Sprækir umhleypingar - lægð straujuð

Enn sér ekki útúr umhleypingunum og ekkert lát er á vestsuðvestanáttinni í háloftunum á okkar slóðum. Þessu veldur enn einn kuldapollurinn vestan Grænlands. Góðu fréttirnar eru þær að hann á ekki að nálgast, en þær verri að lítið lát er á honum. Hann er þó ekki alveg jafnfeitur og bræður hans sem ríktu á svipuðum slóðum hvað eftir annað í febrúar og mars.

Hann sendir okkur þó kuldasleikjur eins og þá sem gengið hefur yfir landið vestanvert í dag kvöld og veldur því að alhvít jörð hér í Reykjavík þegar þetta er skrifað (laust eftir miðnætti aðfaranótt 15. apríl). Það er eðlilegt þegar þykktin er undir 5180 metrum og er spáð enn neðar í nótt. Austlendingar njóta bæði hærri þykktar (=hlýrra lofts) og dágóðrar dægursveiflu hitans í sólríku veðri.

Kortið sýnir spá um hæð 300 hPa-flatarins um hádegi á morgun. Svörtu línurnar eru hæð flatarins í dekametrum (=10 m). Ég hef sett stórt K við miðju kuldapollsins, þar eru aðeins rúmir 8200 metrar upp í flötinn.

w-blogg-150411

Græn- og blálituðu fletirnir tákna svæði þar sem vindur er hvassastur, litun byrjar við 80 hnúta = 40 m/s. Einnig má sjá venjulegar vindörvar þar sem flögg tákna 50 hnúta (=25 m/s). Vindhraði er um 120 hnútar (= 60 m/s) þar sem hann er mestur austan Nýfundnalands.

Ég hef sett feitar, gular línur í þau tvö lægðardrög sem eru mest áberandi. Þau hreyfast bæði til austurs. Erfitt er að greina hæðarhrygginn á milli lægðardraganna. Í dag var lægð við Nýfundnaland og um hádegi á morgun (föstudaginn 15. apríl) þegar þetta kort gildir er hún fremst í grænlitaða svæðinu suðaustur af Hvarfi á Grænlandi, komin langt fram úr bylgjunni sem ætti að gefa henni dýpkunarmátt. Segja má að heimskautaröstin straui hana í klessu.

Skýjakippa hennar og úrkomusvæði fer þó yfir Ísland á föstudagskvöld og þaðan á ofsahraða til Noregs. Síðan kemur næsta lægð og sú næsta og enn áfram og fram að páskum. Framtíðarspár eru þó mjög óöruggar í þessari fjörugu stöðu og ekki gott að segja hvort fleiri lægðir straujast við að fara fram úr sjálfum sér eða hvort þær ná andanum og mynda alvöruhringrás.

Heimskautaröstin tekur aðeins hóflegt mark á meðaltölum og mikil áraskipti eru á því hvenær eða hvernig hún skiptir yfir í snemmsumarsgírinn. Í stöku sumri losnum við ekkert við hana - en að meðaltali turnast hún síðustu 10 daga aprílmánaðar.

Ef við rýnum í meðaltöl mjög langs tíma sést að röstin heldur að jafnaði nærri fullum vetrarstyrk fram undir það síðasta - en jafnframt snýst hún til aðeins hærri áttar (hærri tölu á áttavitanum). Það þýðir að leið hennar í apríl (og maí) liggur oftar yfir Grænland heldur en tíðast er yfir háveturinn. Vorin eru sá tími árs sem Grænland með sínum háa jökulhrygg beyglar röstina og þá vilja skiptast á bjartir og hægir dagar annars vegar og leiðindanorðankuldaköst - vorhretin illræmdu. Ég hef því miður enn ekki nákvæma tölu á tíðni þessa erfiða veðurlags á hinum ýmsu tímum árs en tilfinning mín (sem ekki er rétt treystandi) telur Grænlandsbylgjuhret á vorin um tvöfalt líklegri heldur en á öðrum tímum árs. Vonandi upplýsist um sannleikann í því máli síðar.

En eins og að ofan sagði lætur heimskautaröstin meðaltöl sig litlu varða og við verðum því að taka framleiðsluvörum hennar í vor með jafnaðargeði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

S/V-áttir hafa verið hér ráðandi meira eða minna síðan um áramót með tilheyrandi úrkomu og óstöðugu veðri. 

Af þessi S/V-útsynningur verður viðvarandi áfram og í sumar, þá má búast við svölu, vætusömu og sólarlitlu sumri hér S/V-lands í allt sumar. 

Ekki satt, Trausti?

K. M. Þórðarson (IP-tala skráð) 15.4.2011 kl. 10:33

2 Smámynd: Arinbjörn Kúld

og björtu og hlýju hér norðanlands eða hvað?

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 15.4.2011 kl. 12:59

3 identicon

Trausti hefur margsagt og lýst yfir að þessir pistlar hans eru ekki veðurspár, allra síst langtímaspár, ef ég hef skilið hann rétt. Þannig að ég býst ekki við að þið fáið hrein svör frá honum, K.M. Þórðarson og Arinbjörn Kúld! En mig langaði til að spyrja hvort þetta um ráðandi vindáttir byggir á skráningu eða tilfinningu?

Þorkell Guðbrands (IP-tala skráð) 15.4.2011 kl. 15:49

4 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Sumarið 1983 er kannski besta og alræmdasta dæmið um kalt og blautt útsynningssumar á suðvesturlandi.

Emil Hannes Valgeirsson, 15.4.2011 kl. 20:17

5 Smámynd: Trausti Jónsson

Það er rétt hjá þér Þorkeli að engar veðurspár er að hafa á hungurdiskum, en þar er hins vegar fjallað um þær. Það vill verða hættuspil fyrir menn eins og mig að taka að sér spár frá heimili mínu úti í bæ. Ég hef enga möguleika á að liggja yfir upplýsingum 24 tíma á sólarhring alla daga vikunnar eins og gert er á Veðurstofunni, en ég hef góðar forsendur til að fjalla um möguleika í stöðunni hverju sinni án minnstu ábyrgðar. Suðvestanátt að sumri er vísun á sudda og sólarleysi á Suðvesturlandi (þessi setning gæti nærri því verið úr My fair Lady. segi men eþþ í stað s). Sumarið 1983 er besta dæmi sem ég hef upplifað af þessu tagi og flestir þeir sem eldri eru held ég. Þeir sem enn eldri eru vitna þó stöðugt í sumarið 1955 (ég man það sumar ekki), en það var þó talsvert hlýrra en 1983. Þeir elstu sem ég talaði við fyrir 30 árum nefndu sumrin 1926 og 1913 sem sérlega eftirminnileg og einhver þeirra nefndi að sér enn eldri hefði nefnt eitthvert sumranna á síðari hluta 10. áratugar 19. aldar sem eftirminnilegast. Þá komu nokkur skítasumur í röð sunnanlands - svipað og upp úr 1980. Það sem ég hef síðast frétt af spám um næstu mánuði gerir ekki ráð fyrir útsynningssumri á Íslandi í ár. Hafa verður í huga að margra mánaða veðurspám er alls ekki treystandi - þær eru þó ekki svo vitlausar að hægt sé að hægt sé að ganga út frá að þær séu vitlausar - oft ratast kjöftugum satt á munn.

Trausti Jónsson, 16.4.2011 kl. 01:47

6 Smámynd: Trausti Jónsson

Ég varð svo óðamála hér að ofan að ég gleymdi að svara spurningur Þorkels. Vorvindáttahugleiðingar mínar eru byggðar á gegnheilum tölum en ekki tilfinningu - má vera að ég færi aðeins í stílinn - en ekki meir.

Trausti Jónsson, 16.4.2011 kl. 01:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 203
  • Sl. sólarhring: 338
  • Sl. viku: 2028
  • Frá upphafi: 2350764

Annað

  • Innlit í dag: 186
  • Innlit sl. viku: 1814
  • Gestir í dag: 182
  • IP-tölur í dag: 182

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband