Skemmtilegt fyrirbrigði fer yfir landið (án þess að nokkur verði þess var)

Í pistli hungurdiska í gær var minnst á dálítinn kuldapoll sem stuggaði við allra hlýjasta loftinu sem er á leið yfir landið. Loftið í miðju pollsins er þó mjög hlýtt miðað við árstíma en þrátt fyrir það notum við nafnið vegna þess að umhverfis miðjuna eru nokkrar lokaðar jafnþykktarlínur og kaldasta loftið er í miðjunni. Þetta er í raun sama reglan og við notum við skilgreiningu á lægðum og hæðum. Ekki þarf nema eina lokaða þrýstilínu í kringum svæði með lægri þrýstingi til þess að nota megi lægðarheitið. Textinn hér að neðan er tyrfinn og lesendur hér með varaðir við því.

En lítum á þykktarspá evrópureiknimiðstöðvarinnar fyrir hádegi á þriðjudag (14. febrúar). Fastir lesendur kannast við kortatáknmálið.

w-blogg140212a

Jafnþykktarlínur eru heildregnar og svartar, mælt er í dekametrum (1 dam = 10 metrar). Þykktin segir til um meðalhita í neðri hluta veðrahvolfs - því hærri sem hún er því hlýrra. Litafletirnir sýna hita í 850 hPa-fletinum, en gróflega má segja að hann sé í um 1300 metra hæð (en hæðin er í raun talsvert breytileg). Við sjáum erfitt er að finna hringlaga form í kringum pollinn í 850 hPa. Þrátt fyrir það má sjá að pollurinn sker norðan af hlýjasta geiranum og 5480 metra jafnþykktarlínunni sem nú í kvöld (mánudag) og fram eftir nóttu hefur verið stuggað til suðausturs.

Þegar þetta kort gildir er pollurinn á hraðri leið til austurs yfir landið og fer síðan suðaustur til Bretlands - spurning hvort hann veldur skít á Spáni eða í Norður-Afríku á fimmtudag eða föstudag. Þarlendir fylgjast væntanlega með því.

Þetta litla veðurkerfi tilheyrir reyndar dálítilli dæld í veðrahvörfunum og hefur lifað í nokkra daga. Hún slitnaði út úr heimskautaröstinni á fimmtudaginn - var þá langt suðaustur af Hvarfi á Grænlandi - fór síðan austur til Bretlands og svo þaðan vestur á bóginn og er hingað komin að sunnan - á öðrum hring í hringekjunni. Svo snyrtilega hefur verið fyllt upp í dældina að hennar gætir nær ekki í þrýstisviðinu við sjávarmál.

Lítum líka á spá um mættishita í veðrahvörfunum um hádegi á þriðjudag, á sama tíma og þykktarspáin gildir.

w-blogg140212b

Þetta kort er ekki kunnuglegt - en það verður stundum að líta á eitthvað nýtt. Litirnir sýna mættishita í veðrahvörfunum, því hærri sem hann er því hærra standa veðrahvörfin. Mættishiti segir til um það hversu hlýtt loft yrði sem fært væri beint niður til sjávarmáls („þrýstileiðréttur“ hiti). Í raun og veru gerist það aldrei - þess vegna er ákveðið að kvarðinn sé í Kelvinstigum.

Það er einhvern veginn þægilegra að segja að loftið við veðrahvörfin í dældinni miðri sé 298K í stað 25°C. En hvaða tala er það sem þarna er skammt undan - rétt norðvestur af 298? Það sést sennilega ekki mjög vel á tölvuskjáum lesenda en reyna má að tvístækka myndina - (flestir kunna það). Þá sést e.t.v. að þetta er talan 356K, ef við breytum því í °C fæst 83°C. Það er einhvern veginn auðveldara að segja að mættishitinn sé 356K heldur en 83 stig - síðari talan kann að valda meinlegum ruglingi.

En hugsum ekki um það - við skulum heldur dást aðeins að auganu fallega yfir Grænlandshafi og slóðanum sunnan við það. Augað er ekki alveg samhverft, kaldast er nyrst í því (blár litur) og er þar síðan stökk til hærri hita. Af þessu má sjá að veðrahvörfin eru beygluð, nyrst í dældinni liggja þau inn undir sjálf sig - þau slúta þar fram yfir sig.

En þetta verður trúlega enginn var við niðri við jörð - hugsanlegt er að eitthvað sjáist á loftvogum þegar dældin fer hjá. Sömuleiðis er hugsanlegt að flugvélar í veðrahvarfahæð verði varar við brotið - þá sem ókyrrð - henni er þó ekki spáð þegar þetta er skrifað. Það er reynsla ritstjórans að einkennilegt skýjafar fylgir stundum brotum í veðrahvörfunum - en ætli lágský loki ekki fyrir slíkt.

Helbláa svæðið vestast á kortinu er alvörukuldapollur sem þokast í átt til Suður-Grænlands.

Að lokum skal þess getið að hiti hefur nú komist í nærri 14 stig á Fáskrúðsfirði og er litlu lægri í Grundarfirði - hvoru tveggja er óvenjulegt í febrúar. En ekki er öll nótt úti enn með hærri hita.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 19
  • Sl. sólarhring: 369
  • Sl. viku: 1844
  • Frá upphafi: 2350580

Annað

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 1647
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband