6.9.2011 | 00:43
Rakamet - hvað er það?
Um leið og minnst er á mettunarrakaþrýsting ganga menn út eða sveigja frá. Reynslan segir svo vera. Sé því bætt við að mettunarakaþrýstingur yfir ís sé lægri heldur en yfir vatni taka flestir til fótanna. Nei, nei, hér stendur ekki til að minnast frekar á þennan ógnvald allrar athygli. Réttur er samt áskilinn til að nefna hann síðar.
Hugtakið loftraki er ekki auðvelt viðfangs. Um hann eru notuð mörg hugtök, öll nauðsynleg hvert á sinn hátt. Aðgæslu þarf í umgengni við þau. Hér minnumst við á tvö. Annars vegar rakastig og hins vegar daggarmark.
Varðandi skilgreiningar er hér vísað til nokkurra fróðleikspistla á vef Veðurstofunnar. Rakastig er tilgreint í prósentum, sé rakastigið 100 prósent er sagt að loft sé mettað raka. Það er til ákveðinna óþæginda þegar rætt er um rakastig að mettun er mjög háð hita loftsins. [Strangt tekið er mettunin háð hita vatnsgufunnar í loftinu en langoftast er hiti hennar og loftsins sá sami - þó með athyglisverðum undantekningum.] Sama loftið úti (við lágan hita) og inni (við háan hita) hefur því gjörólíkt rakastig. En - rakastigið er samt hagkvæmt hugtak því það gefur ágæta hugmynd um það hversu vel raki gufar upp þar sem mælt er og þannig séð hvort þurrt er eða rakt. Skiptar skoðanir eru um æskilegt rakastig í húsum - við gætum rætt þar síðar en ekki nú.
Málið hér er að rakastig (útivið) hér á landi er oftast á bilinu 60 til 100%. Rakastig er oft 100% - þannig að við höfum ekki áhuga á metum í þann endann. Metadeild hungurdiska hefur hins vegar áhuga á því hversu lágt það getur orðið.
Lægsta gildi á sjálfvirkum stöðvum í september er 6%. Talan er frá ótrúlegum stað, Stórhöfða í Vestmannaeyjum og er nærri því örugglega röng. Það getur varla verið rétt. Hins vegar mældist rakastigið aðeins 15% í Vestmannaeyjabæ þann sama dag, 14. september 2007 og 10 stöðvar aðrar eiga sín þurrkmet sama dag.
Lægsta tala á mannaðri stöð í september er 13%, mæling frá Sauðanesvita þann 17. árið 1998. Nokkrar stöðvar eiga minna en 20% raka þann 2. september 1976. Ef nógu margir tyggja það sama hallast maður að því að trúa því. Ég held að við verðum að gera ráð fyrir því að rakastig hafi komist niður fyrir 20% í september hér á landi. En - ef við lítum á þetta í hverjum mánuði næsta árið ættum við að læra smám saman hverju er trúandi og hverju ekki.
Daggarmarkið látum við bíða - en máli skiptir að vita hversu hátt það fer. - Hvaða máli? - það er nú það.
Fellibylurinn Katia hefur staðið undir nafni í dag. Fellibyljamiðstöðin í Miami segir miðjuþrýsting nú 959 hPa og vindhraða (1-mínútu meðaltal) 100 hnúta, hviður í 115 hnútum. Það er þriðja stigs fellibylur. Búist er við að styrkur haldist svipaður eða litlu minni næstu tvo sólarhringa en síðan dragi úr - þegar kólnar undir Katiu. Eftir 5 daga á bylurinn að vera kominn í útjaðar veðurkorta af Norður-Atlantshafi. Þá hefur vonandi skýrst hvort hann verður að hrelli eða ekki. Spár eru enn mjög misvísandi hvað það varðar - það misvísandi að ekki þýðir að ræða það til gagns.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 96
- Sl. sólarhring: 156
- Sl. viku: 2017
- Frá upphafi: 2412681
Annað
- Innlit í dag: 92
- Innlit sl. viku: 1766
- Gestir í dag: 86
- IP-tölur í dag: 80
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Sæll Trausti.
Ég athugaði þetta betur og mér sýnist að sjálfvirki rakamælirinn hér á Stórhöfða hefur verið bilaður í nokkra daga/vikur. Enn hann var lagaður 14. september 2007 rétt eftir að hann syndi 7%. Tölvufræðingar V.Í. virðist hafa loka fyrir villuna LENGSTUM, enn samt náust þær að læðast inn á tölvukerfið stöku sinnum.
Minnsta rakastigið á sjálfvirka mælinum hér á Stórhöfða held ég sé einhvað á milli 25-30%.
Pálmi Freyr Óskarsson, 6.9.2011 kl. 07:02
Þakka þér fyrir Pálmi - það var líka líklegast að þetta væri vitlaust. Lægsta rakastig sem mælst hefur á mönnuðu stöðinni á Stórhöfða í september (eftir 1948) er 30% - sem er líka lágt. Það var þann 14. árið 1957.
Trausti Jónsson, 6.9.2011 kl. 09:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.