Ţá féll ţađ (marshitametiđ)

Gögn eru ekki sótt í sjálfvirka stöđ Veđurstofunnar í Kvískerjum í Örćfum nema tvisvar á sólarhring, kl. 12 og 24. Biđin eftir nýjum gögnum var óvenjuspennandi í dag enda lofađi stöđ Vegagerđarinnar á sömu slóđum mjög góđu. Ţar mćldist hámarkshiti dagsins 19,6 stig um kl. 17.

Skráningu á vegagerđarstöđvunum er ţannig háttađ ađ íviđ minni líkur eru ţar á ofurhámörkum heldur en á stöđvum Veđurstofunnar og annarra sem fylgja sömu háttum. Á móti kemur ađ vegagerđarstöđvarnar eru settar upp á stöđum ţar sem vćnta má hvassra vinda. Sú stađreynd eykur líkur á ađ hár hiti mćlist.

Ákveđnar líkur voru ţví á ađ hámarkshiti á Kvískerjastöđ Veđurstofunnar yrđi meiri heldur en á vegagerđarstöđinni. En ţađ var langt í frá gefiđ.

En ţannig fór ađ hámarkshitinn varđ 0,9 stigum hćrri á veđurstofustöđinni, 20,5°C á móti 19,6. Glćsilegt marsmet, 1,7 stigum ofan viđ  gamla metiđ sem sett var á Eskifirđi 28. mars áriđ 2000.

Samkvćmt greiningu/spá evrópureiknimiđstöđvarinnar var ţykktin á ţessum slóđum í 5520 metrum -svipađ og mest er vitađ um í mars. Mćttishiti í 850 hPa fór í dag (í sömu greiningu/spá) hćst í um 24 stig.

Hafa nú landshámörk í mars falliđ hér á landi, í Skotlandi og í Noregi. En Kvískerjastöđvarnar hafa ekki veriđ ţar mjög lengi - og alveg hugsanlegt ađ hiti hafi á undanförnum áratugum fariđ jafnhátt og nú á ţessum slóđum. En glćsilegt engu ađ síđur.

En rétt er samt ađ taka fram ađ ţađ tekur einhvern tíma ađ kanna metiđ - t.d. hvort hliđrun sé í mćlinum. Vegagerđarmćlingin bendir ţó til ţess ađ svo sé ekki.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Flott er metiđ!

Sjálfur var ég ađ búa mig undir skýringar vegna hitans á Vegagerđarstöđinni. Ţar eru hitamćlingar ekki viđ stađalađstćđur, eins og ţađ er kallađ. Stöđin stendur á malar- eđa sandbing og ekki vel gróiđ í kring. Á ađ eiga mynd, en finn hana ekki í fljótheitum. Skiptir ekki máli, ţar sem hin stöđin heima viđ bć sýndi enn hćrra gildi.

Heyrđi í mönnum sem voru viđ vinnu innarlega í Berufirđinum um svipađ leyti í gćr. Ţar stóđ hlýr strókurinn niđur af bröttum fjöllunum og hitinn ţar í litlu samrćmi viđ mćlingar á Teigarhorni heldur utar.

Til ađ ná mćttishitanum niđur úr fjallahćđ ţarf bćđi sérstök og stađbundin skilyrđi til niđurstreymis loftins.

ESv

Einar Sveinbjörnsson, 30.3.2012 kl. 07:02

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg120324a
  • w-blogg080324a
  • w-blogg010324c
  • w-blogg010324b
  • w-blogg010324a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 82
  • Sl. viku: 971
  • Frá upphafi: 2341345

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 889
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband