bíður betra færis.

Trausti Jónsson, 8.5.2012 kl. 01:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 319
  • Sl. viku: 1828
  • Frá upphafi: 2353030

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1638
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband