Hláka í kortunum - dugar lítt

Bestu spár telja nú ađ hláka sé framundan - hún er reyndar ţegar byrjuđ á hluta landsins ţegar ţetta er skrifađ (seint ađ fimmtudagskvöldi 12. janúar). Hún virđist ćtla ađ vera eindregin á morgun (föstudag) en óvissara er međ endinguna. Ţykktin verđur tiltölulega há í fjóra daga en kalt loft á ađ sleikja vestanvert landiđ oftar en einu sinni á ţessum tíma - en hungurdiskar spá engu frekar en venjulega. En klakinn er mikill og sólin máttvana. En lítum á fagra ţykktarspá evrópureiknimiđstöđvarinnar sem gildir kl. 18 á föstudag (13. janúar). Ţykktin á laugardag til mánudags verđur ekki svona há.

w-blogg130112a

Ţađ er alla vega tilbreyting ađ ţessu útliti. Ţykktin er sýnd í dekametrum (1 dam = 10 metrar) međ svörtum heildregnum línum en litafletirnir sýna hita í 850 hPa. Ţađ er 5440 metra jafnţykktarlínan sem hringar sig um landiđ norđaustanvert - og sjá má örlítinn sveig í 5460 metrum og inni í honum töluna 7 - táknar ađ 7 stiga hita sé spáđ í 850 hPa á ţeim slóđum. Smásveiga og stakar tölur tökum viđ hóflega alvarlega.

Ţykkt á ţessu bili getur viđ bestu skilyrđi (vind af bröttum fjöllum) gefiđ um 15 stiga hámarkshita á landinu - oftast er hámarkshitinn ţó lćgri en ţetta viđ ţessa ţykkt. Ítrasti möguleiki er 17 til 18 stig. Landshitamet janúarmánađar hér á landi er 19,6 stig sem mćldust á sjálfvirku stöđinni á Dalatanga ţann 15. áriđ 2000.

En hver er ţá hćsta ţykkt sem vitađ er um í janúar? Ef viđ tökum mark á tuttugustualdarendurgreiningunni sem hungurdiskar vitna oft til hefur ţađ gerst nokkrum sinnum ađ ţykkt í janúar hefur fariđ upp fyrir 5500 metra í námunda viđ landiđ. Hćsta gildiđ nálćgt landinu er 5530 metrar og er ţađ frá 18. janúar 1992. Nokkrir mjög hlýir dagar komu um miđjan janúar ţađ ár og á syrpan sú nokkur af landsdćgurhámörkum janúarmánađar og mörg stöđvamet í janúar voru sett ţessa sömu daga, m.a. hefur aldrei mćlst hćrri hiti á Akureyri í janúar heldur en mćldist ţann 14. janúar 1992, 17,5 stig.

Endurgreiningin nefnir líka mjög mikla ţykkt ţann 14. janúar 1922. Ţá var lítiđ um hámarksmćlingar á landinu og engin spor markar dagurinn í metaskrám hungurdiska. Flest háţykktarskot á ţessum tíma árs standa mjög stutt - oftast ađeins hluta úr degi ţegar háloftahryggir sviptast hjá - rétt eins og nú á ađ gerast.

Eitt uppeldislegt atriđi ađ lokum (fyrir nördin). Viđ sjáum ađ blár litur liggur yfir svćđum sunnan til á landinu. Skýringar eru fleiri en ein. Í fyrsta lagi getur ţetta veriđ kalt loft sem sunnanáttin ekki hreinsar burt í neđstu lögum. Í öđru lagi er loft í uppstreymi sunnan fjalla, ţađ kólnar mjög viđ ađ lyftast - en hlýnar aftur í niđurstreyminu nyrđra. Síđan verđur einnig ađ hafa í huga ađ munur er á landslagi líkansins og raunverulegu landslagi. Uppstreymi líkansins fer eftir landslagi ţess - en ekki ţví raunverulega. Ţetta ţýđir ađ ekki má taka allt of mikiđ mark á ýmis konar hlykkjum og sveigjum yfir landi í reiknuđum veđurspám.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ţorkell Guđbrandsson (IP-tala skráđ) 14.1.2012 kl. 11:50

2 identicon

Myndina, sem á ađ fylgja fyrri "athugasemd" er tekin af Halldóri Hjálmarssyni, matsveini á bv. Klakki á Halamiđum 11. janúar s.l. Ţar sýnist mér sjást dćmigerđir hungurdiskar!

Ţorkell Guđbrandsson (IP-tala skráđ) 14.1.2012 kl. 11:52

3 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ţetta er alveg gífurlega fín mynd af hungurdiskum!

Emil Hannes Valgeirsson, 14.1.2012 kl. 12:30

4 Smámynd: Trausti Jónsson

Já, sérlega glćsileg mynd. Bestu ţakkir Ţorkell. Gaman vćri ef höfundurinn leyfđi ađ hún fengi sess í myndasafni Veđurstofunnar. Neđst í hćgra horni stendu Davíđ Már en ţu nefnir Halldór Hjálmarsson? Ţessi mynd kemst nćst teikningu Fritjof Nansen af hungurdiskum sunnan viđ Jan Mayen í apríl 1882 ađ fegurđ en texti Jóns Eyţórssonar undir ţeirri mynd varđ tilefni ađ nafni bloggsins.

Trausti Jónsson, 15.1.2012 kl. 01:14

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 160
  • Sl. viku: 1752
  • Frá upphafi: 2348630

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 1533
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband