Lćgsti hiti á veđurstöđvum í apríl

Í viđhenginu er listi yfir lćgstu lágmörk á veđurstöđvum í apríl. Honum er, eins og fyrri listum af ţessu tagi, skipt í fjóra hluta. Fyrst koma sjálfvirku stöđvarnar, síđan sjálfvirkar Vegagerđarstöđvar sér, ţarnćst mannađar stöđvar  1961-2010 og loks mannađar stöđvar 1924 til 1960. Íslandsmetiđ er eldra en 1924, sett á Siglufirđi 1. apríl 1881 - eins og getiđ var um hér á hungurdiskum nýlega. Hugsanlegt er ađ stöku eldri met standi enn á ţeim stöđvum sem athugađ hafa lengur en frá 1924. Ţađ er helst 1. apríl 1881 sem gćti truflađ.

Annars er mikill fjöldi meta frá 1. apríl 1968 og er hann kaldastur apríldaga á fjölmörgum mönnuđu stöđvanna. Ţar á međal eru bćđi Reykjavík og Akureyri. Telji mađur ártöl og daga í töflunni kemur í ljós ađ ţessa dags er getiđ 63 sinnum.

Síđan sjálfvirku stöđvunum fór ađ fjölga fyrir um 15 árum hafa kuldaköst ekki veriđ mjög skćđ. En stöđvar sem byrja seint eiga samt met. Met er skráđ á 70 stöđvum 7. apríl 2005. Nokkrar stöđvar hafa ađeins athugađ í 1 til 2 ár og ţarf varla ađ taka fram ađ ţau segja lítiđ um metamöguleika ţeirra - ég hefđi kannski átt ađ sleppa ţeim. En ég veit ađ nördin hafa gaman af ţví ađ sjá ţessar tölur líka - og ég er í ţeirra hópi hvađ ţetta varđar. Ef ég fćri ađ sleppa einu ári, ćtti ég ţá ekki líka ađ sleppa tveimur - eđa fleiri?

Á tímanum 1924 til 1953 sker 2. apríl 1953 sig nokkuđ úr međ 19 bókanir (í miđju hrćđilegu kuldakasti) og af síđari ónefndum köstum má nefna 3. apríl 1990 međ 16 bókanir og 11. apríl 2001 međ 34 bókanir, ađallega sjálfvirkar stöđvar. Af dögum seint í mánuđinum er 20. apríl 1951 eftirtektarverđur međ 6 bókanir.

Ţeir sem vilja geta nú lagst yfir töfluna og rađađ henni ađ vild. Verđi ykkur ađ góđu.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Trausti.

Ţakkir fyrir allt ţađ sem ţú hefur veriđ ađ gefa okkur !

Kveđja

JR

JR (IP-tala skráđ) 16.4.2011 kl. 02:29

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5
  • Slide4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 42
  • Sl. sólarhring: 131
  • Sl. viku: 1666
  • Frá upphafi: 2349626

Annađ

  • Innlit í dag: 37
  • Innlit sl. viku: 1508
  • Gestir í dag: 37
  • IP-tölur í dag: 36

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband