Sundurtættar lægðir hraða sér hjá

Varla hefst undan að telja þau lægðakerfi sem sífellt berast að landinu þessa dagana. Þegar þetta er skrifað (að kvöldi þriðjudags 19. apríl) er lægð á hraðri leið til norðausturs skammt vestur af landinu og á morgun fer önnur svipaðaleið, en sameinast í leiðinni annarri sem fer yfir landið á sama tíma. Auðvelt er að teikna eitthvað sem kalla má skil í þessa súpu en hvers eðlis þau eru er ekki gott að segja - og segi ég ekkert um það. Á gervihnattamynd í kvöld má með góðum vilja sjá þessar lægðir og við lítum á hana.

w-seviri-190411-22

Lægðin vestan við landið er merkt sem L1, bláa örin sýnir áætlaða hreyfistefnu. Leggjast þarf yfir myndina til að sjá eitthvað sem gæti verið lægðarmiðja og „skil“ - en hvoru tveggja finnst ef vel er leitað. Þetta er eitt af þeim tilvikum sem væri skýrara í huga veðurfræðingsins ef hann sæi aðeins grunnkortið. Þar er allgóð lægðasveigja á þrýstilínum, loftvog fellur mjög heiðarlega og allt virðist í góðu lagi.  Af greiningu grunnkortsins einu og sér gæti fræðingurinn farið að hafa áhyggjur, loftvogin fellur ansi mikið í kvöld. En - viðbótarupplýsingar nútímans sýna að í raun og veru er lítið um að vera varðandi þessa fyrstu lægð.

Lægð númer tvö hefði varla sést á grunnkortum fortíðarinnar. Hún sést hins vegar greinilega á myndinni sem allreglulegur sveipur (eða hálfsveipur) í kringum miðju. Tölvugreiningar sýna að lægðin nær furðuhátt upp í veðrahvolfið sem sérstök hringrás sem hreyfist hratt til norðausturs í átt að landinu. En hringrásin er svo smá um sig að hún nær ekki í frekara fóður - þar til á morgun.

Áður en við lítum betur á það verður að minna á að þessar smálægðir, sem og allar lægðir síðustu daga og gott ef ekki næstu vikuna eru aðeins smáhrukkur á jaðri kuldapollsins sem sífellt er á dagskrá hér á hungurdiskum. Lægðir 1 og 2 á myndinni eru mjög stuttar hrukkur (ná varla þúsund kílómetrum að umfangi), lægð 3 er hins vegar mun stærri - en smáhrukka samt.

Til morguns færist lægð tvö nær miðju kuldapollsins, en jafnframt lendir hún í stefnumóti við bylgju þá sem merkt er á myndina sem svartur hringur. Taki maður spár bókstaflega étur hringurinn L2 um miðjan dag á morgun og úr verður myndarleg lægð sem hreyfist hratt norður í haf og veldur hvassvirði á Svalbarða á fimmtudaginn. Stefnumótið veldur því að á morgun (miðvikudag) verða um tíma tvær lægðarmiðjur eða mikil flatneskja yfir landinu og vindur því lengst af hægur.

Á meðan nálgast lægð 3 (L3) okkur og veldur hvassviðri hér á landi á fimmtudagskvöld. Ég hef sett rauða ör í myndarlegan skýjagöndul hennar - hlýja færibandið. Það á nú eftir að veltast talsvert um á leiðinni. Fylgjast má vel með því á myndunum á vef Veðurstofunnar. Má vera að hungurdiskar láti það sig einhverju varða þegar nær dregur.

Það er ekki að sjá annað en að hingað komi nýjar lægðir á 1 til 3 daga fresti næstu vikuna, en færa okkur heldur hlýrra loft en það sem yfir er í dag og á morgun (miðvikudag). Hver stór bylgja sem til okkar berst úr suðri færir með sér væntingar um vorhlýindi, kannski að pakkinn komi með næstu áætlunarferð? Eða - þarf að bíða lengur. Nokkrar ferðir eru á áætlun næstu vikuna.

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú er blíðskaparveður í Evrópu og raun komið sumar þar.  Reyndar er rúmlega mánuður síðan sumar kom í Evrópu, því hlýtt og sólarmikið hefur verið þar síðan í byrjun mars. 

Á meðan er enn vetur hér og ekkert útlit fyrir að hann sé á undanhaldi, þvert á móti virðist vera að kuldapollar séu komnir til að vera, það er, núverandi veðrakerfi er orði varanlegt hér á landi, með s/v-lægum áttum, úrkomu, og svölu og sólarlitlu veðri.

Að mínu mati styður þetta við fullyrðingu um það að það hlýskeið sem ríkt hefur í um 15-20 ár sé á hröðu undanhaldi.
Á það hefur nefnilega verði bent af mörgum, að þetta hlýskeið hafi náð hápunkti árið 2003, en síðan hafi farið kólnandi víðast hvar, þó svo að einstaka ár hafi verið nokkuð hlý.

Það er því orðið nokkuð ljóst, að miðað við það veðrakerfi sem fest hefur sig í sessi, að sumarið í ár verið svalt, úrkomusamt og sólarlítið, amk. s/v-lands, því ekkert bendir til þess að kuldapollaveðrakerfið sé að líða undir lok, þvert á móti er það búið að koma sér vel fyrir.

Veðramunstrið verður því kunnuglegt hér næstu vikur og mánuði;
kuldastrengur leggur niður frá norðurpólnum suður um fyrir vestan Grænland alla leið niður að Labrador, breytir þar um átt og leitar í s/a yfir Atlantshafið og ber með sér svalt og úrkomusamt loft yfir Ísland.

Kristján F. Kristjánsson (IP-tala skráð) 20.4.2011 kl. 11:33

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Afsakið að ég skipti mér af: En það er ekki hægt að segja að nokkur vetur hefi verið hér það sem af er apríl og hann virðist ekki ætla að koma næstu daga a.m.k. Og síðasti vetur var mjög hlýr á landinu. Á Íslandi a.m.k. er hlýskeiðið ekki á neinu undanhaldi þrátt fyrir rysjótta tíð, en ekki raunverulega kalda, í fáeinar vikur, aðallega þó á vestanverðu landi og reyndar einna lakast allra síðustu daga,  en afbragðs tíð hefur verið víðast hvar annars staðar. Hvernig væri að REYNA að sjá málin í lágmarks samhengi og á tímaskala.

Sigurður Þór Guðjónsson, 20.4.2011 kl. 12:43

3 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Sigurður: Það er betra að horfa bara út um gluggan - gleyma um stund hvernig almennilegur vetur er - og koma síðan með fullyrðingar um að það sé að kólna af því að einhver sagði það

Höskuldur Búi Jónsson, 20.4.2011 kl. 12:58

4 Smámynd: Trausti Jónsson

Kuldi hvað? Lítum á tölur aprílmánaðar til þessa:

stöð          mán    dagafj ath.fjöldi  tm(°C) tm6190T vik(°C) úrk(mm) m6190ú  úrkvik  loftþr  sólskinsst

Reykjavík          4       20      156     3.89    2.26    1.63    79.7    42.60   37.1    991.35  82.0
Stykkishólmur   4       20      156     3.35    1.07    2.28    64.1    40.40   23.7    989.70  #
Akureyri            4       20      156     4.73    0.92    3.81    12.5    22.20   -9.7    991.11  #
Dalatangi          4       20      156     5.23    1.05    4.18    53.2    55.00   -1.8    993.64  #
Kirkjub.klaustur 4       20      156     4.32    2.60    1.72    174.0   82.40   91.6    994.66  #
Stórhöfði           4       20      156     4.39    2.91    1.48    94.2    82.60   11.6    992.83  #

Hér sést t.d. að meðalhiti í Reykjavík það sem af er apríl er 3,9 stig, 1,6 stigum ofan meðallags. Á Akureyri er hitinn fram að þessu í apríl 4,7 stig, 3,8 stigum ofan meðallags og sennilega eru hlýjustu dagar mánaðarins eftir. Þar er mánuðurinn til þessa um það bil í 6. sæti hlýrra aprílmánaða allra tíma og á Dalatanga vantar ekki mikið upp á methitamánuðinn 1974. Úrkoma er langt yfir meðallagi á Suður- og Vesturlandi og loftþrýstingur langt undir, þrýstingurinn á enn möguleika á nýju lágþrýstimeðalmeti. Það sem helst er óvenjulegt í þessum mánuði eru umhleypingarnir - lægðafjöldinn og snerpa þeirra.

Trausti Jónsson, 20.4.2011 kl. 13:35

5 identicon

Tarna er margt fróðlegt að sjá. Spár um sumarið eru auðvitað bara spár, kannski bara góðlátlegt grín? En það sem kemur mér á óvart er hversu lítið þessi þráláta SV-átt hefur tætt úr hafísnum við Austur-Grænland. Þó er svo að sjá á síðustu ískortum dönsku veðurstofunnar, að eitthvað sé farið að slitna úr honum vestur af Vestfjörðum. Ég hef ekki samanburð á ískortum frá fyrri árum til að meta umfang hafíssins SA af Scoresbysundi, en Páll Bergþórsson, veðurfræðingur, spáði mikið í það hér á árum áður auk þess að skoða samhengi hitamælinga á Jan Mayen við ísmyndun og þróun hafísreks. Manni hefur sýnst undanfarin ár og áratugi, að vorbráðnun hafíss hér norður af landinu hafi mikil áhrif á veðurfar hér norðanlands a.m.k. Einhverntíma las ég (man ekki hvar) að ör bráðnun íssins leiddi til þess að saltmagn yfirborðssjávarins lækkaði ört og það þýddi lægra hitastig yfirborðssjávarins, því hann væri léttari en hlýrri og saltari sjór, sem kæmi úr austri og streymdi undir kalda sjóinn og blandaðist honum afar hægt. Þarna mætti leita hluta orsakarinnar fyrir Húnaflóaþokunni og þrálátum norðanáttum, en þegar landið hlýnaði þegar sól hækkaði á lofti, drægi það til sín kaldara og rakara loft utan af hafi. Gaman væri að vita hvað er til í þessu.

Þorkell Guðbrandsson (IP-tala skráð) 20.4.2011 kl. 21:20

6 Smámynd: Trausti Jónsson

Þorkell: Um eina ástæðu þess að suðvestanáttin hefur ekki tætt úr hafísnum má lesa í pistli næst á eftir þeim sem þú gerir að umræðuefni. Ég sé ekki betur en að allt sé laukrétt sem þú segir um hafísinn, bráðnun hans og stöðugleika yfirborðssjávarins sem á eftir fylgir. Það er líka rétt að upphitun landsins á sumrin hefur áhrif á dreifingu þokulofts á Norðurlandi, ég fjalla e.t.v. um það þegar tilefni gefst síðar í vor eða í sumar. Ástæður þeirra þrálátu norðanátta sem oft ríkja hér á landi frá 20. apríl til 10. júní [með hámarkstíðni 1. til 10. maí] eru þó margþættar og að sumu leyti hluti af stærri atburðarás.

Trausti Jónsson, 21.4.2011 kl. 01:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 359
  • Sl. viku: 1825
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1628
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband