14.11.2011 | 00:21
Þykktin aftur upp fyrir 5500 metra? Óvenjulegur hlýindakafli?
Nú virðist það gerast öðru sinni á fáeinum dögum að þykktin (milli 500 og 1000 hPa-flatanna) fari yfir 5500 metra. Þykktin mælir meðalhita neðri hluta veðrahvolfs og ekki er algengt á þessum árstíma að hún verði svona mikil. Algengar tölur í nóvember eru á bilinu 5150 til 5400 metrar. Á aðfaranótt þriðjudagsins í síðustu viku (8. nóvember) fór hún í um 5600 metra sem er nánast einstakt. Ekki verður hún alveg jafn mikil í þetta sinn. Lítum á þykktarspákort úr ranni evrópureiknimiðstöðvarinnar og gildir það kl. 18 á mánudag (14. nóvember).
Jafnþykktarlínur eru svartar, heildregnar, en lituðu svæðin sýna hita í 850 hPa (um 1300 metra hæð yfir sjávarmáli). Hæsti hitinn sem sést yfir Íslandi í þessari hæð er +10 stig. Varla þarf að taka fram hversu óvenjulegt það er á þessum árstíma. EF þetta loft næðist óblandað niður að jörð yrði það 23°C heitt þegar þangað væri komið. Hitinn yfir Suðvesturlandi er ekki alveg jafn hár. En veðurnörd fylgjast spennt með raunárangri dagsins.
En eru hlýindin í fyrri hluta þessa mánaðar óvenjuleg? Svarið er já (en þó með nokkrum semingi sagt). Það eru allmargir nóvembermánuðir sem hafa byrjað ámóta vel og þessi - en hafa síðan sprungið á hlaupinu og hrapað. Við skulum samt líta á þrjá helstu keppinautana. Myndin er ekki alveg létt - en lesendur hungurdiska hafa þó vanist þyngra viðbiti.
Hér sést hiti kl. 9 að morgni í Stykkishólmi í þremur mjög hlýjum nóvembermánuðum auk fyrstu 13 daga núlíðandi mánaðar. Meðalhiti er reyndar líka merktur á myndina, punktalína sem liggur um myndina þvera á milli 0 og 2°C. Feitdregna svarta línan er nóvember í ár (2011). Við sjáum að fyrstu tvo daga mánaðarins var hiti undir meðallagi - það kann að reynast dýrt á endasprettinum.
Bláa línan sýnir hinn ofurhlýja nóvember 1945. Flesta dagana sem liðnir eru af mánuðinum er hann um 2°C ofan við nóvember 2011 - ekki efnilegt það. En við sjáum að hann átti afleitan endasprett þar sem hiti var varla í meðallagi.
Svipað má segja um nóvember 1956 (rauð lína) en sá mánuður var ívið kaldari en 1945 á Suður- og Vesturlandi en hlýjastur allra nóvembermánaða fyrir norðan. Rauða línan er ívið órólegri heldur en sú rauða en heldur samt góðum dampi fyrstu þrjár vikurnar. Þá fatast honum einnig flugið. Mikil illviðri gengu síðustu viku mánaðarins 1956.
Græna línan liggur lengst af undir bláu og rauðu línunum. Hún sýnir nóvember 1987. Þá var endaspretturinn miklu betri heldur en 1945 og 1956.
Eins og áður sagði eru allmargir nóvembermánuðir til viðbótar hlýir framan af þótt ekki séu þeir tíundaðir hér. Næsta vika sker úr um það hvort núlíðandi mánuður nær sér í raun og veru upp úr því moði og keppi í raun og veru um sæti á verðlaunapalli.
Viðbót 14.11. kl. 17:40
Ritstjórinn hefur nú haldið áfram reikningum og m.a. komist að eftirfarandi: Meðalhiti það sem af er mánuðinum í Reykjavík er 6,3 stig. Meðalhiti sömu daga 1945 er 8,0 stig, 7,2 stig 1956, 6.6 stig 1964. Mánuðurinn er sumsé í 4. sæti miðað við tímabilið frá 1945. Á Akureyri er það sem af er mánuðinum í 10. sæti á sama tíma. Þar hefur meðalhitinn það sem af er verið 4,5 stig, en var mest 6,7 stig á sama tíma 1956. Daglegar tölur úr Stykkishómi allt frá 1846 segja fyrri helming þessa mánaðar í 14. sæti (af 165) - en litlu munar á sætum 10 til 14.
Dagurinn í dag (mánudagur 14.) mun verða mjög metagæfur á einstökum veðurstöðvum. Metin eru þó mismerkileg. Þegar þetta er skrifað (kl. 17:30) liggur hámarkshiti dagsins á mönnuðum stöðvum ekki fyrir en vonandi að nimbus muni gera grein fyrir þeim á bloggi sínu strax í kvöld.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:43 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 51
- Sl. sólarhring: 146
- Sl. viku: 1972
- Frá upphafi: 2412636
Annað
- Innlit í dag: 51
- Innlit sl. viku: 1725
- Gestir í dag: 50
- IP-tölur í dag: 49
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Ef þetta klúðrast gæti mánuðrinn samt fengið fegurðarverðlaun fyrir a.m.k. tvo óvenjulega þykkildisdaga!
Sigurður Þór Guðjónsson, 14.11.2011 kl. 00:33
Eru til "þunnildisdagar" líka?
Gunnar Th. Gunnarsson, 14.11.2011 kl. 03:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.