14.5.2011 | 02:15
Vestrænn svali
Við höfum nú sloppið við svalann að vestan að mestu leyti frá því í snjókomunni 1. maí. En nú gerist hann nærgöngull að nýju en auðvitað hálfum mánuði hlýrri heldur en þá. Mikið hlýnar á norðurslóðum á þessum tíma árs, sérstaklega þar sem snjór hefur bráðnað. Snjóhula á norðurhveli er nú komin niður fyrir meðallag árstímans eftir að hafa verið ofan við það í mestallan vetur fram til sumardagsins fyrsta.
En lítum á hirlam-spákort sem gildir á laugardagsmorgni, 14. maí kl. 9. Það er að venju fengið af brunni Veðurstofunnar.
Við erum í 500 hPa hæð, heildregnu, svörtu línurnar eru hæð flatarins frá jörðu í dekametrum (dam=10 metrar). Rauðu strikalínurnar sýna þykktina milli 500 og 1000 hPa-flatanna, hún er því meiri því hlýrra sem loftið er. Það er 5340 metra línan sem liggur um Ísland þvert. Háloftalægð - meðalstór kuldapollur - er á vestanverðu Grænlandhafi á leið beint í austur yfir Ísland (rauðgula örin).
Háloftalægðinni fylgir líka lægð við jörð, en hún færir ekkert hlýtt loft til landsins þótt vindur blási úr suðri þegar hún nálgast land - heldur kemur kaldara loft með lægðinni. Ekki er mjög mikið misgengi þykktar- og hæðarlína í kringum lægðina - hún á því litla möguleika á vexti um það leyti sem þetta kort gildir, en þó vottar fyrir köldu aðstreymi bæði sunnan og suðaustan við lægðarmiðjuna. Ég hef sett inn nokkrar bláar örvar sem sýna hvernig vindurinn (sem fylgir hæðarlínunum) ýtir þykktarlínunum þannig að kalt loft kemur í stað hlýrra.
Við sjáum að það er nærri því ómögulegt að við sleppum við að fá þykktina svölu - 5220 metra - yfir landið. Það þýðir að einhver hvít korn sjást detta úr lofti að næturlagi - og sjálfsagt gránar í fjöll og jafnvel á heiðum. Ekki er þó spáð mikilli úrkomu svo ég viti.
Bylgja sú sem hefur miðju í háloftalægðinni er á austurleið eins og áður sagði. Það þýðir að hún á litla möguleika á vexti, meira segja liggur við borð að hún strauist - eins og ég kalla. Þá slitnar þykktarbylgjan (hlýi geiri lægðarinnar) frá háloftabylgjunni og lægðin við jörð tognar eða flest út - eyðist nema hún finni betri vist austar - eða fái kuldaspark að norðan. Við fjöllum ekki meira um þann möguleika.
Á myndinni má sjá aðra háloftalægð, sú er við norðurodda Labrador, þar er þykktin nú innan við 5160 metra. Lægðin hreyfist til suðausturs og er það mun vænlegri hreyfistefna fyrir háloftalægðir í vexti heldur en að stefna tilgangslítið til austurs eins og sú fyrri. Enn láta hungurdiskar nægja að segja að háloftalægðir styrkja hringrás sína við hreyfingu til suðausturs - en minnast ekki á hvers vegna.
Vesturlægðin á einnig að koma hér við sögu síðar, en spár eru óljósar um það hvernig hún ætlar að taka það. Við fylgjumst með ef ástæða reynist til - en þetta ástand er reyndar algengt í maí.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.2.): 250
- Sl. sólarhring: 283
- Sl. viku: 3509
- Frá upphafi: 2440653
Annað
- Innlit í dag: 224
- Innlit sl. viku: 3179
- Gestir í dag: 196
- IP-tölur í dag: 193
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.