Sígild hlýindastaða í háloftunum

Spákort sem gildir kl. 18 þriðjudaginn 15. nóvember sýnir sígilda hlýindastöðu í háloftunum.

w-blogg151111

Svörtu heildregnu línurnar sýna hæð 500 hPa flatarins í dekametrum , en rauðu strikalínurnar tákna þykktina, hún er einnig mæld í dekametrum (dam = 10 metrar). Því meiri sem þykktin er - því hlýrra er loftið. Því þéttari sem svörtu hæðarlínurnar eru því hvassara er í 500 hPa-fletinum en hann er eins og kortið sýnir í 5 til 6 kílómetra hæð.

Við sjáum hér mikið háþrýstisvæði við Suður-Noreg og lægðardrag vestan Bretlandseyja beina til okkar mjög hlýjum suðaustlægum vindum. Það er 5460 metra jafnþykktarlínan sem liggur þvert yfir landið. Þetta er 160 til 180 metrum yfir meðallagi árstímans eða um 8 til 9°C. Það sést nærri því ekkert til vetrarins á öllu kortinu - rétt í jöðrum kortsins yfir Hvítahafi í austri og Hudsonflóa í vestri að eitthvað vottar fyrir honum. Þetta ástand minnir harla lítið á það sem algengast er í nóvember.

Til glöggvunar hef ég sett rauða strikalínu þar sem „ás“ hlýjasta loftsins liggur. Nú er það að gerast að hæðin er heldur að minnka og dregst jafnframt hægt til suðausturs. Þá fellur þykktin yfir okkur smám saman næstu daga. Sömuleiðis lækkar hæð 500 hPa-flatarins í kringum landið.

Vestarlega á kortinu er annar „ás“ með hlýju lofti. Sá er á hraðri hreyfingu til austurs en brotnar nokkuð við að rekast á lægðardragið fyrir sunnan land. Við þennan árekstur teygist lægðardragið meira í austlæga stefnu og vindátt yfir Íslandi verður austlægari. Ekki fylgir kuldi þeirri breytingu.

Nú (mánudagskvöld) er þykktinni spáð yfir meðallagi alveg fram á sunnudag - þá taka spár að verða ósammála.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5
  • Slide4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 210
  • Sl. viku: 1640
  • Frá upphafi: 2349600

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 1486
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband